1Til söngstjórans. Davíðssálmur.2Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.3Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon.4Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. Sela5Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.6Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.7Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.8Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.9Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.10Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.

20.2 Á degi neyðarinnar Slm 77.3+
20.3 Frá Síon Slm 14.7; 110.2; 128.5; 133.3; 134.3; sbr 2.6; 118.26 – styðji þig Slm 18.36; Jes 9.6
20.5 Er þú þráir Slm 21.3
20.7 Hinn smurði Slm 2.2+
20.8 Vagnar og stríðshestar Slm 33.16-17+ ; Hós 1.7+ ; sbr 2Kro 20.15 – nafn Drottins, Guðs vors Slm 124.8+
20.9 Falla eða standa uppréttur Jes 40.30-31
20.10 Veita sigur Slm 118.25