1Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna.2En nú í lok þessara daga hefur hann til vor talað í syni sínum, sem hann setti erfingja allra hluta. Fyrir hann hefur hann líka heimana gjört.3Hann, sem er ljómi dýrðar hans og ímynd veru hans og ber allt með orði máttar síns, hreinsaði oss af syndum vorum og settist til hægri handar hátigninni á hæðum.4Hann er orðinn englunum þeim mun meiri sem hann hefur að erfðum tekið ágætara nafn en þeir.5Því við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt: Þú ert sonur minn, í dag hef ég fætt þig.Eða: Ég vil vera honum faðir, og hann skal vera mér sonur!6Og aftur er hann leiðir hinn frumgetna inn í heimsbyggðina segir hann: Og allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.7Og um englana segir hann: Hann sem gjörir engla sína að vindum og þjóna sína að eldslogum.8En um soninn: Hásæti þitt, ó Guð, er um aldir alda, og sproti réttvísinnar er sproti ríkis þíns.9Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti. Því hefur Guð, þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu fram yfir þína jafningja.10Og: Þú, Drottinn, hefur í upphafi grundvallað jörðina, og himnarnir eru verk handa þinna.11Þeir munu farast, en þú varir. Allir munu þeir fyrnast sem fat,12og þú munt þá saman vefja eins og möttul, um þá verður skipt sem klæði. En þú ert hinn sami, og þín ár taka aldrei enda.13En við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt: Set þig mér til hægri handar, uns ég gjöri óvini þína að fótskör þinni?14Eru þeir ekki allir þjónustubundnir andar, útsendir í þeirra þarfir, sem hjálpræðið eiga að erfa?

1.1 Feðurnir Róm 4.16-18; 11.17; 1Kor 10.1
1.2 Í lok þessara daga Esk 38.16; Dan 2.28; 10.14; Mík 4.1; Post 2.17; 1Kor 10.11; 1Pét 1.20 – Kristur erfingi Matt 21.38; 28.18; Slm 2.8; 1Mós 15.3-4; Sír 44.21 – fyrir hann Jóh 1.3; 1Kor 8.6; Kól 1.16; sbr Okv 8.27-31; SSal 7.21; 9.9
1.3 Ímynd Guðs 2Kor 4.4; Kól 1.15 – settist til hægri handar við Guð Slm 110.1; sbr Matt 22.44+
1.4 Nafn Ef 1.21; Fil 2.9
15a Sbr Slm 2.7 – Kristur sonur Post 13.33; Heb 5.5
1.5b Sbr 2Sam 7.14; 1Kro 17.13
1.6 Frumburðurinn Kól 1.18 – heimsbyggðin Heb 2.5
1.7 Slm 104.4
1.8-9 Slm 45.7-8
1.10-12 Slm 102.26-28
1.13 Slm 110.1; Matt 22.44+ ; Heb 10.13