1Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?2Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:3Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra.4Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.5Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:6Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga.7Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.8Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.9Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.10Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.11Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.12Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu,13því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.

2.1-2 Sbr Post 4.25-26
2.2 Ráðagjörðir Slm 48.5; 83.6; Jes 7.4-6; Hós 7.3-7; Opb 19.19 – hans smurða Slm 18.51; 20.7; 28.8; 84.10; 89.39; 132.10; 1Sam 2.10; 10.1; 16.1,13
2.3 Fjötrar þeirra Slm 149.8
2.4 Situr á himni Slm 115.3; 123.1, sbr Matt 6.9 – Drottinn hlær Slm 37.13; 59.9
2.6 Krýnt konung minn 1Kon 1.33-35; 2Kon 11.12 – Síon Slm 20.3; 110.2 – heilagt fjall Slm 3.5+
2.7 Sbr Post 13.33; Heb 1.5; 5.5; sbr Matt 3.17; 17.5; 2Pét 1.17 – sonur minn 2Sam 7.14
2.8 Bið þú mig Slm 21.5; 1Kon 3.5 – þjóðirnar að erfðum Slm 82.8
2.9 Járnstafur Opb 2.27; 12.5; 19.15 – mola Slm 68.22; 110.5-6
2.10 Verið hyggnir SSal 6.1-11
2.11 Konungar þjóni Drottni Slm 72.11; Dan 7.14
2.13 Sæll Slm 1.1+; 34.9 – leita hælis hjá Drottni Slm 118.8-9; sbr Dóm 9.15