1Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal yðar? Af hverju öðru en girndum yðar, sem heyja stríð í limum yðar?2Þér girnist og fáið ekki, þér drepið og öfundið og getið þó ekki öðlast. Þér berjist og stríðið. Þér eigið ekki, af því að þér biðjið ekki.3Þér biðjið og öðlist ekki af því að þér biðjið illa, þér viljið sóa því í munaði!4Þér ótrúu, vitið þér ekki, að vinátta við heiminn er fjandskapur gegn Guði? Hver sem því vill vera vinur heimsins, hann gjörir sig að óvini Guðs.5Eða haldið þér að ritningin fari með hégóma, sem segir: Þráir Guð ekki með afbrýði andann, sem hann gaf bústað í oss?6En því meiri er náðin, sem hann gefur. Þess vegna segir ritningin: Guð stendur í gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð.7Gefið yður því Guði á vald, standið gegn djöflinum, og þá mun hann flýja yður.8Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið hjörtun flekklaus, þér tvílyndu.9Berið yður illa, syrgið og grátið. Breytið hlátri yðar í sorg og gleðinni í hryggð.10Auðmýkið yður fyrir Drottni og hann mun upphefja yður.11Talið ekki illa hver um annan, bræður. Sá sem talar illa um bróður sinn eða dæmir bróður sinn, talar illa um lögmálið og dæmir lögmálið. En ef þú dæmir lögmálið, þá ert þú ekki gjörandi lögmálsins, heldur dómari.12Einn er löggjafinn og dómarinn, sá sem getur frelsað og tortímt. En hver ert þú, sem dæmir náungann?13Heyrið, þér sem segið: Í dag eða á morgun skulum vér fara til þeirrar eða þeirrar borgar, dveljast þar eitt ár og versla þar og græða!14Þér vitið ekki hvernig líf yðar mun verða á morgun. Því að þér eruð gufa, sem sést um stutta stund en hverfur síðan.15Í stað þess ættuð þér að segja: Ef Drottinn vill, þá bæði lifum vér og þá munum vér gjöra þetta eða annað.16En nú stærið þér yður í oflátungsskap. Allt slíkt stærilæti er vont.17Hver sem því hefur vit á gott að gjöra, en gjörir það ekki, hann drýgir synd.

4.1 Stríð 1Pét 2.11 – í limum ykkar Róm 7.23
4.3 Biðja Jak 1.5; sbr 5.13-18
4.4 Þið ótrúu Hós 3.1; Matt 12.39; 16.4 – vinátta við heiminn 1Jóh 2.15 – fjandskapur gegn Guði Róm 8.7
4.5 Með afbrýði 2Mós 20.5; sbr 1Mós 6.3
4.6 Guð stendur í gegn … Okv 3.34; Matt 23.12; 1Pét 5.5
4.7 Standa gegn djöflinum Ef 6.12-13; 1Pét 5.8-9
4.8 Nálægið ykkur … Guð mun nálgast Sak 1.3; Mal 3.7 – hreinsið hendur ykkar Jes 1.16 – gerið hjörtun flekklaus sbr Jak 1.26-27; Mrk 5.8 – tvílynd sbr Matt 6.2,5,16; 15.7-8
4.10 Mun uphefja ykkur Job 5.11; 1Pét 5.6
4.11 Tala illa um sbr Jak 1.26; 3.9-10
4.12 Þú sem dæmir Róm 2.1; 14.4
4.13-14 Áform Okv 27.1; Lúk 12.18-20
4.15 Drottinn vill Post 18.21; Róm 1.10; 1Kor 4.19
4.17 Vita en gera ekki Lúk 12.47