1Jóram, sonur Akabs, varð konungur í Samaríu yfir Ísrael á átjánda ríkisári Jósafats Júdakonungs og ríkti tólf ár.2Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins, þó ekki eins og faðir hans og móðir hans, því að hann tók burt Baalsmerkissteinana, sem faðir hans hafði gjöra látið.3En við syndir Jeróbóams Nebatssonar, er hann hafði komið Ísrael til að drýgja, hélt hann fast og lét ekki af þeim.4Mesa, konungur í Móab, átti miklar hjarðir. Greiddi hann Ísraelskonungi í skatt hundrað þúsund lömb og ull af hundrað þúsund hrútum.5En er Akab var dáinn, braust Móabskonungur undan Ísraelskonungi.6Lagði Jóram konungur þá af stað frá Samaríu og kannaði allan Ísrael.7Hann sendi og þegar til Jósafats Júdakonungs og lét segja honum: Móabskonungur hefir brotist undan mér. Vilt þú fara með mér í hernað á móti Móabítum? Fara mun ég, svaraði hann, ég sem þú, mín þjóð sem þín þjóð, mínir hestar sem þínir hestar.8Og hann sagði: Hvaða leið eigum við að fara? Jóram svaraði: Leiðina um Edómheiðar.9Fóru þeir nú af stað, Ísraelskonungur, Júdakonungur og konungurinn í Edóm. Og er þeir höfðu farið sjö dagleiðir, hafði herinn ekkert vatn og ekki heldur skepnurnar, sem þeir höfðu með sér.10Þá sagði Ísraelskonungur: Æ, Drottinn hefir kallað þessa þrjá konunga til þess að selja þá í hendur Móabítum.11En Jósafat mælti: Er hér enginn spámaður Drottins, að vér getum látið hann ganga til frétta við Drottin? Þá svaraði einn af þjónum Ísraelskonungs og sagði: Hér er Elísa Safatsson, sem hellt hefir vatni á hendur Elía.12Jósafat sagði: Hjá honum er orð Drottins! Síðan gengu þeir Ísraelskonungur, Jósafat og konungurinn í Edóm ofan til hans.13En Elísa sagði við Ísraelskonung: Hvað á ég saman við þig að sælda? Gakk þú til spámanna föður þíns og til spámanna móður þinnar. Ísraelskonungur svaraði honum: Nei, því að Drottinn hefir kallað þessa þrjá konunga til þess að selja þá í hendur Móabítum.14Þá mælti Elísa: Svo sannarlega sem Drottinn allsherjar lifir, sá er ég þjóna: Væri það ekki vegna Jósafats Júdakonungs, þá skyldi ég ekki renna til þín auga né virða þig viðlits.15En sækið þér nú hörpuleikara. Í hvert sinn sem hörpuleikarinn sló hörpuna, hreif hönd Drottins Elísa.16Og hann mælti: Svo segir Drottinn: Gjörið gryfju við gryfju í dal þessum,17því að svo segir Drottinn: Þér munuð hvorki sjá vind né regn, og þó mun þessi dalur fyllast vatni, svo að þér megið drekka, svo og her yðar og skepnur.18En Drottni þykir þetta of lítið, hann mun og gefa Móabíta í hendur yðar.19Og þér munuð vinna allar víggirtar borgir og allar úrvalsborgir, fella öll aldintré og stemma allar vatnslindir, og öllum góðum ökrum munuð þér spilla með grjóti.20Morguninn eftir, í það mund er matfórnin er fram borin, kom allt í einu vatn úr áttinni frá Edóm, svo að landið fylltist vatni.21En er allir Móabítar heyrðu, að konungarnir væru komnir til þess að herja á þá, var öllum boðið út, er vopnum máttu valda, og námu þeir staðar á landamærunum.22En er þeir risu um morguninn og sólin skein á vatnið, sýndist Móabítum álengdar vatnið vera rautt sem blóð.23Þá sögðu þeir: Þetta er blóð! Konungunum hlýtur að hafa lent saman og þeir hafa unnið hvor á öðrum, og nú er að hirða herfangið, Móabítar!24En er þeir komu að herbúðum Ísraels, þustu Ísraelsmenn út og börðu á Móabítum, svo að þeir flýðu fyrir þeim. Síðan brutust þeir inn í landið og unnu nýjan sigur á Móabítum.25En borgirnar brutu þeir niður, og á alla góða akra vörpuðu þeir sínum steininum hver og fylltu þá grjóti, og allar vatnslindir stemmdu þeir og öll aldintré felldu þeir, uns eigi var annað eftir en steinmúrarnir í Kír Hareset. Umkringdu slöngvumennirnir hana og köstuðu á hana.26En er Móabskonungur sá, að hann mundi fara halloka í orustunni, tók hann með sér sjö hundruð manna, er sverð báru, til þess að brjótast út þar sem Edómkonungur var fyrir, en þeir gátu það ekki.27Þá tók hann frumgetinn son sinn, er taka átti ríki eftir hann, og fórnaði honum í brennifórn á múrnum. Kom þá mikil hryggð yfir Ísrael, og héldu þeir burt þaðan og hurfu aftur heim í land sitt.

3.4 Skattur Móabs 2Sam 8.2; Jes 16.1
3.5 Uppreisn Móabskonungs 2Kon 1.1
3.7 Þjóð mín með þjóð þinni 1Kon 22.4
3.11 Enginn spámaður? 1Kon 22.7
3.12 Hjá honum 5Mós 18.18; 1Sam 3.19; Jer 1.9; 27.18
3.15 Hönd Drottins 1Kon 18.46; Esk 1.3; 3.14; 8.1; 33.22; 37.1
3.19 Fella tré sbr 5Mós 20.19
3.25 Kír Hareset Jes 16.7,11; Jer 48.31,36
3.27 Manni fórnað Dóm 11.30-40; Mík 6.7; sbr 3Mós 18.21+