1Öll þau boðorð, sem ég legg fyrir yður í dag, skuluð þér varðveita til eftirbreytni, svo að þér megið lifa og margfaldast og komast inn í landið, sem Drottinn sór feðrum yðar, og fá það til eignar.2Þú skalt minnast þess, hversu Drottinn Guð þinn hefir leitt þig alla leiðina þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni til þess að auðmýkja þig og reyna þig, svo að hann kæmist að raun um, hvað þér býr í hjarta, hvort þú mundir halda boðorð hans eða ekki.3Hann auðmýkti þig og lét þig þola hungur og gaf þér síðan manna að eta, sem þú eigi þekktir áður né heldur feður þínir þekktu, svo að þú skyldir sjá, að maðurinn lifir eigi á einu saman brauði, heldur að maðurinn lifir á sérhverju því, er fram gengur af munni Drottins.4Klæði þín hafa ekki slitnað á þér og fætur þínir hafa ekki þrútnað í þessi fjörutíu ár.5Ver því sannfærður um það, að eins og maður agar son sinn, svo agar Drottinn Guð þinn þig.6Varðveittu boðorð Drottins Guðs þíns, svo að þú gangir á hans vegum og óttist hann.7Drottinn Guð þinn leiðir þig inn í gott land, inn í land, þar sem nóg er af vatnslækjum, lindum og djúpum vötnum, sem spretta upp í dölum og á fjöllum,8inn í land, þar sem nóg er af hveiti og byggi, vínviði, fíkjutrjám og granateplatrjám, inn í land, þar sem nóg er af olíutrjám og hunangi,9inn í land, þar sem þú munt ekki eiga við fátækt að búa og þar sem þig mun ekkert bresta, inn í land, þar sem steinarnir eru járn og þar sem þú getur grafið kopar úr fjöllunum.10Og þegar þú hefir etið og ert orðinn mettur, þá skalt þú vegsama Drottin Guð þinn fyrir landið góða, sem hann gaf þér.11Gæt þín, að þú gleymir ekki Drottni Guði þínum og haldir svo eigi boðorð hans, ákvæði og lög, sem ég legg fyrir þig í dag.12Lát eigi, þegar þú hefir etið og ert mettur orðinn og hefir reist fögur hús og býr í þeim,13þegar nautgripum þínum og sauðfénaði þínum fjölgar, þegar silfur þitt og gull eykst og allt sem þú átt,14lát þá eigi hjarta þitt ofmetnast og gleym eigi Drottni Guði þínum, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu,15sem leiddi þig um eyðimörkina miklu og hræðilegu, þar sem voru eitraðir höggormar og sporðdrekar og vatnslaust þurrlendi, og leiddi fram vatn handa þér af tinnuhörðum klettinum,16hann sem gaf þér manna að eta í eyðimörkinni, er feður þínir eigi þekktu, svo að hann gæti auðmýkt þig og svo að hann gæti reynt þig, en gjört síðan vel við þig á eftir.17Og seg þú ekki í hjarta þínu: Minn eigin kraftur og styrkur handar minnar hefir aflað mér þessara auðæfa.18Minnstu heldur Drottins Guðs þíns, því að hann er sá, sem veitir þér kraft til að afla auðæfanna, til þess að hann fái haldið þann sáttmála, er hann sór feðrum þínum, eins og líka fram hefir komið til þessa.19En ef þú gleymir Drottni Guði þínum og eltir aðra guði, dýrkar þá og fellur fram fyrir þeim, þá votta ég yður í dag, að þér munuð gjörsamlega farast.20Eins og þjóðirnar, er Drottinn eyðir fyrir yður, svo munuð þér og farast, af því að þér hlýdduð ekki röddu Drottins Guðs yðar.

8.1 Fyrirmæli (boðorðin) 5Mós 4.2+ ; 5.31+ – halda 5Mós 5.1+ – halda boðorðin og lifa 5Mós 4.1+ – fyrirheitna landið 5Mós 1.8+
8.2 Í eyðimörkinni 4Mós 14.33; Slm 95.9-10; Post 7.36 – reyna 5Mós 13.4; 33.8; 2Mós 15.25; Heb 11.17
8.3 Manna 2Mós 16.31+ – eigi á einu saman brauði Matt 4.4 – af munni Drottins Slm 89.35
8.5 Guð elur upp 5Mós 4.36; Okv 3.11,12; Heb 12.7
8.6 Vegir Drottins 5Mós 10.12; 11.22; 19.9; 26.17; 28.9; 30.16; Jós 22.5; Dóm 2.22; 1Kon 2.3; 8.58 – óttast Drottinn 5Mós 4.10+
8.7 Gott land 5Mós 1.25+ – engin vatnsekla 5Mós 11.10-12; sbr 4Mós 20.5
8.10 Eta og verða mettur 5Mós 6.11+
8.11 Ekki gleyma Drottni 5Mós 4.9+ – boðorðin 5Mós 4.2+
8.12 Glæsileg hús Am 3.15; 5.11
8.14 Út af Egyptalandi 5Mós 5.6+
8.15 Eitursnákar 4Mós 21.6-9 – vatn af kletti 2Mós 17.1-7; 4Mós 20.2-13; Slm 78.15
8.16 Manna 5Mós 8.3+ – reyna 5Mós 8.2+
8.17 Styrkur handarinnar Jes 10.13-14; Slm 44.3-8
8.18 Guð veitir hagsæld Hós 2.10; Slm 127.1-2 – Guð heldur sáttmálann 5Mós 9.5; 1Mós 26.3; Jer 11.5
8.19 Aðrir guðir 2Mós 20.3+ – gereytt 5Mós 4.26+
8.20 Rödd Drottins 5Mós 4.30+ – hlýða ekki 5Mós 28.15,45,62; Jós 5.6