1Og Drottinn mælti til Jobs og sagði:2Vill ámælismaðurinn þrátta við hinn Almáttka? Sá er sakir ber á Guð, svari hann þessu!3Þá svaraði Job Drottni og sagði:4Sjá, ég er of lítilmótlegur, hverju á ég að svara þér? Ég legg hönd mína á munninn.5Einu sinni hefi ég talað, og endurtek það eigi, tvisvar, og gjöri það ekki oftar.6á svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði:7Gyrð lendar þínar eins og maður. Ég mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig.8Ætlar þú jafnvel að gjöra rétt minn að engu, dæma mig sekan, til þess að þú standir réttlættur?9Hefir þú þá armlegg eins og Guð, og getur þú þrumað með slíkri rödd sem hann?10Skrýð þig vegsemd og tign, íklæð þig dýrð og ljóma!11Lát úthellast strauma reiði þinnar og varpa til jarðar með einu tilliti sérhverjum dramblátum.12Auðmýk þú sérhvern dramblátan með einu tilliti, og troð þú hina óguðlegu niður þar sem þeir standa.13Byrg þú þá í moldu alla saman, loka andlit þeirra inni í myrkri,14þá skal ég líka lofa þig, fyrir það að hægri hönd þín veitir þér fulltingi.15Sjá, nykurinn sem ég hefi skapað eins og þig, hann etur gras eins og naut.16Sjá, kraftur hans er í lendum hans og afl hans í kviðvöðvunum.17Hann sperrir upp stertinn eins og sedrustré, lærsinar hans eru ofnar saman.18Leggir hans eru eirpípur, beinin eins og járnstafur.19Hann er frumgróði Guðs verka, sá er skóp hann, gaf honum sverð hans.20Fjöllin láta honum grasbeit í té, og þar leika sér dýr merkurinnar.21Hann liggur undir lótusrunnum í skjóli við reyr og sef.22Lótusrunnarnir breiða skugga yfir hann, lækjarpílviðirnir lykja um hann.23Sjá, þegar vöxtur kemur í ána, skelfist hann ekki, hann er óhultur, þótt fljót belji á skolti hans.24Getur nokkur veitt hann með því að ganga framan að honum, getur nokkur dregið taug gegnum nasir hans?

40.2 Deila við Guð Job 9.3+ – hann svari Job 38.3
40.4 Léttvægur 1Mós 18.27-32; Jes 6.5 – hönd á munn Job 21.5+
40.6 Úr storminum Job 9.17+
40.7 Gyrtu lendar þínar Job 38.3
40.8 Réttlættur Job 4.17+
40.9 Armur Guðs Slm 89.10-14; Lúk 1.51 – þruman, rödd Guðs Job 37.2-5
40.10 Skrýddu þig Slm 93.1; 104.1-2
40.11 Skálar reiði þinnar Nah 1.6 – niðurlægðu Jes 2.11-18; Okv 29.23
40.13 Áleyndum stað Jes 14.9-15
40.14 Lofa þig sbr Slm 7.18; 18.50 – hægri hönd þín … Slm 138.7
40.15 Eins og þig 1Mós 2.7,19; Préd 3.19-21
40.19 Frumsköpun Guðs Okv 8.22 – sverð hans 1Mós 3.24
40.21 Sef Slm 68.31
40.25 Krókódíll Job 3.8+ ; 26.13; sbr Esk 29.3-5; 32.2-8
40.29 Eins og smáfugl Matt 10.29-31; Lúk 12.6-7
40.30 Skipta meðal smásala sbr Esk 32.4-5