1Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum, þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum.2Þegar þú gefur ölmusu, skaltu ekki láta þeyta lúður fyrir þér, eins og hræsnarar gjöra í samkunduhúsum og á strætum til þess að hljóta lof af mönnum. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.3En þegar þú gefur ölmusu, viti vinstri hönd þín ekki, hvað sú hægri gjörir,4svo að ölmusa þín sé í leynum, og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.5Og þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir. Þeir vilja helst standa og biðjast fyrir í samkundum og á gatnamótum, til þess að menn sjái þá. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.6En nær þú biðst fyrir, skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn, sem er í leynum. Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.7Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja. Þeir hyggja, að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína.8Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann.9En þannig skuluð þér biðja: Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn,10til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.11Gef oss í dag vort daglegt brauð.12Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.13Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.14Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður.15En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.16Þegar þér fastið, þá verið ekki daprir í bragði, eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín, svo að engum dyljist, að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.17En nær þú fastar, þá smyr höfuð þitt og þvo andlit þitt,18svo að menn verði ekki varir við, að þú fastar, heldur faðir þinn, sem er í leynum. Og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.19Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela.20Safnið yður heldur fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela.21Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.22Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt heilt, mun allur líkami þinn bjartur.23En sé auga þitt spillt, verður allur líkami þinn dimmur. Ef nú ljósið í þér er myrkur, hvílíkt verður þá myrkrið.24Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.25Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin?26Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim?27Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?28Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæði? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna.29En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.30Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlitlir!31Segið því ekki áhyggjufullir: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?32Allt þetta stunda heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa.33En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.34Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.

6.1 Til sýnis Matt 6.5,16; 23.5 – laun Matt 5.46+
6.2 Hræsnarar Matt 6.5,16; 7.5; 15.7; 22.18; 23.13; 24.51; Lúk 6.42; 12.56; 13.15
6.5-15 Hlst. Lúk 11.2-4
6.6 Herbergi þitt Jes 26.20; Dan 6.11 – loka dyrum 2Kon 4.33
6.7 Fánýt mælgi heiðingja 1Kon 18.27; Jes 1.15; Sír 7.14
6.8 Faðir yðar veit Matt 6.32; Lúk 12.30
6.9 Faðir á himnum Matt 5.16,45; 6.1,9; 7.11; 12.50; 16.17; 18.14; 23.9; Mrk 11.25; Lúk 11.13 – helgist þitt nafn 3Mós 22.32; 5Mós 32.51; Esk 28.22,25; 36.23; sbr Jóh 12.28
6.10 Ríki þitt Matt 3.2+ – Guðs ríki Matt 6.33; 12.28; 19.24; 21.31,43; Mrk 1.15; 4.11,26,30; 9.1,47; 10.14,15,23-25; 12.34; 14.25; 15.43 og hlst.; Jóh 3.3,5; Post 1.3; 8.12; 14.22; 19.8; 28.23,31; Róm 14.17; 1Kor 4.20; 6.9; 15.24,50; Gal 5.21; Kól 4.11; 1Þess 2.12; 2Þess 1.5; Jak 2.5; Opb 12.10 – vilji þinn Jes 44.28; Esk 36.27; Matt 7.21,24-27; 12.50; 18.14; 21.31; 26.42 og hlst.; Jóh 7.17; 9.31; Ef 1.5,9
6.11 Daglegt brauð Matt 6.34
6.12 Uppgjöf skuldar Matt 18.24-27 – svo sem vér og Matt 5.7; 6.14-15; 18.28-35; Mrk 11.25
6.13 Freisting Matt 4.1-10 og hlst. 26.41 og hlst.; 1Kor 7.5; 10.13; 1Þess 3.5; 1Tím 6.9; Jak 1.13; 1Pét 5.5-9; Opb 2.10 – frá illu / hinum vonda Matt 5.37; 13.19,38; Jóh 17.15; 2Þess 3.3
6.14 Fyrirgefa Ef 4.32; Kól 3.13
6.15 Ef … Matt 18.35
6.16 Fasta 2Mós 34.28; Dan 9.3; Jl 2.12; Matt 4.2; 9.14-17; 17.21; Post 13.2-3; 14.23 – sýnast fyrir mönnum Matt 6.5; 23.5
6.19 Mölur Jak 5.2-3 – brjótast inn Matt 24.43
6.20 Fjársjóður á himni Matt 19.21 og hlst.; Kól 3.1-2
6.22-23 Hlst. Lúk 11.34-36
6.23 Spillt auga Matt 20.15; Mrk 7.22
6.24-34 Hlst. Lúk 16.19; 12.22-31
6.24 Peningar, mammón Lúk 16.9
6.25 Ekki áhyggjufull Matt 6.11; 7.7-11; 16.5-12; Mrk 13.15; Fil 4.6; 1Pét 5.7
6.26 Fremri fuglunum Matt 10.31; Lúk 12.7,24
6.29 Salómon 1Kon 10
6.30 Þér trúlítil Matt 8.26; 14.31; 16.8; 17.20; Lúk 12.28
6.32 Faðir yðar veit Matt 6.8; Lúk 12.30
6.34 Morgundagurinn 2Mós 16.4-5,19-20