1Þegar Drottinn ætlaði að láta Elía fara til himins í stormviðri, voru þeir Elía og Elísa á leið frá Gilgal.2Þá sagði Elía við Elísa: Vertu hér kyrr, því að Drottinn hefir sent mig til Betel. En Elísa svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir, mun ég eigi við þig skilja. Fóru þeir þá ofan til Betel.3Spámannasveinar þeir, er voru í Betel, gengu út á móti Elísa og sögðu við hann: Veist þú að Drottinn ætlar í dag að nema herra þinn burt yfir höfði þér? Elísa svaraði: Veit ég það líka. Verið hljóðir!4Þá sagði Elía við hann: Elísa, vertu hér kyrr, því að Drottinn hefir sent mig til Jeríkó. Hann svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir, mun ég eigi við þig skilja. Fóru þeir þá til Jeríkó.5Þá gengu spámannasveinar þeir, er voru í Jeríkó, til Elísa og sögðu við hann: Veist þú að Drottinn ætlar í dag að nema herra þinn burt yfir höfði þér? Elísa svaraði: Veit ég það líka. Verið hljóðir!6Þá sagði Elía við hann: Vertu hér kyrr, því að Drottinn hefir sent mig til Jórdanar. Hann svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir, mun ég eigi við þig skilja. Fóru þeir þá báðir saman.7En fimmtíu manns af spámannasveinunum fóru og námu staðar til hliðar í nokkurri fjarlægð, en hinir báðir gengu að Jórdan.8Þá tók Elía skikkju sína, braut hana saman og sló á vatnið. Skipti það sér þá til beggja hliða, en þeir gengu báðir yfir um á þurru.9En er þeir voru komnir yfir um, sagði Elía við Elísa: Bið þú mig einhvers, er ég megi veita þér, áður en ég verð numinn burt frá þér. Elísa svaraði: Mættu mér þá hlotnast tveir hlutar af andagift þinni.10Þá mælti Elía: Til mikils hefir þú mælst. En ef þú sér mig, er ég verð numinn burt frá þér, þá mun þér veitast það, ella eigi.11En er þeir héldu áfram og voru að tala saman, þá kom allt í einu eldlegur vagn og eldlegir hestar og skildu þá að, og Elía fór til himins í stormviðri.12Og er Elísa sá það, kallaði hann: Faðir minn, faðir minn, þú Ísraels vagn og riddarar! Og hann sá hann ekki framar. Þá þreif hann í klæði sín og reif þau sundur í tvo hluti.13Síðan tók hann upp skikkju Elía, er fallið hafði af honum, sneri við og gekk niður á Jórdanbakka,14tók skikkju Elía, er fallið hafði af honum, sló á vatnið og sagði: Hvar er nú Drottinn, Guð Elía? En er hann sló á vatnið, skipti það sér til beggja hliða, en Elísa gekk yfir um.15Þegar spámannasveinarnir í Jeríkó sáu það hinumegin, sögðu þeir: Andi Elía hvílir yfir Elísa. Gengu þeir í móti honum, lutu til jarðar fyrir honum16og sögðu við hann: Sjá, hér eru fimmtíu röskir menn með þjónum þínum. Lát þá fara og leita að herra þínum, ef andi Drottins kynni að hafa hrifið hann og varpað honum á eitthvert fjallið eða ofan í einhvern dalinn. En Elísa mælti: Eigi skuluð þér senda þá.17En er þeir lögðu mjög að honum, mælti hann: Sendið þér þá. Sendu þeir þá fimmtíu manns, og leituðu þeir hans í þrjá daga, en fundu hann ekki.18Sneru þeir þá aftur til Elísa, og var hann þá enn í Jeríkó. Þá sagði hann við þá: Sagði ég yður ekki, að þér skylduð ekki fara?19Borgarmenn Jeríkó sögðu við Elísa: Borg þessi liggur að vísu vel, eins og þú sjálfur sérð, herra, en vatnið er vont, og landið veldur því, að konur fæða fyrir tímann.20Hann sagði við þá: Færið mér nýja skál og látið í hana salt. Þeir gjörðu svo.21Og hann gekk út að uppsprettu vatnsins, kastaði saltinu í hana og mælti: Svo segir Drottinn: Ég gjöri vatn þetta heilnæmt. Upp frá þessu skal það eigi valda dauða né ótímaburði.22Þá varð vatnið heilnæmt samkvæmt orði Elísa, því er hann hafði talað, og er svo enn í dag.23Þaðan hélt hann til Betel. Og er hann gekk upp veginn, gengu smásveinar út úr borginni, hæddu hann og kölluðu til hans: Kom hingað, skalli! Kom hingað, skalli!24Sneri hann sér þá við, og er hann sá þá, formælti hann þeim í nafni Drottins. Þá komu tvær birnur út úr skóginum og rifu í sundur fjörutíu og tvo af drengjunum.25Þaðan fór hann til Karmelfjalls og sneri þaðan aftur til Samaríu.

2.1 Elísa 1Kon 19.16,19-21
2.2 Betel 1Kon 12.29+
2.3 Taka frá 1Makk 2.58; sbr 1Mós 5.24; Post 1.9
2.4 Jeríkó 2Kon 2.19-22; Jós 6; 1Kon 16.34
2.6 Jórdan 2Kon 6.1-6; Jós 3-4; Matt 3.13 og hlst
2.8 Skikkja Elía 1Kon 19.19+; sbr 2Mós 14.16
2.9 Hlutar af anda Jes 42.1; 61.1; Esk 2.2; 3.12
2.11 Eldvagn og hestar 2Kon 6.17; Sír 48.9
2.15 Andinn hvílir yfir Elísa 4Mós 11.25; Jes 11.2; 1 Pét 4.14
2.16 Tekið hann 1Kon 18.12+
2.19 Vont vatn 2Mós 15.22-25
2.20 Salt 3Mós 2.13+ ; Esk 43.24
2.24 Tvær birnur 3Mós 26.22+; sbr 1Kon 13.24+
2.25 Samaría 1Kon 16.24