1Drottinn lét mig sjá: Tvær karfir fullar af fíkjum voru settar fyrir framan musteri Drottins, eftir að Nebúkadresar Babelkonungur hafði herleitt Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, og höfðingjana í Júda og trésmiðina og járnsmiðina burt frá Jerúsalem og flutt þá til Babýlon.2Í annarri körfinni voru mjög góðar fíkjur, líkar árfíkjum, en í hinni körfinni voru mjög vondar fíkjur, sem voru svo vondar, að þær voru óætar.3Þá sagði Drottinn við mig: Hvað sér þú, Jeremía? Og ég svaraði: Fíkjur! Góðu fíkjurnar eru mjög góðar, en þær vondu eru mjög vondar, já svo vondar, að þær eru óætar.4Þá kom orð Drottins til mín:5Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Eins og á þessar góðu fíkjur, svo lít ég á hina herleiddu úr Júda, sem ég hefi sent héðan til Kaldealands, þeim til heilla.6Ég beini augum mínum á þá þeim til heilla og flyt þá aftur inn í þetta land, svo að ég megi byggja þá upp og ekki rífa þá niður aftur og gróðursetja þá og ekki uppræta þá aftur.7Og ég gef þeim hjarta til að þekkja mig, að ég er Drottinn, og þeir skulu vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð, þegar þeir snúa sér til mín af öllu hjarta.8Og eins og vondu fíkjurnar, sem eru svo vondar, að þær eru óætar já, svo segir Drottinn, þannig vil ég fara með Sedekía konung í Júda og höfðingja hans og leifarnar af Jerúsalem, þá sem eftir eru í þessu landi og þá sem sest hafa að í Egyptalandi.9Ég mun gjöra þá að grýlu, að andstyggð öllum konungsríkjum jarðar, að háðung, orðskvið, spotti og formæling á öllum þeim stöðum, þangað sem ég rek þá.10Og ég sendi sverð, hungur og drepsótt í móti þeim, þar til er þeir eru gjöreyddir úr landinu, sem ég gaf þeim og feðrum þeirra.

24.1 Ávaxtakörfur Am 8.1 – Nebúkadresar Jer 21.2+ – reka Jekonja í útlegð Jer 22.24+
24.2 Óætar Jer 29.17
24.3 Hvað sérðu? Jer 1.11+
24.5 Góðir eins og … sbr 29.11; Slm 118.22
24.6 Flytja aftur Jer 23.3 – gróðurset og ekki rífa upp sbr Jer 1.10+
24.7 Löngun til að þekkja Jer 9.23+ ; 32.39 – mín þjóð, þeirra Guð Jer 7.23+ ; sbr 5Mós 26.17-18
24.8 Sedekía Jer 1.3+
24.9 Að viðurstyggð Jer 15.4+ formælingar Jer 25.18; 26.6; 29.18,22; 42.18; 44.8,12,22; 49.13
24.10 Sverð, hungur og drepsótt Jer 14.12+