1Hvað eigum vér þá að segja? Eigum vér að halda áfram í syndinni til þess að náðin aukist?2Fjarri fer því. Vér sem dóum syndinni, hvernig ættum vér framar að lifa í henni?3Eða vitið þér ekki, að allir vér, sem skírðir erum til Krists Jesú, erum skírðir til dauða hans?4Vér erum því dánir og greftraðir með honum í skírninni, til þess að lifa nýju lífi, eins og Kristur var upp vakinn frá dauðum fyrir dýrð föðurins.5Því að ef vér erum orðnir samgrónir honum í líkingu dauða hans, munum vér einnig vera það í líkingu upprisu hans.6Vér vitum, að vor gamli maður er með honum krossfestur, til þess að líkami syndarinnar skuli að engu verða og vér ekki framar þjóna syndinni.7Því að sá, sem dauður er, er leystur frá syndinni.8Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með honum lifa.9Vér vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum.10Með dauða sínum dó hann syndinni í eitt skipti fyrir öll, en með lífi sínu lifir hann Guði.11Þannig skuluð þér líka álíta yður sjálfa vera dauða syndinni, en lifandi Guði í Kristi Jesú.12Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama yðar, svo að þér hlýðnist girndum hans.13Ljáið ekki heldur syndinni limi yðar að ranglætisvopnum, heldur bjóðið sjálfa yður Guði sem lifnaða frá dauðum og limi yðar Guði sem réttlætisvopn.14Synd skal ekki drottna yfir yður, því að ekki eruð þér undir lögmáli, heldur undir náð.15Hvað þá? Eigum vér að syndga, af því að vér erum ekki undir lögmáli, heldur undir náð? Fjarri fer því.16Vitið þér ekki, að ef þér bjóðið öðrum sjálfa yður fyrir þjóna og hlýðið honum, þá eruð þér þjónar þess, sem þér hlýðið, hvort heldur er syndar til dauða eða hlýðni til réttlætis?17En þökk sé Guði! Þér voruð þjónar syndarinnar, en urðuð af hjarta hlýðnir þeirri kenningu, sem þér voruð á vald gefnir.18Og þér gjörðust þjónar réttlætisins eftir að hafa verið leystir frá syndinni.19Ég tala á mannlegan hátt, sökum veikleika yðar. Því að eins og þér hafið boðið limi yðar óhreinleikanum og ranglætinu fyrir þjóna til ranglætis, svo skuluð þér nú bjóða limi yðar réttlætinu fyrir þjóna til helgunar.20Þegar þér voruð þjónar syndarinnar, þá voruð þér lausir við réttlætið.21Hvaða ávöxtu höfðuð þér þá? Þá sem þér nú blygðist yðar fyrir, því að þeir leiða að lokum til dauða.22En nú, með því að þér eruð leystir frá syndinni, en eruð orðnir þjónar Guðs, þá hafið þér ávöxt yðar til helgunar og eilíft líf að lokum.23Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.

6.1 Náðin misnotuð Róm 3.8
6.3 Skírð til Krists Jesú Gal 3.27
6.4 Greftruð með Kristi Kól 2.12; 2Tím 2.11
6.5 Samgróin Kristi Fil 3.10-11; Ef 2.6
6.6 Okkar gamli maður Kól 3.9-10; Ef 4.22-24 – dó með Kristi á krossi Gal 5.24; 6.14
6.10 Eitt skipti fyrir öll 1Pét 3.18; Heb 9.26-28
6.11 Dáin frá syndinni en lifandi Guði 1Pét 2.24; Kól 3.3,5; Gal 2.19; 2Kor 5.15
6.14 Ekki undir lögmáli Gal 5.18
6.16 Þý Jóh 8.34; 2Pét 2.19
6.18 Leyst frá syndinni Gal 5.13; Jóh 8.36
6.19 Limir Róm 7.5,23 – þjóna réttlætinu Róm 12.1
6.22 Ávextir Jóh 15.8,16; Gal 5.22; 6.8 – eilíft líf Róm 5.21+
6.23 Laun syndarinnar Róm 5.12