1Þá kallaði Jósúa Rúbeníta, Gaðíta og hálfa kynkvísl Manasse fyrir sig2og sagði við þá: Þér hafið haldið allt það, sem Móse, þjónn Drottins, bauð yður. Þér hafið og hlýtt röddu minni í öllu því, er ég hefi fyrir yður lagt.3Þennan langa tíma allt fram á þennan dag hafið þér fylgi veitt bræðrum yðar og varðveitt hlýðni við boðorð Drottins, Guðs yðar.4En nú hefir Drottinn, Guð yðar, veitt bræðrum yðar hvíld, eins og hann hafði heitið þeim. Snúið því nú á leið og farið til tjalda yðar, til eignarlands yðar, þess er Móse, þjónn Drottins, gaf yður hinumegin Jórdanar.5Gætið þess einungis, að þér haldið vel boðorð það og lögmál, er Móse, þjónn Drottins, fyrir yður lagði: að þér elskið Drottin Guð yðar, gangið ávallt á vegum hans, geymið boð hans, haldið yður fast við hann og þjónið honum af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar.6Síðan blessaði Jósúa þá og lét þá burt fara, og þeir héldu til tjalda sinna.7Hálfri ættkvísl Manasse hafði Móse gefið land í Basan, en hinum helmingnum hafði Jósúa gefið land með bræðrum þeirra vestanmegin Jórdanar. Og þegar Jósúa lét þá burt fara til tjalda sinna, blessaði hann þá enn fremur8„og sagði við þá: Hverfið nú aftur til tjalda yðar með mikil auðæfi, mjög mikinn fénað, með silfur og gull, eir og járn, og með mjög mikið af klæðnaði; miðlið bræðrum yðar nokkru af því, er þér hafið tekið að herfangi af óvinum yðar.“9Þá sneru þeir Rúbens synir, Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse aftur og skildu við Ísraelsmenn í Síló, sem er í Kanaanlandi og héldu til Gíleaðlands, eignarlands síns, þar sem þeir höfðu fest byggð eftir boði Drottins, er Móse flutti.10Er Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse komu til héraðsins við Jórdan, sem er í Kanaanlandi, reistu þeir þar altari við Jórdan, og var það mikið til að sjá.11Ísraelsmenn fengu þá svolátandi fregn: Sjá, Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse hafa reist altari við landamæri Kanaanlands, í héruðunum við Jórdan, þeim megin er Ísraelsmenn eiga land.12Og er Ísraelsmenn spurðu það, þá safnaðist allur lýður Ísraelsmanna saman í Síló til þess að fara í móti þeim til hernaðar.13Þá sendu Ísraelsmenn Pínehas, son Eleasars prests, til Rúbens sona og Gaðs sona og hálfrar ættkvíslar Manasse til Gíleaðlands,14og með honum tíu höfuðsmenn, einn höfuðsmann af ætt hverri af öllum kynkvíslum Ísraels. Var hver þeirra höfðingi yfir ættum feðra sinna meðal þúsunda Ísraels.15Og er þeir komu til Rúbens sona og Gaðs sona og hálfrar ættkvíslar Manasse til Gíleaðlands, þá mæltu þeir við þá á þessa leið:16Svo segir allur söfnuður Drottins: Hvílík er sú ótrúmennska, sem þér hafið sýnt gegn Guði Ísraels, að þér í dag hafið snúið yður burt frá Drottni, er þér hafið reist yður altari, að þér í dag hafið gjört uppreisn gegn Drottni!17Er oss ekki nógur glæpur sá, að vér tilbáðum Peór, og höfum vér ekki hreinsað oss af þeim glæp fram á þennan dag, enda kom plágan yfir söfnuð Drottins vegna hans. Og þér snúið yður í dag burt frá Drottni!18Mun þá svo fara: Þér gjörið í dag uppreisn gegn Drottni, og á morgun mun hann úthella reiði sinni yfir allan söfnuð Ísraels.19Ef land það er óhreint, er þér hafið hlotið til eignar, þá komið yfir í eignarland Drottins, þar sem búð Drottins hefir aðsetur, og setjist að meðal vor. En gjörið ekki uppreisn gegn Drottni og gjörið ekki uppreisn gegn oss með því að reisa yður altari annað en altari Drottins Guðs vors.20Kom ekki reiði Guðs yfir allan söfnuð Ísraels, þá er Akan Seraksson fór sviksamlega með hið bannfærða? Hann dó ekki einn fyrir glæp sinn.21Þá svöruðu þeir Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse og sögðu við höfðingja Ísraels þúsunda:22Drottinn, hinn máttki Guð, Drottinn, hinn máttki Guð, hann veit það, og Ísrael skal vita það: Ef það er gjört í uppreisnar eða sviksemi skyni við Drottin, þá hjálpi hann oss eigi í dag!23Vér höfum ekki reist oss altari til þess að snúa oss burt frá Drottni. Ef það er gjört til þess að færa þar brennifórn og matfórn, eða til þess að fórna þar heillafórnum, þá hefni Drottinn þess!24Heldur höfum vér gjört það af hræðslu við, hvernig fara kynni, með því að vér hugsuðum: Síðar kynnu synir yðar að segja við sonu vora: Hvað kemur Drottinn, Ísraels Guð, yður við?25Drottinn hefir sett Jórdan sem landamerki milli vor og yðar Rúbens sona og Gaðs sona. Þér eigið enga hlutdeild í Drottni! Kynnu þá synir yðar að koma sonum vorum til þess að hætta að óttast Drottin.26Fyrir því sögðum vér: Vér skulum reisa oss altari, ekki til brennifórna og ekki til sláturfórna,27heldur skal það vera til vitnis fyrir oss og fyrir yður, og fyrir niðja vora eftir oss, að vér viljum gegna þjónustu Drottins fyrir augliti hans með brennifórnum vorum, sláturfórnum og heillafórnum, og að synir yðar geti ekki á síðan sagt við sonu vora: Þér eigið enga hlutdeild í Drottni!28Og vér hugsuðum: Ef þeir síðar mæla svo til vor eða niðja vorra, þá munum vér segja: Lítið á lögunina á því Drottins altari, sem feður vorir hafa gjört, ekki til brennifórna eða sláturfórna, heldur átti það að vera til vitnis fyrir oss og yður.29Því fer fjarri, að vér vildum gjöra uppreisn gegn Drottni og snúa oss burt frá Drottni í dag með því að reisa altari til brennifórna, matfórna og sláturfórna, annað en altari Drottins Guðs vors, það er stendur fyrir framan búð hans.30Þegar Pínehas prestur og höfuðsmenn safnaðarins, höfðingjar Ísraels þúsunda, sem með honum voru, heyrðu andsvör þau, er Rúbens synir og Gaðs synir og Manasse synir veittu, þá létu þeir sér það vel líka.31Og Pínehas, sonur Eleasars prests, sagði við Rúbens sonu og Gaðs sonu og Manasse sonu: Í dag höfum vér sannreynt, að Drottinn er á meðal vor, þar sem þér hafið ekki sýnt ótrúmennsku gegn Drottni í þessu. Nú hafið þér frelsað Ísraelsmenn undan hendi Drottins.32Síðan sneri Pínehas, sonur Eleasars prests, og höfuðsmennirnir heim aftur frá Rúbens sonum og Gaðs sonum í Gíleaðlandi til Kanaanlands til Ísraelsmanna og færðu þeim þessi svör.33Létu Ísraelsmenn sér það vel líka, og þeir lofuðu Guð og hugðu ekki framar á að fara herför á móti þeim til þess að eyða land það, er Rúbens synir og Gaðs synir bjuggu í.34Og Rúbens synir og Gaðs synir nefndu altarið Vitni, því að það er vitni þess milli vor, að Drottinn er hinn sanni Guð.

22.1 Rúben, Gað og hálfur ættbálkur Manasse Jós 1.12-18; 4Mós 32.1-42; 5Mós 3.12-20
22.3 Halda boðorð Drottins 5Mós 6.2,25
22.4 Til tjalda ykkar v. 7,8; Dóm 7.8+
22.5 Gæta þess að framfylgja 5Mós 5.1+ – elska Drottin 5Mós 5.10+ ; 6.5 – vegir Guðs 5Mós 8.6+ – bindast Guði 5Mós 10.20+ – af öllu hjarta 5Mós 4.29+
22.6 Jósúa kvaddi þá Jós 14.13
22.7 Land í Basan Jós 13.29-31 – hinum helmingnum Jós 17.1-13
22.8 Silfur, gull, brons, járn Jós 6.19,24 – með mikinn auð sbr 2Mós 3.21-22; 11.2; 12.35-36 – herfang Jós 8.27
22.9 Síló Jós 18.1+
22.12 Alllur söfnuður Jós 9.18; 22.18; Dóm 20.1+
22.13 Pínehas 2Mós 6.25; 4Mós 25.7-13; Jós 24.33; Dóm 20.28
22.14 Höfðingjar Jós 9.15,18; 17.4 – höfðingjar ættanna Jós 14.1; 21.1 – meðal þúsunda Ísraels 4Mós 1.16; 10.4,36
22.16 Söfnuður Drottins 4Mós 27.17; 31.16; sbr Slm 74.2 – snúa baki við Drottni sbr 5Mós 12.5-15; 3Mós 17.8-9
22.17 Sökin við Peór 4Mós 25.1-9; 5Mós 4.3
22.18 Reiði Drottins Jós 7.1,11-12; 4Mós 16.22
22.19 Bústaður Drottins 2Mós 25.8,22; 26; 3Mós 15.31; 17.4; 4Mós 16.9
22.20 Svik Akans Jós 7.1-26 – reiði Guðs Jós 9.20
22.22 Guð guðanna, Drottinn 5Mós 10.17, sbr Slm 50.1 – hann veit 1Sam 2.3
22.23 Einn staður til fórna 3Mós 1.3; 3.2 – hverfa frá 5Mós 18.19
22.25 Enga hlutdeild í Drottni sbr Slm 16.5 – óttast Drottin 2Mós 14.31; 5Mós 6.2; Jós 24.14; sbr Slm 15.4+
22.27 Vitni 1Mós 31.48; Jes 19.19-20
22.29 Fjarri sé 1Mós 18.25; 44.7-17 – altari Drottins, frammi fyrir bústað hans 5Mós 12.5-14
22.30 Létu sér vel líka 1Mós 34.18; 41.37; 5Mós 1.23
22.31 Drottinn er á meðal okkar 3Mós 26.11 – ekki brugðist 1Kro 9.1; sbr Dan 9.7 – hönd Drottins 2Mós 9.3; 1Kon 18.46
22.33 Lofuðu Guð 1Kro 29.20