1Í þá daga var enginn konungur í Ísrael, og í þá daga var ættkvísl Daníta að leita sér að arfleifð til búsetu, því að henni hafði eigi til þess dags hlotnast nein arfleifð meðal ættkvísla Ísraels.2Dans synir sendu þá fimm hrausta menn af kynþætti sínum, úr sínum hóp, frá Sorea og Estaól til þess að kanna landið og rannsaka það, og sögðu við þá: Farið og rannsakið landið. Og þeir komu upp í Efraímfjöll, til húss Míka, og voru þar nætursakir.3Þegar þeir voru staddir hjá húsi Míka, þekktu þeir málfæri hins unga manns, levítans, og viku þangað og sögðu við hann: Hver hefir fært þig hingað? Hvað hefst þú hér að og hverja kosti hefir þú hér?4Og hann sagði við þá: Svo og svo hefir Míka gjört við mig. Hann leigði mig, og gjörðist ég prestur hans.5Þá sögðu þeir við hann: Gakk þú til frétta við Guð, svo að vér fáum að vita, hvort för sú muni lánast, sem vér nú erum að fara.6Presturinn svaraði þeim: Farið heilir. Förin, sem þér eruð að fara, er Drottni þóknanleg.7Síðan fóru mennirnir fimm leiðar sinnar og komu til Laís, og sáu þeir að fólkið, sem bjó þar, var óhult um sig að hætti Sídoninga, öruggt og óhult, og að ekki var skortur á neinu þar í landi og að fólkið var auðugt. Þeir voru og langt frá Sídoningum og höfðu engin mök við neinn.8Og þeir komu til bræðra sinna í Sorea og Estaól. Og bræður þeirra sögðu við þá: Hvað hafið þér að segja?9Þeir svöruðu: Af stað! Vér skulum fara í móti þeim, því að vér höfum séð landið, og sjá, það er mjög gott. Og þér eruð aðgjörðalausir! Verið ekki tregir að leggja af stað í ferð þessa til þess að taka landið til eignar.10Þegar þér komið þangað, munuð þér hitta ugglaust fólk, og landið er víðáttumikið á allar hliðar, því að Guð hefir gefið það í yðar hendur, land, þar sem ekki er skortur á neinu því, sem til er á jörðinni.11Þá tóku sig upp þaðan, frá Sorea og Estaól, sex hundruð menn, búnir hervopnum, af kynþætti Daníta.12Héldu þeir norður eftir og settu herbúðir sínar í Kirjat Jearím í Júda. Fyrir því er sá staður kallaður Dans herbúðir fram á þennan dag, sjá, það er fyrir vestan Kirjat Jearím.13Þaðan fóru þeir yfir á Efraímfjöll og komu til húss Míka.14Þá hófu mennirnir fimm máls, þeir er farið höfðu til Laís til þess að kanna landið, og sögðu við frændur sína: Vitið þér, að í þessum húsum er hökullíkneski, húsgoð, skurðlíkneski og steypt líkneski? Hyggið nú að, hvað þér eigið að gjöra!15Og þeir viku þangað og komu í hús hins unga manns, levítans, í hús Míka, og spurðu hann, hvernig honum liði.16En þeir sex hundruð menn, sem voru af sonum Dans, stóðu búnir hervopnum fyrir utan hliðið,17og mennirnir fimm, sem farið höfðu að kanna landið, fóru upp og komu þangað, tóku skurðlíkneskið, hökullíkneskið, húsgoðin og steypta líkneskið. En presturinn stóð fyrir utan hliðið og þeir sex hundruð menn, búnir hervopnum.18En er þeir voru komnir inn í hús Míka, þá tóku þeir skurðlíkneskið, hökullíkneskið, húsgoðin og steypta líkneskið. Og presturinn sagði við þá: Hvað hafist þér að?19En þeir svöruðu honum: Þegi þú! Legg þú hönd þína á munn þér og far með oss, og ver þú faðir vor og prestur! Er þér það betra að vera heimilisprestur eins manns heldur en að vera prestur hjá ættkvísl og kynþætti í Ísrael?20Prestur tók þessu feginsamlega og tók hökullíkneskið, húsgoðin og skurðlíkneskið og slóst í för með mönnunum.21Sneru þeir nú á leið og héldu af stað og létu börn og búsmala og verðmæta hluti fara á undan sér.22En er þeir voru komnir langt í burt frá húsi Míka, þá voru þeir menn, sem bjuggu í húsunum hjá húsi Míka, kallaðir saman, og eltu þeir Dans syni og náðu þeim.23Og þeir kölluðu til Dans sona, og sneru þeir sér þá við og sögðu við Míka: Hvað stendur til fyrir þér, er þú kemur svo fjölmennur?24Hann svaraði: Þér hafið tekið guði mína, sem ég hafði gjört mér, og prestinn, og eruð farnir burt. Hvað á ég þá eftir? Hvernig getið þér þá spurt mig: Hvað stendur til fyrir þér?25Þá sögðu Dans synir við hann: Haf engin orð við oss, ella kynnu gremjufullir menn að ráðast á yður og þú verða valdur að því, að bæði þú og þitt hús týni lífi.26Síðan fóru Dans synir leiðar sinnar. En Míka sá, að þeir voru honum ofurefli, og sneri því við og fór aftur heim til sín.27Þeir tóku skurðlíkneskið, sem Míka hafði til búið, svo og prestinn, sem hann hafði haft, og réðust á Laís, ugglaust fólk og óhult um sig, og felldu þá með sverðseggjum, en lögðu eld í borgina.28Og þar var enginn, sem kæmi þeim til hjálpar, því að borgin lá langt frá Sídon og þeir höfðu ekki mök við nokkurn mann, enda lá borgin í dalnum, sem er hjá Bet-Rehób. Síðan endurreistu þeir borgina og settust þar að.29Þeir nefndu borgina Dan, eftir nafni Dans, föður þeirra, er fæddist Ísrael, en í öndverðu hafði borgin heitið Laís.30Og Dans synir reistu upp skurðlíkneskið handa sér, og Jónatan Gersómsson, Mósesonar, og synir hans voru prestar hjá ættkvísl Daníta, til þess er fólkið var flutt burt úr landinu.31Og þeir settu upp skurðlíkneski Míka handa sér, það er hann hafði til búið, og stóð það alla þá stund er Guðs hús var í Síló.

18.1 Enginn konungur í Ísrael Dóm 17.6+
18.2 Sorea Dóm 13.2 – Estaól Dóm 13.25+ – kanna landið 4Mós 13.16-17; 5Mós 1.22-25; Jós 2.1 – Míka Dóm 17.1-13
18.5 Ganga til frétta við Guð Dóm 1.1+ ; 1Sam 23.9-12
18.6 Farið heilir 2Mós 4.18, 1Sam 1.17; Lúk 7.50; 8.48
18.8 Njósnarar snúa aftur 4Mós 13.25-26
18.9 Förum þangað 4Mós 13.30 – gott land 4Mós 13.27; 14.7
18.10 Guð hefir gefið landið Jós 2.24
18.13 Efraímfjöll Dóm 3.27+
18.14 Hyggið nú að … 1Sam 25.17
18.19 Leggðu hönd á munn þér Mík 7.16; Job 21.5; 29.9; 40.4; Okv 30.32; SSal 8.12
18.22 Eltu … 1Mós 31.23
18.28 Bet-Rehób 4Mós 13.21
18.29 Borgin Dan Jós 19.47 – Dan, faðir þeirra 1Mós 30.6
18.30 Gersóm Manasseson 2Mós 2.22; 18.3
18.31 Helgidómur í Síló Dóm 21.19; Jós 18.1,8; 1Sam 1.3,9,24 – eyðilegging hans Jer 7.12; 26.6,9