1Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna:2Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? Sela3Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum,4bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra.5Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.6Ég hefi sagt: Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta,7en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum.8Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.

82.1 Asaf Slm 50.1+ – á guðaþingi Slm 89.6 – guðir sbr 2Mós 4.16
82.2 Ranglega Jer 5.28; Esk 22.27; Mík 3.1-4; sbr Sak 9.9
82.3 Bágstaddir og föðurlausir 2Mós 23.6; Jes 1.17; Job 29.12
82.6 Þér eruð guðir Jóh 10.34; sbr Slm 58.2
82.8 Allar þjóðir eign þín sbr 5Mós 32.8