1Svo bar til, þá er konungur sat í höll sinni en Drottinn hafði þá veitt honum frið fyrir öllum óvinum hans allt í kring,2að konungur sagði við Natan spámann: Sjá, ég bý í höll af sedrusviði, en örk Guðs býr undir tjalddúk.3Natan svaraði konungi: Far þú og gjör allt, sem þér er í hug, því að Drottinn er með þér.4En hina sömu nótt kom orð Drottins til Natans, svohljóðandi:5Far og seg þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn: Ætlar þú að reisa mér hús til að búa í?6Ég hefi ekki búið í húsi, síðan ég leiddi Ísraelsmenn út af Egyptalandi, allt fram á þennan dag, heldur ferðaðist ég í tjaldi og búð.7Alla þá stund, er ég hefi um farið meðal Ísraelsmanna, hefi ég þá sagt nokkurt orð í þá átt við nokkurn af dómurum Ísraels, er ég setti til að vera hirða lýðs míns, Ísraels: Hví reisið þér mér ekki hús af sedrusviði?8Nú skalt þú svo segja þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég tók þig úr haglendinu, frá hjarðmennskunni, og setti þig höfðingja yfir lýð minn, Ísrael.9Ég hefi verið með þér í öllu, sem þú hefir tekið þér fyrir hendur, og upprætt alla óvini þína fyrir þér. Ég mun gjöra nafn þitt sem nafn hinna mestu manna, sem á jörðinni eru,10og fá lýð mínum Ísrael stað og gróðursetja hann þar, svo að hann geti búið á sínum stað og geti verið öruggur framvegis. Níðingar skulu ekki þjá hann framar eins og áður,11frá því er ég setti dómara yfir lýð minn Ísrael, og ég vil veita þér frið fyrir öllum óvinum þínum. Og Drottinn boðar þér, að hann muni reisa þér hús.12Þegar ævi þín er öll og þú leggst hjá feðrum þínum, mun ég hefja son þinn eftir þig, þann er frá þér kemur, og staðfesta konungdóm hans.13Hann skal reisa hús mínu nafni, og ég mun staðfesta konungsstól hans að eilífu.14Ég vil vera honum faðir, og hann skal vera mér sonur, svo að þótt honum yfirsjáist, þá mun ég hirta hann með manna vendi og manns barna höggum,15en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka, eins og ég tók hana frá fyrirrennara þínum.16Hús þitt og ríki skal stöðugt standa fyrir mér að eilífu. Hásæti þitt skal vera óbifanlegt að eilífu.17Natan flutti Davíð öll þessi orð og sagði honum sýn þessa alla.18Þá gekk Davíð konungur inn og settist niður frammi fyrir Drottni og mælti: Hver er ég, Drottinn Guð, og hvað er hús mitt, að þú skulir hafa leitt mig til þessa?19Og þér nægði það eigi, Drottinn Guð, heldur hefir þú og fyrirheit gefið um hús þjóns þíns langt fram í aldir, og það meira að segja á mannlegan hátt, Drottinn Guð.20En hvað má Davíð enn við þig mæla? Þú þekkir sjálfur þjón þinn, Drottinn Guð!21Sakir þjóns þíns og að þínum vilja hefir þú gjört þetta, að boða þjóni þínum alla þessa miklu hluti.22Fyrir því ert þú mikill, Drottinn Guð, því að enginn er sem þú, og enginn er Guð nema þú samkvæmt öllu því, er vér höfum heyrt með eyrum vorum.23Og hvaða þjóð önnur á jörðinni jafnast við þína þjóð, Ísrael, að Guð hafi framgengið og endurleyst hana sér að eignarlýð og aflað sér frægðar? Þú gjörðir fyrir þá þessa miklu hluti og hræðilegu, að stökkva burt þjóðum og guðum þeirra undan þínu fólki, sem þú hafðir endurleyst af Egyptalandi.24Þú hefir gjört lýð þinn Ísrael að þínum lýð um aldur og ævi, og þú, Drottinn, gjörðist Guð þeirra.25Og lát þú, Drottinn Guð, fyrirheit það, er þú hefir gefið um þjón þinn og um hús hans, stöðugt standa um aldur og ævi, og gjör þú svo sem þú hefir heitið.26Þá mun nafn þitt mikið verða að eilífu og hljóða svo: Drottinn allsherjar, Guð yfir Ísrael og hús þjóns þíns Davíðs mun stöðugt standa fyrir þér.27Því að þú, Drottinn allsherjar, Guð Ísraels, hefir birt þjóni þínum þetta: Ég mun reisa þér hús. Fyrir því hafði þjónn þinn djörfung til að bera þessa bæn fram fyrir þig.28Og nú, Drottinn Guð, þú ert Guð og þín orð eru sannleikur, og þú hefir gefið þjóni þínum þetta dýrlega fyrirheit.29Virst þú nú að blessa hús þjóns þíns, svo að það sé til að eilífu fyrir þínu augliti. Því að þú, Drottinn Guð, hefir fyrirheit gefið, og fyrir blessun þína mun hús þjóns þíns blessað verða að eilífu.

7.3 Drottinn er með þér 1Sam 18.12+
7.4 Um nóttina 4Mós 22.8-13,19-20; 1Sam 9.15-17; 1Kon 14.5; 2Kon 20.4-6; Post 9.10-16
7.6 Í tjaldi 2Mós 40.21
7.8 Gættir fjár 1Sam 16.11+; Slm 78.70-71 – höfðingi yfir Ísrael 1Sam 24.21+
7.9 Útrýmt öllum óvinum þínum 5Mós 12.29
7.10 Fá Ísrael stað 2Mós 23.20; 4Mós 10.29; 14.40; 5Mós 26.9; 1Sam 12.8
7.12 Son þinn 1Kon 15.4 – konungdóm hans 1Sam 13.13; 1Kon 2.12,46
7.13 Ævinlega styðja 2Mós 15.17; Slm 9.8, 48.9; 87.5
7.14 Sonur Slm 2.7; 89.29; 1Kro 17.13; 22.10; 28.6; 2Kor 6.18; Heb 1.5
7.15 Frá Sál 1Sam 13.14; 15.28; 16.14
7.16 Ævinlega standa 1Sam 25.28; 1Kon 11.38; – hásæti þitt stöðugt standa 1Kon 2.45
7.18 Hver er ég? 1Sam 9.21+
7.22 Þú ert mikill Slm 104.1+ – nema þú 2Mós 15.11+
7.23 Sinni eigin þjóð 5Mós 4.7,33
7.24 Þjóð þinni, Guð hennar 1Sam 12.22+
7.25 Fyrirheit 5Mós 9.5; 1Sam 1.23; 1Kon 2.4
7.26 Guð Ísraels 1Kon 18.36 – jafnan standa 2Sam 7.16
7.27 Þessarar bónar 1Kon 8.28,29,54
7.28 Orð þín rætast Jóh 17.17
7.29 Fyrir blessun þína Slm 21.4,7; 45.3