1Og ég sá, er lambið lauk upp einu af innsiglunum sjö, og ég heyrði eina af verunum fjórum segja eins og með þrumuraust: Kom!2Og ég sá, og sjá: Hvítur hestur, og sá sem á honum sat hafði boga, og honum var fengin kóróna og hann fór út sigrandi og til þess að sigra.3Þegar lambið lauk upp öðru innsiglinu, heyrði ég aðra veruna segja: Kom!4Og út gekk annar hestur, rauður, og þeim sem á honum sat var gefið vald að taka burt friðinn af jörðunni, svo að menn brytjuðu hverjir aðra niður. Og honum var fengið sverð mikið.5Þegar lambið lauk upp þriðja innsiglinu, heyrði ég þriðju veruna segja: Kom! Og ég sá, og sjá: Svartur hestur, og sá er á honum sat hafði vog í hendi sér.6Og mitt á meðal veranna fjögurra heyrði ég eins konar rödd er sagði: Mælir hveitis fyrir daglaun og þrír mælar byggs fyrir daglaun, en eigi skalt þú spilla olíunni og víninu.7Þegar lambið lauk upp fjórða innsiglinu, heyrði ég rödd fjórðu verunnar, er sagði: Kom!8Og ég sá, og sjá: Bleikur hestur, og sá er á honum sat, hann hét Dauði, og Hel var í för með honum. Þeim var gefið vald yfir fjórða hluta jarðarinnar, til þess að deyða með sverði, með hungri og drepsótt og láta menn farast fyrir villidýrum jarðarinnar.9Þegar lambið lauk upp fimmta innsiglinu, sá ég undir altarinu sálir þeirra manna, sem drepnir höfðu verið fyrir sakir Guðs orðs og fyrir sakir vitnisburðarins, sem þeir höfðu.10Og þeir hrópuðu hárri röddu og sögðu: Hversu lengi ætlar þú, Herra, þú heilagi og sanni, að draga það að dæma og hefna blóðs vors á byggjendum jarðarinnar?11Og þeim var fengin, hverjum og einum, hvít skikkja. Og þeim var sagt, að þeir skyldu enn hvílast litla hríð, þangað til samþjónar þeirra og bræður þeirra, sem áttu að deyðast eins og sjálfir þeir, einnig fylltu töluna.12Og ég sá, er lambið lauk upp sjötta innsiglinu. Og mikill landskjálfti varð, og sólin varð svört sem hærusekkur, og allt tunglið varð sem blóð.13Og stjörnur himinsins hröpuðu niður á jörðina eins og þegar fíkjutré, skekið af stormvindi, fellir haustaldin sín.14Og himinninn sviptist burt eins og þegar bókfell vefst saman, og hvert fjall og ey færðist úr stað sínum.15Og konungar jarðarinnar og höfðingjarnir og herforingjarnir og auðmennirnir, mektarmennirnir og hver þræll og þegn fólu sig í hellum og í hömrum fjalla.16„Og þeir segja við fjöllin og hamrana: Hrynjið yfir oss og felið oss fyrir ásjónu hans, sem í hásætinu situr, og fyrir reiði lambsins;“17því að kominn er dagurinn, hinn mikli dagur reiði þeirra, og hver mun geta staðist?

6.2-5 Riddararnir fjórir Sak 1.8; 6.1-8; sbr Opb 19.11
6.8 Fjórar plágur Esk 14.21; Jer 14.12; 15.2-3; Esk 5.16-17; 7.15; 14.12-21
6.9 Píslarvottar Opb 7.9-17; 16.6; 20.4
6.10 Drottinn hefnir þjóna sinna 5Mós 32.43; 2Kon 9.7; Sak 1.12; Slm 79.10; Lúk 18.7; Opb 11.18; 18.20; 19.2
6.11 Hvít skikkja Opb 3.4+
6.12-14 Tákn endalokanna Jes 13.10-13; 34.4; Esk 32.7-8; Am 8.9; Jl 2.10; 3.3-4; sbr Post 2.17-20; Matt 24.29 og hlst.; Opb 8.12; 16.20; 20.11
6.16 Hrynjið yfir oss Jes 2.19-21; Hós 10.8; Lúk 23.30; sbr Opb 9.6
6.17 Dagur reiðinnar Slm 110.5; Jl 2.1,11; 3.4; Sef 2.2-3; Róm 2.5