1Drottinn sagði við mig: Tak þér stórt spjald og rita þú á það með algengu letri: Hraðfengi Skyndirán.2Og tak mér skilríka votta, prestinn Úría og Sakaría Jeberekíason.3Og ég nálgaðist spákonuna, og hún varð þunguð og ól son. Þá sagði Drottinn við mig: Lát þú hann heita Hraðfengi Skyndirán.4Því að áður en sveinninn lærir að kalla faðir minn og móðir mín, skal auður Damaskus og herfang Samaríu burt flutt verða fram fyrir Assýríukonung.5Og Drottinn talaði enn við mig og sagði:6Af því að þessi lýður fyrirlítur hin straumhægu Sílóa-vötn, en fagnar Resín og Remaljasyni,7sjá, fyrir því mun Drottinn láta yfir þá koma hin stríðu og miklu vötn fljótsins Assýríukonung og allt hans einvalalið. Skal það ganga upp yfir alla farvegu sína og flóa yfir alla bakka.8Og það skal brjótast inn í Júda, flæða þar yfir og geysast áfram, þar til manni tekur undir höku, og breiða vængi sína yfir allt þitt land, eins og það er vítt til, Immanúel!9Vitið það, lýðir, og hlustið á, allar fjarlægar landsálfur! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast!10Takið saman ráð yðar, þau skulu að engu verða. Mælið málum yðar, þau skulu engan framgang fá, því að Guð er með oss!11Svo mælti Drottinn við mig, þá er hönd hans hreif mig og hann varaði mig við því að ganga sama veg og þetta fólk gengur:12Þér skuluð ekki kalla allt það samsæri, sem þetta fólk kallar samsæri, og ekki óttast það, sem það óttast, og eigi skelfast.13Drottinn allsherjar, hann skuluð þér telja heilagan, hann sé yður ótti, hann sé yður skelfing.14Og hann skal verða helgidómur og ásteytingarsteinn og hrösunarhella fyrir báðar ættþjóðir Ísraels og snara og gildra fyrir Jerúsalembúa.15Og margir af þeim munu hrasa, falla og meiðast, festast í snörunni og verða veiddir.16Ég bind saman vitnisburðinn og innsigla kenninguna hjá lærisveinum mínum.17Ég treysti Drottni, þótt hann byrgi nú auglit sitt fyrir Jakobs niðjum, og ég bíð hans.18Sjá, ég og synirnir, sem Drottinn hefir gefið mér, vér erum til tákns og jarteikna í Ísrael frá Drottni allsherjar, sem býr á Síonfjalli.19Ef þeir segja við yður: Leitið til andasæringarmanna og spásagnarmanna, sem hvískra og umla! Á ekki fólk að leita frétta hjá guðum sínum og leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi?20þá svarið þeim: Til kenningarinnar og vitnisburðarins! Ef menn tala ekki samkvæmt þessu orði, hafa þeir engan morgunroða21og munu ráfa hrjáðir og hungraðir. Og er þá hungrar munu þeir fyllast bræði og formæla konungi sínum og Guði sínum. Hvort sem horft er til himins22eða litið til jarðar, sjá, þar er neyð og myrkur. Í angistarsorta og niðdimmu eru þeir útreknir.

8.1 Boðskapur spámanns skráður Jes 30.8; Jer 30.2; 36.2; Hab 2.2 – skyndirán Jes 10.6
8.2 Vitni 5Mós 17.6; 19.15; 1Kon 21.13 – Úría 2Kon 16.10-16 – Sakaría 2Kon 18.2; 2Kro 29.1
8.3 Fjölskylda spámanns Hós 1.1-9 – sonur Jes 7.14
8.4 Áður en Jes 7.16 – eyðing Samaríu og Damaskus Jes 7.20; 17.3
8.6 Sílóa Jóh 9.7,11 – straumhæg sbr Jes 30.15 – Synir Remalja Jes 7.1,8-9
8.7 Efrat Jes 7.20; 27.12 – innrás, flóð Jes 17.12-14; Jer 46.7; 47.2; 51.42; Dan 11.10,40
8.8 Ryðjast inn Jes 10.28-32 – allt land þitt Jes 1.7; 36.1; 2Kon 17.5 – Immanúel Jes 7.14
8.10 Áform Guðs, áform manna Jes 5.19; 14.26-27; Slm 33.10-11; 81.13; Okv 21.30 – fær ekki staðist Jes 7.7; 28.18; sbr 17.14 – Guð er með oss Jes 7.14; Róm 8.31
8.11 Hönd Drottins 2Mós 3.20 – greip mig 1Kon 18.46; 2Kon 3.15; Jer 15.17; Esk 3.14
8.12 Samsæri 2Sam 15.12; 1Kon 16.20; 2Kon 11.14; 12.21; 14.19; 15.15,30; Slm 31.14+ – óttist ekki 1Pét 3.14 – það, sem það óttast Jes 7.2
8.13 Drottin sé heilagur 1Pét 3.15 – Hinn heilagi Jes 6.3+ ; Jes 29.22-23; sbr 31.1
8.14 Helgidómur Esk 11.16; sbr Opb 21.22 – steinn sbr Jes 28.16; 1Mós 49.24 – hella sbr Jes 17.10; 2Sam 22.2; Slm 28.1 – til hrösunar sbr 5.15-16,24; 30.9-14; 31.1; 37.22-23; Lúk 2.34; Róm 9.32-33; 1Pét 2.7-8 – snara Slm 9.16+
8.15 Margir meiðast Matt 21.44
8.16 Ég vef Jer 32.14 – innsigla Jes 29.11; 1Kon 21.8; Jer 32.11; Dan 12.4 – kenninguna Jes 1.10; 2.3; 5.24; 30.9
8.17 Bíða Drottins Slm 27.14; 31.25+ – byrgir auglit sitt Slm 13.2+ – ætt Jakobs Jes 2.5; 10.20; 14.1; 29.22
8.18 Drottinn gaf Heb 2.13 – fjölskylda spámanns, tákn og viðvörun Jes 7.3; 10.21; 8.1-3; Jer 16.1-8; Esk 24.15-24; Hós 1-3 – tákn Jes 7.11+ – Síon Jes 2.2-5; 4.5; 11.9; 14.32; 28.16; 31.9; 33.5; sbr Slm 132.13
8.19 Spásagnarandi Jes 19.3; 1Sam 28.7-20; 2Kon 21.6; 23.24 – bannað að leita anda 3Mós 19.31; 20.6,27; 5Mós 18.11; 1Sam 28.3,9
8.21 Ábyrgð konungsins 2Kon 6.26-27; Slm 72.12-16 – formæla konunginum og Guði 2Mós 22.27; 1Kon 21.10
8.22 Neyð og myrkur Jes 5.30; Mík 3.6
8.23 Handan við Jórdan (Gíleað) 2Sam 2.9; 1Kon 22.3-6; 2Kon 10.32-33; o.fl. – Galílea heiðingjanna 2Kon 15.29; sbr Jós 20.7; 21.32; 1Kon 9.11