1Englarnir tveir komu um kveldið til Sódómu. Sat Lot í borgarhliði. Og er hann sá þá, stóð hann upp í móti þeim og hneigði ásjónu sína til jarðar.2Því næst mælti hann: Heyrið, herrar mínir, sýnið lítillæti og komið inn í hús þjóns ykkar, og verið hér í nótt og þvoið fætur ykkar. Getið þið þá risið árla á morgun og farið leiðar ykkar. En þeir sögðu: Nei, við ætlum að hafast við á strætinu í nótt.3Þá lagði hann mikið að þeim, uns þeir fóru inn til hans og gengu inn í hús hans. Og hann bjó þeim máltíð og bakaði ósýrt brauð, og þeir neyttu.4En áður en þeir gengu til hvíldar, slógu borgarmenn, mennirnir í Sódómu, hring um húsið, bæði ungir og gamlir, allur múgurinn hvaðanæva.5Og þeir kölluðu á Lot og sögðu við hann: Hvar eru mennirnir, sem komu til þín í kveld? Leið þú þá út til vor, að vér megum kenna þeirra.6Lot gekk þá út til þeirra, út fyrir dyrnar, og lokaði hurðinni að baki sér.7Og hann sagði: Fyrir hvern mun, bræður mínir, fremjið ekki óhæfu.8Sjá, ég á tvær dætur, sem ekki hafa karlmanns kennt. Ég skal leiða þær út til yðar, gjörið við þær sem yður gott þykir. Aðeins megið þér ekkert gjöra þessum mönnum, úr því að þeir eru komnir undir skugga þaks míns.9Þá æptu þeir: Haf þig á burt! og sögðu: Þessi náungi er hingað kominn sem útlendingur og vill nú stöðugt vera að siða oss. Nú skulum vér leika þig enn verr en þá. Og þeir gjörðu ákaflega þröng að honum, að Lot, og gengu nær til að brjóta upp dyrnar.10Þá seildust mennirnir út og drógu Lot til sín inn í húsið og lokuðu dyrunum.11En þá, sem voru úti fyrir dyrum hússins, slógu þeir með blindu, smáa og stóra, svo að þeir urðu að gefast upp við að finna dyrnar.12Mennirnir sögðu við Lot: Átt þú hér nokkra fleiri þér nákomna? Tengdasyni, syni, dætur? Alla í borginni, sem þér eru áhangandi, skalt þú hafa á burt héðan,13því að við munum eyða þennan stað, af því að hrópið yfir þeim fyrir Drottni er mikið, og Drottinn hefir sent okkur til að eyða borgina.14Þá gekk Lot út og talaði við tengdasyni sína, sem ætluðu að ganga að eiga dætur hans, og mælti: Standið upp skjótt og farið úr þessum stað, því að Drottinn mun eyða borgina. En tengdasynir hans hugðu, að hann væri að gjöra að gamni sínu.15En er dagur rann, ráku englarnir eftir Lot og sögðu: Statt þú upp skjótt! Tak þú konu þína og báðar dætur þínar, sem hjá þér eru, svo að þú fyrirfarist ekki vegna syndar borgarinnar.16En er hann hikaði við, tóku mennirnir í hönd honum og í hönd konu hans og í hönd báðum dætrum hans, af því að Drottinn vildi þyrma honum, og leiddu hann út og létu hann út fyrir borgina.17Og er þeir höfðu leitt þau út, sögðu þeir: Forða þér, líf þitt liggur við! Lít ekki aftur fyrir þig og nem hvergi staðar á öllu sléttlendinu, forða þér á fjöll upp, að þú farist eigi.18Þá sagði Lot við þá: Æ nei, herra!19Sjá, þjónn þinn hefir fundið náð í augum þínum, og þú hefir sýnt á mér mikla miskunn að láta mig halda lífi. En ég get ekki forðað mér á fjöll upp, ógæfan getur komið yfir mig og ég dáið.20Sjá, þarna er borg í nánd, þangað gæti ég flúið, og hún er lítil. Ég vil forða mér þangað er hún ekki lítil? og ég mun halda lífi.21Drottinn sagði við hann: Sjá, ég hefi einnig veitt þér þessa bæn, að leggja ekki í eyði borgina, sem þú talaðir um.22Flýt þér! Forða þér þangað, því að ég get ekkert gjört, fyrr en þú kemst þangað. Vegna þessa nefna menn borgina Sóar.23Sólin var runnin upp yfir jörðina, er Lot kom til Sóar.24Og Drottinn lét rigna yfir Sódómu og Gómorru brennisteini og eldi frá Drottni, af himni.25Og hann gjöreyddi þessar borgir og allt sléttlendið og alla íbúa borganna og gróður jarðarinnar.26En kona hans leit við að baki honum og varð að saltstöpli.27Abraham gekk snemma morguns þangað, er hann hafði staðið frammi fyrir Drottni.28Og hann horfði niður á Sódómu og Gómorru og yfir allt sléttlendið og sá, að reyk lagði upp af jörðinni, því líkast sem reykur úr ofni.29En er Guð eyddi borgirnar á sléttlendinu, minntist Guð Abrahams og leiddi Lot út úr eyðingunni, þá er hann lagði í eyði borgirnar, sem Lot hafði búið í.30Lot fór frá Sóar upp á fjöllin og staðnæmdist þar og báðar dætur hans með honum, því að hann óttaðist að vera kyrr í Sóar, og hann hafðist við í helli, hann og báðar dætur hans.31Þá sagði hin eldri við hina yngri: Faðir okkar er gamall, og enginn karlmaður er eftir á jörðinni, sem samfarir megi við okkur hafa, eins og siðvenja er til alls staðar á jörðinni.32Kom þú, við skulum gefa föður okkar vín að drekka og leggjast hjá honum, að við megum kveikja kyn af föður okkar.33Síðan gáfu þær föður sínum vín að drekka þá nótt, og hin eldri fór og lagðist hjá föður sínum. En hann varð hvorki var við, að hún lagðist niður, né að hún reis á fætur.34Og morguninn eftir sagði hin eldri við hina yngri: Sjá, í nótt lá ég hjá föður mínum. Við skulum nú einnig í nótt gefa honum vín að drekka. Far þú síðan inn og leggst hjá honum, að við megum kveikja kyn af föður okkar.35Síðan gáfu þær föður sínum vín að drekka einnig þá nótt, og hin yngri tók sig til og lagðist hjá honum. En hann varð hvorki var við, að hún lagðist niður, né að hún reis á fætur.36Þannig urðu báðar dætur Lots þungaðar af völdum föður síns.37Hin eldri ól son og nefndi hann Móab. Hann er ættfaðir Móabíta allt til þessa dags.38Og hin yngri ól einnig son og nefndi hann Ben-Ammí. Hann er ættfaðir Ammóníta allt til þessa dags.

19.1 Sódóma 1Mós 18.16+
19.2-3 Gestisni 1Mós 18.4-5+
19.4 Leið út Dóm 19.22
19.5 Kenna þeirra 3Mós 18.22+
19.8 Tvær dætur Dóm 19.24-25
19.11 Blinda 2Kon 6.18; SSal 19.17; Post 13.11
19.13 Tortíma þessum stað 2Pét 2.6-8; Júd 7
19.17 Forðið ykkur Matt 24.16
19.24 Brennisteinn og eldur 5Mós 29.23; Esk 38.22; Slm 11.6; Lúk 17.29; Opb 14.10; 19.20; 20.10; 21.8
19.26 Kona Lots SSal 10.7; Lúk 17.32
19.33 Lagðist hjá föður sínum 3Mós 18.6-7