1Sérlyndur maður fer að sínum munum, hann illskast við öllu, sem hyggilegt er.2Heimskinginn hefir engar mætur á hyggindum, heldur á því að gjöra kunnar hugsanir sínar.3Þar sem hinn óguðlegi kemur, þar kemur og fyrirlitning, og með smáninni kemur skömm.4Djúp vötn eru orð af manns munni, lind viskunnar er sem rennandi lækur.5Það er ekki rétt að draga taum hins óguðlega, að halla rétti hins saklausa í dómi.6Varir heimskingjans valda deilum, og munnur hans kallar á högg.7Munnur heimskingjans verður honum að tjóni, og varir hans eru snara fyrir líf hans.8Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.9Sá sem tómlátur er í verki sínu, er skilgetinn bróðir eyðsluseggsins.10Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er þar óhultur.11Auður ríks manns er honum öflugt vígi og ókleifur múrveggur í sjálfs hans ímyndun.12Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar.13Svari einhver áður en hann heyrir, þá er honum það flónska og skömm.14Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans, en dapurt geð, hver fær borið það?15Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar, og eyra hinna vitru leitar þekkingar.16Gjöf sem maður gefur, rýmir til fyrir honum og leiðir hann fram fyrir stórmenni.17Hinn fyrri sýnist hafa á réttu að standa í þrætumáli sínu, en síðan kemur mótpartur hans og rannsakar röksemdir hans.18Hlutkestið gjörir enda á deilum og sker úr milli sterkra.19Erfiðara er að ávinna svikinn bróður en að vinna rammbyggða borg, og deilur slíkra manna eru sem slagbrandar fyrir hallardyrum.20Kviður mannsins mettast af ávexti munns hans, af gróðri varanna mettast hann.21Dauði og líf eru á tungunnar valdi, og sá sem hefir taum á henni, mun eta ávöxt hennar.22Sá sem eignast konu, eignast gersemi, og hlýtur náðargjöf af Drottni.23Hinn fátæki mælir bljúgum bænarorðum, en hinn ríki svarar með hörku.24Að vera allra vinur er til tjóns, en til er ástvinur, sem er tryggari en bróðir.

18.5 Halla réttinum Slm 35.11; sbr Okv 24.23-24+
18.6 Orð heimskingjans Okv 13.3+
18.10 Drottinn, turn Slm 124.8+
18.16 Múta Okv 17.8+
18.21 Vald tungunnar Okv 16.27+
18.22 Konan er gersemi Okv 19.14; 31.10,11; 1Mós 2.18; Sír 26.1-4; sbr Okv 19.13+