1Þá komu allir hershöfðingjarnir og meðal þeirra Jóhanan Kareason og Asarja Hósajason og allur lýðurinn, bæði smáir og stórir,2og sögðu við Jeremía spámann: Veit oss auðmjúka bæn vora og bið þú til Drottins, Guðs þíns, fyrir oss, fyrir öllum þessum leifum, sem vér erum, því að fáir erum vér eftir orðnir af mörgum, eins og þú sjálfur sér á oss.3Bið þú þess, að Drottinn, Guð þinn, gjöri oss kunnan þann veg, er vér eigum að fara, og það, sem vér eigum að gjöra.4En Jeremía spámaður sagði við þá: Gott og vel! Ég skal biðja til Drottins, Guðs yðar, samkvæmt tilmælum yðar, og allt það, er Drottinn svarar yður, það skal ég segja yður. Engu skal ég leyna yður.5Og þeir sögðu við Jeremía: Drottinn sé sannur og áreiðanlegur vottur gegn oss! Vér munum með öllu fara eftir þeim orðum, er Drottinn, Guð þinn, sendir þig með til vor,6hvort sem það verður gott eða illt. Skipun Drottins, Guðs vors, sem vér sendum þig til, viljum vér hlýða, til þess að oss megi vel vegna, er vér hlýðum skipun Drottins, Guðs vors.7Og að tíu dögum liðnum kom orð Drottins til Jeremía,8og hann kallaði Jóhanan Kareason og alla hershöfðingjana saman, sem með honum voru, og allan lýðinn, bæði smáa og stóra,9og sagði við þá: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð, er þér senduð mig til, að ég bæri fram fyrir hann auðmjúka bæn yðar:10Ef þér búið kyrrir í þessu landi, vil ég uppbyggja yður og ekki rífa niður, og ég vil gróðursetja yður og ekki uppræta, því að mig iðrar hins illa, er ég hefi gjört yður.11Óttist ekki Babelkonung, sem þér nú óttist, óttist hann ekki segir Drottinn því að ég er með yður til þess að hjálpa yður og til þess að frelsa yður undan hans valdi.12Og ég vil veita yður þá miskunn, að hann miskunni yður og láti yður snúa aftur heim í land yðar.13En ef þér segið: Vér viljum eigi búa kyrrir í þessu landi! og hlýðið eigi skipun Drottins, Guðs yðar,14en segið: Nei, heldur viljum vér fara til Egyptalands, svo að vér þurfum ekki að sjá stríð, né heyra lúðurþyt, né hungra eftir brauði, og þar viljum vér setjast að!15þá heyrið nú þess vegna orð Drottins, þér leifar Júdamanna: Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Ef þér eruð alvarlega að hugsa um að fara til Egyptalands og komist þangað, til þess að dveljast þar sem flóttamenn,16þá skal sverðið, sem þér nú óttist, ná yður þar, í Egyptalandi, og hungrið, sem þér nú hræðist, skal elta yður til Egyptalands, og þar skuluð þér deyja.17Og allir þeir menn, sem eru að hugsa um að fara til Egyptalands, til þess að dveljast þar sem flóttamenn, skulu deyja fyrir sverði og af hungri og drepsótt, og enginn þeirra skal sleppa við né komast undan ógæfu þeirri, er ég leiði yfir þá.18Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Eins og reiði minni og heift var úthellt yfir Jerúsalembúa, svo skal og heift minni úthellt verða yfir yður, er þér farið til Egyptalands, og þér skuluð verða að formæling, að skelfing, að bölbænarformála og að háðung, og eigi framar sjá þennan stað.19Drottinn hefir svo til yðar talað, þér leifar Júdamanna: Farið eigi til Egyptalands! Vita skuluð þér, að nú hefi ég varað yður við.20Því að þér dróguð sjálfa yður á tálar, er þér senduð mig til Drottins, Guðs yðar, og sögðuð: Bið til Drottins, Guðs vors, fyrir oss og seg oss nákvæmlega svo frá sem Drottinn, Guð vor, mælir, og vér skulum gjöra það!21Nú hefi ég sagt yður frá því í dag, en þér hafið ekki hlýtt skipun Drottins, Guðs yðar, viðvíkjandi öllu því, er hann hefir sent mig með til yðar.22Og vita skuluð þér nú, að þér munuð deyja fyrir sverði, af hungri og drepsótt á þeim stað, þangað sem yður lystir að fara, til þess að dveljast þar sem flóttamenn.

42.1 Jóhanan Jer 40.8,13
42.2 Biðja fyrir okkur Jer 7.16+ – fáir eftir 5Mós 28.62; sbr VDan 3.14
42.5 Drottinn er vottur 1Mós 31.50; Dóm 11.10; 1Sam 12.5
42.6 Hlýða og farnast vel Jer 38.20; sbr 6.14+
42.7 Orð Drottins Jer 28.11-12
42.10 Gróðursetja Jer 1.10+ – ég iðrast sbr Jer 18.8
42.11 Með yður Jer 1.8; 15.20; 30.10 – hjálpa Jer 20.13
42.13 Óhlýðnist Jer 42.21; 43.4,7; 44.23
42.14 Við viljum Jer 2.31 – hornablástur Jer 4.5+
42.17 Sverð, hungur, drepsótt Jer 14.12+ – enginn kemst undan Jer 11.23; 44.14; Hlj 2.22
42.18 Reiði og heift Jer 7.20+ – bölbænir Jer 24.9+
42.21 Ekki hlýtt Jer 43.4