1Eftir andlát Jósúa spurðu Ísraelsmenn Drottin og sögðu: Hver af oss skal fyrstur fara í móti Kanaanítum til þess að berjast við þá?2Drottinn sagði: Júda skal fara í móti þeim, sjá, ég gef landið í hendur honum.3Júda sagði við Símeon, bróður sinn: Far þú með mér inn í minn hluta, svo að við báðir megum berjast við Kanaanítana. Þá skal ég líka fara með þér inn í þinn hluta. Fór þá Símeon með honum.4Og Júda fór, og Drottinn gaf Kanaaníta og Peresíta í hendur þeirra, og lögðu þeir þá að velli í Besek, tíu þúsundir manna.5Þeir fundu Adóní Besek í Besek og börðust við hann og unnu sigur á Kanaanítum og Peresítum.6En Adóní Besek flýði og veittu þeir honum eftirför, tóku hann höndum og hjuggu af honum þumalfingurna og stórutærnar.7Þá mælti Adóní Besek: Sjötíu konungar, sem höggnir voru af þumalfingur og stórutær, urðu að tína upp mola undir borði mínu. Eins og ég hefi gjört, svo geldur Guð mér. Síðan fóru þeir með hann til Jerúsalem og þar dó hann.8Júda synir herjuðu á Jerúsalem og unnu hana, felldu íbúana með sverðseggjum og lögðu síðan eld í borgina.9Eftir það héldu Júda synir ofan þaðan til þess að berjast við Kanaaníta, þá er bjuggu á fjöllunum, í Suðurlandinu og á láglendinu.10Júda fór móti Kanaanítunum, sem bjuggu í Hebron, en Hebron hét áður Kirjat Arba. Og þeir unnu sigur á Sesaí, Ahíman og Talmaí.11Þaðan fóru þeir móti Debír-búum, en Debír hét áður Kirjat Sefer.12Kaleb sagði: Hver sem leggur Kirjat Sefer undir sig og vinnur hana, honum skal ég gefa Aksa dóttur mína að konu.13Otníel Kenasson, bróðir Kalebs og honum yngri, vann þá borgina, og hann gaf honum Aksa dóttur sína að konu.14Þegar hún skyldi heim fara með bónda sínum, eggjaði hún hann þess, að hann skyldi beiðast lands nokkurs af föður hennar. Steig hún þá niður af asnanum. Kaleb spurði hana þá: Hvað viltu?15Hún svaraði honum: Gef mér gjöf nokkra, af því að þú hefir gefið mig til Suðurlandsins. Gef mér því vatnsbrunna. Gaf hann henni þá brunna hið efra og brunna hið neðra.16Synir Kenítans, tengdaföður Móse, höfðu farið úr pálmaborginni með sonum Júda upp í Júdaeyðimörk, sem liggur fyrir sunnan Arad, og þeir fóru og settust að meðal lýðsins.17En Júda fór með Símeon bróður sínum, og þeir unnu sigur á Kanaanítunum, sem bjuggu í Sefat, og helguðu hana banni. Fyrir því var borgin nefnd Horma.18Júda vann Gasa og land það, er undir hana lá, og Askalon og land það, er undir hana lá, og Ekron og land það, er undir hana lá.19Og Drottinn var með Júda, svo að þeir náðu undir sig fjalllendinu, en þá, sem bjuggu á sléttlendinu, fengu þeir eigi rekið burt, því að þeir höfðu járnvagna.20Þeir gáfu Kaleb Hebron, eins og Móse hafði boðið, og þeir ráku þaðan þá Anaks sonu þrjá.21En Jebúsítana, sem bjuggu í Jerúsalem, gátu Benjamíns synir ekki rekið burt. Fyrir því hafa Jebúsítar búið í Jerúsalem ásamt Benjamíns sonum fram á þennan dag.22Ættmenn Jósefs fóru líka upp til Betel, og Drottinn var með þeim.23Og ættmenn Jósefs létu njósna í Betel, en borgin hét áður Lúz.24Þá sáu njósnarmennirnir mann koma út úr borginni og sögðu við hann: Sýn oss, hvar komast má inn í borgina, og munum vér sýna þér miskunn.25Og hann sýndi þeim, hvar komast mætti inn í borgina, og þeir tóku borgina herskildi, en manninum og öllu fólki hans leyfðu þeir brottgöngu.26Maðurinn fór til lands Hetíta og reisti þar borg og nefndi hana Lúz. Heitir hún svo enn í dag.27„Manasse rak eigi burt íbúana í Bet Sean og smáborgunum, er að lágu, í Taanak og smáborgunum, er að lágu, íbúana í Dór og smáborgunum, er að lágu, íbúana í Jibleam og smáborgunum, er að lágu, né íbúana í Megiddó og smáborgunum, er að lágu; og þannig fengu Kanaanítar haldið bústað í landi þessu. „28En er Ísrael efldist, gjörði hann Kanaaníta sér vinnuskylda, en rak þá ekki algjörlega burt.29„Efraím rak eigi burt Kanaanítana, sem bjuggu í Geser; þannig héldu Kanaanítar áfram að búa í Geser meðal þeirra. „30„Sebúlon rak eigi burt íbúana í Kitrón né íbúana í Nahalól; þannig héldu Kanaanítar áfram að búa meðal þeirra og urðu þeim vinnuskyldir. „31Asser rak eigi burt íbúana í Akkó né íbúana í Sídon, eigi heldur í Ahlab, Aksíd, Helba, Afík og Rehób.32Fyrir því bjuggu Asserítar meðal Kanaaníta, er fyrir voru í landinu, því að þeir ráku þá eigi burt.33„Naftalí rak eigi burt íbúana í Bet Semes né íbúana í Bet Anat; fyrir því bjó hann meðal Kanaaníta, er fyrir voru í landinu, en íbúarnir í Bet Semes og Bet Anat urðu þeim vinnuskyldir. „34Amorítar þrengdu Dans sonum upp í fjöllin og liðu þeim ekki að koma niður á sléttlendið.35Þannig fengu Amorítar haldið bústað í Har Heres, í Ajalon og Saalbím, en með því að ætt Jósefs var þeim yfirsterkari, urðu þeir vinnuskyldir.36Landamæri Amoríta lágu frá Sporðdrekaskarði, frá klettinum og þar upp eftir.

1.1 Andlát Jósúa Jós 24.29+ – spyrja Guð Dóm 18.5; 20.18,27-28; 1Sam 14.37; 23.2; 30.8; 2Sam 2.1 o.fl.; 1Kon 22.7-8; 2Kon 8.8; 22.13; Jes 30.2; Esk 20.1,3,31
1.2 Júda Dóm 20.18
1.3 Landsvæði mitt … landsvæði þitt Jós 13-21
1.8 Önnur frásögn af töku Jerúsalem 2Sam 5.6-12; sbr Jós 15.63
1.9 Á fjöllunum … Jós 10.40; Jer 32.44; 33.13
1.10 Hebron Jós 10.36-37; 14.7-15; 15.13-14
1.11-15 Kaleb, Debír unnin Jós 15.15-19
1.11 Debír Jós 10.38-39; 11.21-22
1.13 Otníel Dóm 3.9-10; Jós 15.17
1.16 Keníti 4Mós 24.21-22 – tengdafaðir Móse Dóm 4.11; 2Mós 2.16-22; 4Mós 10.29-32
1.18 Gasa, Askalon, Ekron Jós 13.3; 1Sam 6.17; Jer 25.20; Am 1.6-8
1.19 Járnvagnar Dóm 4.3,13; Jós 17.16,18
1.20 Kaleb 4Mós 14.24; Jós 14.12-13
1.21 Gátu ekki rekið burt Jós 15.63; 18.28
1.22-23 Ættmenn Jósefs 2Sam 19.21; 1Kon 11.28 – Betel (áður Lúz) 1Mós 28.17-19; 35.6; 48.3; Jós 18.13
1.25 Tóku borgina Jós 6.21; – en manninum … Jós 6.22-25
1.27 Hrakti ekki burt Jós 17.12-13
1.28 Vinnuskylda Jós 9.27; 2Sam 20.24; 1Kon 9.20-22
1.29 Geser Jós 16.10
1.30 Sebúlon Dóm 5.14; Jós 19.10-16
1.31 Asser Jós 19.24-31
1.33 Naftalí Jós 19.32-39
1.34 Dans niðjar Jós 19.47; sbr Dóm 18
1.36 Kletturinn (Sela) 2Kon 14.7