1Þessu næst kallaði hann hárri röddu í eyru mín: Refsingar borgarinnar nálgast!2Þá komu sex menn frá efra hliðinu, sem snýr í norður, og hafði hver þeirra eyðingarverkfæri í hendi sér, og meðal þeirra var einn maður, sem var líni klæddur og hafði skriffæri við síðu sér. Þeir komu og námu staðar hjá eiraltarinu.3Dýrð Ísraels Guðs hafði hafið sig frá kerúbunum, þar sem hún hafði verið, yfir að þröskuldi hússins. Og hann kallaði á línklædda manninn, sem hafði skriffærin við síðu sér.4Og Drottinn sagði við hann: Gakk þú mitt í gegnum borgina, mitt í gegnum Jerúsalem, og set merki á enni þeirra manna, sem andvarpa og kveina yfir öllum þeim svívirðingum, sem framdar eru inni í henni.5En til hinna mælti hann að mér áheyrandi: Farið á eftir honum um borgina og höggvið niður, lítið engan vægðarauga og sýnið enga meðaumkun.6Öldunga og æskumenn, meyjar og börn og konur skuluð þér brytja niður, en engan mann skuluð þér snerta, sem merkið er á. Og takið fyrst til hjá helgidómi mínum! Og þeir tóku fyrst til á öldungum þeim, sem voru fyrir framan musterið.7Og hann sagði við þá: Horfið ekki í að saurga musterið og fyllið strætin vegnum mönnum. Gangið nú út! Þeir gengu þá út og hjuggu niður mannfólkið í borginni.8Meðan þeir brytjuðu niður, féll ég fram á ásjónu mína, kallaði og sagði: Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels, þar sem þú eys út reiði þinni yfir Jerúsalem?9Þá sagði hann við mig: Misgjörð Ísraelsmanna og Júdamanna er afskaplega mikil, og landið er fullt af blóðugu ranglæti og borgin er full af ofbeldisverkum, því að þeir segja: Drottinn hefir yfirgefið landið og Drottinn sér það ekki.10Fyrir því skal ég heldur ekki líta þá vægðarauga og enga meðaumkun sýna. Ég læt athæfi þeirra þeim sjálfum í koll koma.11Þá kom línklæddi maðurinn, sem hafði skriffærin við síðu sér, aftur og sagði: Ég hefi gjört eins og þú bauðst mér.

9.3 Dýrð Esk 1.28+
9.4 Tákn 2Mós 12.7,13; Opb 7.2-4; 9.4
9.6 Fyrst hjá helgidóminum 1Pét 4.17; sbr Jer 25.29
9.8 Sem eftir eru Jes 4.3 – meðalganga spámannsins Esk 11.13; Jes 37.4; Jer 27.18; Am 7.2-5; sbr 2Mós 32.11+
9.9 Drottinn sér ekkert Esk 8.12; Slm 10.11; 94.7; sbr Slm 73.11; Job 22.13