1Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað.2Járn er tekið úr jörðu, og steinn er bræddur að eiri.3Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til ystu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri.4Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdur mannafótum, fjarlægur mönnum hangir hann, svífur hann.5Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi.6Safírinn finnst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá er grefur.7Örninn þekkir eigi veginn þangað, og valsaugað sér hann ekki,8hin drembnu rándýr ganga hann eigi, ekkert ljón fer hann.9Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum.10Hann heggur göng í björgin, og auga hans sér alls konar dýrindi.11Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.12En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á viskan heima?13Enginn maður þekkir veginn til hennar, og hana er ekki að finna á landi lifenda.14Undirdjúpið segir: Í mér er hún ekki! og hafið segir: Ekki er hún hjá mér!15Hún fæst ekki fyrir skíragull, og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar.16Eigi verður hún Ófírgulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum.17Gull og gler kemst ekki til jafns við hana, og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker af skíragulli.18Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur.19Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli.20Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á viskan heima?21Hún er falin augum allra þeirra er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin.22Undirdjúpin og dauðinn segja: Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið.23Guð veit veginn til hennar, og hann þekkir heimkynni hennar.24Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur allt, sem undir himninum er.25Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins,26þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum,27þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig.28Og við manninn sagði hann: Sjá, að óttast Drottin það er speki, og að forðast illt það er viska.

28.1 Silfur- og gullnámur 1Kon 10.22
28.2 Járn- og eirnámur 5Mós 8.9
28.5 Brauð af jörðinni Slm 104.14-15
28.12 Speki Job 28.20,28; 1Kon 3; Okv 8.22-31; SSal; Sír 1.6; Bar 3.9-4.4
28.15-19 Spekin gulli betri Okv 2.1-5; 3.13-15
28.25 Umfang hafsins Jes 40.12
28.26 Regnið Job 36.27-28; 38.28
28.27 Guð rannasakar spekina Sír 1.8-9,19; Bar 3.32
28.28 Óttast Drottin Job 1.1+ ; Slm 111.10; Okv 9.10