1Ísraelsmenn höfðu unnið eið í Mispa og sagt: Enginn af oss skal gifta Benjamíníta dóttur sína.2Og lýðurinn fór til Betel, og þeir dvöldu þar fram á kveld fyrir augliti Guðs og hófu þar mikið harmakvein3og sögðu: Drottinn, Ísraels Guð! Hví hefir þetta við borið í Ísrael, að nú skuli vanta eina ættkvíslina í Ísrael?4Morguninn eftir reis lýðurinn árla og reisti þar altari og fórnaði brennifórnum og heillafórnum.5Því næst sögðu Ísraelsmenn: Mun nokkur vera sá af öllum ættkvíslum Ísraels, er ekki hafi komið upp hingað til Drottins með söfnuðinum? Því að það hafði verið föstum svardögum bundið, að hver sá, er ekki kæmi upp til Drottins í Mispa, sá hinn sami skyldi lífi týna.6Og Ísraelsmenn tók sárt til Benjamíns bróður síns og þeir sögðu: Nú er ein ættkvísl upphöggvin úr Ísrael!7Hvernig eigum vér að fara að því að útvega þeim konur, sem eftir eru, þar eð vér höfum unnið Drottni eið að því að gifta þeim eigi neina af dætrum vorum?8Þá sögðu þeir: Er nokkur sá af ættkvíslum Ísraels, er ekki hafi farið upp til Drottins í Mispa? Og sjá, frá Jabes í Gíleað hafði enginn komið í herbúðirnar til samkomunnar.9Fór nú fram liðskönnun, og sjá, enginn var þar af íbúum Jabes í Gíleað.10Þá sendi lýðurinn þangað tólf þúsundir hraustra manna og lagði svo fyrir þá: Farið og fellið íbúana í Jabes í Gíleað með sverðseggjum, ásamt konum og börnum.11En þannig skuluð þér að fara: Alla karlmenn og allar konur, er samræði hafa átt við mann, skuluð þér banni helga, en meyjar skuluð þér láta lífi halda. Þeir gjörðu svo.12Og þeir fundu meðal íbúanna í Jabes í Gíleað fjögur hundruð meyjar, er eigi höfðu samræði átt við mann, og þeir fóru með þær til herbúðanna í Síló, sem er í Kanaanlandi.13Þá sendi allur lýðurinn og lét tala við Benjamíns sonu, þá er voru hjá Rimmónkletti, og bauð þeim frið.14Þá hurfu Benjamínítar aftur og þeir gáfu þeim konur þær, er þeir höfðu látið lífi halda af konunum í Jabes í Gíleað. Þær voru þó ekki nógu margar handa þeim.15Lýðinn tók sárt til Benjamíns, því að Drottinn hafði höggvið skarð í ættkvíslir Ísraels.16Þá sögðu öldungar lýðsins: Hvernig eigum vér að fara að því að útvega þeim, sem eftir eru, konur, því að konur hafa verið gjöreyddar úr Benjamín?17Og þeir sögðu: Hvernig mega þeir af Benjamínítum, er undan hafa komist, halda arfleifð sinni, svo að eigi verði ættkvísl afmáð úr Ísrael?18En ekki getum vér gift þeim neina af dætrum vorum. Því að Ísraelsmenn höfðu svarið: Bölvaður sé sá, sem gefur Benjamín konu!19Þá sögðu þeir: Sjá, hátíð Drottins er árlega haldin í Síló, sem liggur fyrir norðan Betel, fyrir austan þjóðveginn, sem liggur frá Betel upp til Síkem, og fyrir sunnan Lebóna.20Og þeir lögðu svo fyrir Benjamíns sonu: Farið og liggið í leyni í víngörðunum.21Og er þér sjáið Sílódætur ganga út til dansleika, þá skuluð þér spretta upp úr víngörðunum og ræna yður sinni konunni hver af Sílódætrum. Farið síðan heim í Benjamínsland.22En þegar feður þeirra eða bræður koma að kæra þetta fyrir oss, þá skulum vér segja við þá: Gefið oss þær, því að vér fengum engar konur í stríðinu. Þér hafið ekki heldur gefið þeim þær. Ef svo væri, þá væruð þér sekir.23Benjamíns synir gjörðu svo og tóku sér konur, eins og þeir voru margir til, meðal dansmeyjanna, sem þeir rændu. Síðan fóru þeir og hurfu aftur til óðals síns og reistu að nýju borgirnar og bjuggu í þeim.24Þá fóru og Ísraelsmenn þaðan, hver til sinnar kynkvíslar og sinnar ættar, og þeir héldu þaðan hver til óðals síns.25Í þá daga var enginn konungur í Ísrael. Hver maður gjörði það, sem honum vel líkaði.

21.1 Mispa Dóm 20.1+
21.2 Harmakvein Dóm 20.23,26
21.4 Fórnir Dóm 20.26
21.5 Hver sá, sem … Dóm 5.15-17,23; 12.3
21.6 Tók sárt til Benjamíns v.15
21.8 Jabes í Gíleað 1Sam 11; 31.11-13
21.10-12 Refsileiðangur 4Mós 31.5-6,15-18
21.10 Fólkið Dóm 20.1+
21.11 Meyjar skulu lífi halda sbr 5Mós 20.10-20; 21.10-14
21.13 Rimmónklettur Dóm 20.45-47
21.17 Komist undan Jes 4.3+
21.18 Bölvaður sé sá … v.1,7
21.19 Í Síló Dóm 18.31+
21.21 Til dansleiks Dóm 11.34; 2Mós 15.20; 32.17-19; 1Sam 18.6; 2Sam 6.5,14-15; 1Kon 18.26; Slm 150.4
21.22 Feður og bræður 1Mós 34.5-31; 2Sam 13.20-29
21.23 Óðal 4Mós 18.20; 26.62; Jós 13.23; 19.51
21.25 Enginn konungur í Ísrael Dóm 17.6+