1Þá spurði æðsti presturinn: Er þessu svo farið?2Stefán svaraði: Heyrið mig, bræður og feður. Guð dýrðarinnar birtist föður vorum, Abraham, er hann var enn í Mesópótamíu, áður en hann settist að í Haran,3og sagði við hann: Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu til landsins, sem ég mun vísa þér á.4Þá fór hann burt úr Kaldealandi og settist að í Haran. En eftir lát föður hans leiddi Guð hann þaðan til þessa lands, sem þér nú byggið.5Ekki gaf hann honum óðal hér, ekki eitt fótmál. En hann hét honum að gefa honum landið til eignar og niðjum hans eftir hann, þótt hann væri enn barnlaus.6Guð sagði, að niðjar hans mundu búa sem útlendingar í ókunnu landi og verða þjáðir og þrælkaðir í fjögur hundruð ár.7En þjóðina, sem þrælkar þá, mun ég dæma, sagði Guð, og eftir það munu þeir fara þaðan og þjóna mér á þessum stað.8Þá gaf hann honum sáttmála umskurnarinnar. Síðan gat Abraham Ísak og umskar hann á áttunda degi, og Ísak gat Jakob og Jakob ættfeðurna tólf.9Og ættfeðurnir öfunduðu Jósef og seldu hann til Egyptalands. En Guð var með honum,10frelsaði hann úr öllum þrengingum hans og veitti honum hylli og visku í augum Faraós, Egyptalandskonungs, svo að hann skipaði hann höfðingja yfir Egyptaland og yfir allt sitt hús.11Nú kom hallæri á öllu Egyptalandi og Kanaan og mikil þrenging, og feður vorir höfðu ekki lífsbjörg.12En er Jakob heyrði, að korn væri til á Egyptalandi, sendi hann feður vora þangað hið fyrra sinn.13Og í síðara skiptið gaf Jósef sig fram við bræður sína, og Faraó varð kunn ætt Jósefs.14En Jósef sendi eftir Jakobi föður sínum og öllu ættfólki sínu, sjötíu og fimm manns,15og Jakob fór suður til Egyptalands. Þar andaðist hann og feður vorir.16Þeir voru fluttir til Síkem og lagðir í grafreitinn, er Abraham hafði keypt fyrir silfur af sonum Hemors í Síkem.17Nú tók að nálgast sá tími, er rætast skyldi fyrirheitið, sem Guð hafði gefið Abraham. Fólkið hafði vaxið og margfaldast í Egyptalandi.18Þá hófst til ríkis þar annar konungur, er eigi vissi skyn á Jósef.19Hann beitti kyn vort slægð og lék feður vora illa. Hann lét þá bera út ungbörn sín, til þess að þjóðin skyldi eigi lífi halda.20Um þessar mundir fæddist Móse og var forkunnar fríður. Þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns.21En er hann var út borinn, tók dóttir Faraós hann og fóstraði sem sinn son.22Móse var fræddur í allri speki Egypta, og hann var máttugur í orðum sínum og verkum.23Þegar hann var fertugur að aldri, kom honum í hug að vitja bræðra sinna, Ísraelsmanna.24Hann sá einn þeirra verða fyrir ójöfnuði, og rétti hann hlut hans, hefndi þess, sem meingjörðina þoldi, og drap Egyptann.25Hann hugði, að bræður hans mundu skilja, að Guð ætlaði að nota hann til að bjarga þeim, en þeir skildu það ekki.26Næsta dag kom hann að tveim þeirra, sem slógust. Hann reyndi að stilla til friðar með þeim og sagði: Góðir menn, þið eruð bræður, hví eigist þið illt við?27En sá sem beitti náunga sinn órétti, hratt honum frá sér og sagði: Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur?28Þú munt þó ekki vilja drepa mig, eins og þú drapst Egyptann í gær?29Við þessi orð flýði Móse og settist að sem útlendingur í Midíanslandi. Þar gat hann tvo sonu.30Að fjörutíu árum liðnum birtist honum engill í eyðimörk Sínaífjalls í logandi þyrnirunna.31Móse undraðist sýnina, gekk nær og vildi hyggja að. Þá hljómaði rödd Drottins:32Ég er Guð feðra þinna, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs. En Móse skelfdist og þorði ekki að hyggja frekar að.33En Drottinn sagði við hann: Leys af þér skó þína, því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð.34Ég hef sannlega séð áþján lýðs míns á Egyptalandi og heyrt andvörp þeirra og er ofan kominn að frelsa þá. Kom nú, ég vil senda þig til Egyptalands.35Þennan Móse, er þeir afneituðu með því að segja: Hver skipaði þig höfðingja og dómara? hann sendi Guð sem höfðingja og lausnara með fulltingi engilsins, er honum birtist í þyrnirunnanum.36Það var Móse, sem leiddi þá út og gjörði undur og tákn á Egyptalandi, í Rauðahafinu og á eyðimörkinni í fjörutíu ár.37Þessi er sá Móse, sem sagði við Ísraelsmenn: Spámann eins og mig mun Guð upp vekja yður, einn af bræðrum yðar.38Hann er sá, sem var í söfnuðinum í eyðimörkinni, með englinum, er við hann talaði á Sínaífjalli, og með feðrum vorum. Hann tók á móti lifandi orðum að gefa oss.39Eigi vildu feður vorir hlýðnast honum, heldur hrundu honum frá sér og þráðu í hjörtum sínum Egyptaland.40Þeir sögðu við Aron: Gjör oss guði, er fyrir oss fari, því að ekki vitum vér, hvað orðið er af Móse þeim, sem leiddi oss brott af Egyptalandi.41Og á þeim dögum smíðuðu þeir kálf, færðu skurðgoðinu fórn og kættust af verki handa sinna.42En Guð sneri sér frá þeim og lét þeim eftir að dýrka her himinsins, eins og ritað er í spámannabókinni: Hvort færðuð þér mér, Ísraels ætt, sláturdýr og fórnir árin fjörutíu í eyðimörkinni?43Nei, þér báruð búð Móloks og stjörnu guðsins Refans, myndirnar, sem þér smíðuðuð til þess að tilbiðja þær. Ég mun herleiða yður austur fyrir Babýlon.44Vitnisburðartjaldbúðina höfðu feður vorir í eyðimörkinni. Hún var gjörð eins og sá bauð, er við Móse mælti, eftir þeirri fyrirmynd, sem Móse sá.45Við henni tóku og feður vorir, fluttu hana með Jósúa inn í landið, sem þeir tóku til eignar af heiðingjunum, er Guð rak brott undan þeim. Stóð svo allt til daga Davíðs.46Hann fann náð hjá Guði og bað, að hann mætti finna bústað fyrir Jakobs Guð.47En Salómon reisti honum hús.48En eigi býr hinn hæsti í því, sem með höndum er gjört. Spámaðurinn segir:49Himinninn er hásæti mitt og jörðin skör fóta minna. Hvaða hús munuð þér reisa mér, segir Drottinn, eða hver er hvíldarstaður minn?50Hefur ekki hönd mín skapað allt þetta?51Þér harðsvíraðir og óumskornir í hjörtum og á eyrum, þér standið ávallt gegn heilögum anda, þér eins og feður yðar.52Hver var sá spámaður, sem feður yðar ofsóttu eigi? Þeir drápu þá, er boðuðu fyrirfram komu hins réttláta, og nú hafið þér svikið hann og myrt.53Þér sem lögmálið fenguð fyrir umsýslan engla, en hafið þó eigi haldið það.54Þegar þeir heyrðu þetta, trylltust þeir og gnístu tönnum gegn honum.55En hann horfði til himins, fullur af heilögum anda og leit dýrð Guðs og Jesú standa til hægri handar Guði56og sagði: Ég sé himnana opna og Mannssoninn standa til hægri handar Guði.57Þá æptu þeir hástöfum, héldu fyrir eyrun og réðust að honum, allir sem einn maður.58Þeir hröktu hann út úr borginni og tóku að grýta hann. En vottarnir lögðu yfirhafnir sínar að fótum ungum manni, er Sál hét.59Þannig grýttu þeir Stefán. En hann ákallaði Drottin og sagði: Drottinn Jesús, meðtak þú anda minn.60Síðan féll hann á kné og hrópaði hárri röddu: Drottinn, lát þá ekki gjalda þessarar syndar. Þegar hann hafði þetta mælt, sofnaði hann.

7.2 Heyrið mig Post 22.1 – Guð dýrðarinnar Slm 29.2 – birtist Abraham 1Mós 11.31
7.3 Far burt … 1Mós 12.1
7.4 Frá Haran til Kanaan 1Mós 11.31-12.1,5
7.5 Ekki gefið land 5Mós 2.5 – niðjum veitt fyrirheit 1Mós 12.7; 13.15; 17.8; 24.7; 48.4 – barnlaus 1Mós 16.1
7.6-7 Niðjar hans 1Mós 15.13-14
7.7 Eftir það 2Mós 3.12
7.8 Sátmáli umskurnarinnar 1Mós 17.10-14 – umskurn á áttunda degi 1Mós 21.4
7.9 Öfunduðu Jósef 1Mós 37.11 – seldu hann 1Mós 37.28; 45.4 – Guð var með honum 1Mós 39.2,3,21,23
7.10 Hylli Faraós 1Mós 41.37-39 – höfðingi 1Mós 41.40-44; Slm 105.21
7.11 Hallæri 1Mós 41.54; 42.5
7.12 Jakob sendir syni sína 1Mós 42.1-2
7.13 Gaf sig fram 1Mós 45.3-4 – varð kunn ætt Jósefs 1Mós 45.16
7.14 Sendi eftir föður sínum 1Mós 45.9-11,18-19 – sjötíu og fimm sbr 1Mós 46.27; 2Mós 1.4
7.15 Jakob fer suður til Egyptalands 1Mós 45.5-6 – andaðist þar 1Mós 49.33; 2Mós 1.5
7.16 Abraham kaupir grafreit 1Mós 23.2-20 – Jakob kaupir landspildu 1Mós 33.18-19 – Jakob grafinn í helli Abrahams 1Mós 49.29-30; 50.7-13 – Jósef grafinn í Síkem Jós 24.32
7.17-18 Þjóðin vex 2Mós 1.7-8
7.19 Illvilji konungs 2Mós 1.10-11 – ungbörn borin út 2Mós 1.22
7.20 Forkunnarfríður 2Mós 2.2; Heb 11.23
7.21 Dottir Faraós 2Mós 2.3-10
7.22 Máttur í orðum og verkum Lúk 24.19
7.23-24 Móse drepur Egypta 2Mós 2.11-12
7.26-28 Ísraelsmenn hafna Móse 2Mós 2.13-14
7.27 Hver skipaði þig dómara? 2Mós 2.14; Lúk 12.14
7.29 Móse flýr 2Mós 2.15 – útlendingur í Midíanslandi … tveir synir 2Mós 2.21-22; 18.3-4
7.30-31 Logandi þyrnirunni 2Mós 3.1-3
7.31-34 Guð talar við Móse 2Mós 3.4-10
7.35 Lausnari Lúk 1.68; 2.38 – með fulltingi engilsins 2Mós 3.2
7.36 Undur og tákn 2Mós 7.3; Post 2.43+ – í Rauðahafinu 2Mós 14.21 – á eyðimörkinni í fjörutíu ár 4Mós 14.33
7.37 Spámann eins og mig 5Mós 18.15; Post 3.22
7.38 Í söfnuðinum 2Mós 19.7-15; 5Mós 9.10; 10.4 – með englinum Post 7.53 – lifandi orð Lúk 10.26-28; Post 5.20 – tók við og gaf 2Mós 19.1-6; 20.1-17; 5Mós 5.4-22
7.39 Þráðu Egyptaland 4Mós 14.3
7.40 Aron beðinn hjálpar 2Mós 32.1,23
7.41 Gullkálfurinn 2Mós 32.4-6
7.42 Dýrka her himinsins Jer 7.18; 8.2; 19.13
7.42-43 Færðuð þér mér fórnir? Am 5.25-27
7.44 Vitnisburðartjaldbúðin 2Mós 27.21; 4Mós 1.50 – eftir fyrirmynd 2Mós 25.9,40
7.45 Undir stjórn Jósúa Jós 3.14-17; 18.1 – rak brott Jós 23.9; 24.18
7.45-46 Fyrirætlanir Davíðs 2Sam 7.2-16; 1Kon 8.17-18; 1Kro 17.1-14; 2Kro 6.7-8; Slm 132.1-5
7.47 Salómon byggir musterið 1Kon 6.1,14; 8.19-20; 2Kro 3.1; 5.1; 6.2,10
7.48 Eigi býr hinn hæsti … Post 17.24,29
7.49-50 Sbr Jes 66.1-2
7.51 Harðsvíraðir 2Mós 32.9; 33.3,5 – óumskornir í hjörtum og eyrum 3Mós 26.41; Jer 9.25; 6.10
7.52 Spámenn ofsóttir 2Kro 36.16 – drepnir Matt 23.31 – hinn réttláti Post 3.14+
7.53 Um hendur engla Post 7.38; Gal 3.19; Heb 2.2
7.54 Trylltust Post 5.33 – gnístu tönnum Job 16.9; Slm 35.16; 37.12; 112.10
7.55 Fullur af heilögum anda Post 4.8+ – til hægri handar Guði Matt 22.44+ ; 1Pét 3.22
7.56 Himnarnir opnir Matt 3.16+ – Mannssonurinn Matt 8.20+ – til hægri handar Guði Lúk 22.69
7.58 Sál Post 22.20; 26.10
7.59 Meðtak þú anda minn Slm 31.6; Lúk 23.46
7.60 Hárri röddu Matt 27.46,50; Mrk 15.34,37; Lúk 23.46 – ekki gjalda Lúk 23.34