1Davíð hugsaði með sjálfum sér: Nú fell ég einhvern daginn fyrir hendi Sáls. Nú er það ráð vænst, að ég forði mér undan til Filistalands. Þá gefst Sál upp við að elta mig um allt Ísraelsland, og ég slepp úr greipum honum.2Síðan tók Davíð sig upp og fór með þau sex hundruð manns, er með honum voru, yfir til Akís Maókssonar, konungs í Gat.3Og Davíð settist að hjá Akís í Gat, bæði hann og menn hans, hver með sína fjölskyldu, Davíð með báðum konum sínum: Akínóam frá Jesreel og Abígail, þá er átt hafði Nabal í Karmel.4Og þegar Sál frétti, að Davíð væri flúinn til Gat, þá hætti hann að leita hans.5Davíð sagði við Akís: Hafi ég fundið náð í augum þínum, þá lát þú fá mér bústað í einhverri borg landsins. Hví skal þjónn þinn búa hjá þér í höfuðborginni?6Þá fékk Akís honum Siklag þann sama dag. Fyrir því liggur Siklag enn í dag undir Júda konunga.7En sá tími, sem Davíð bjó í Filistalandi, var eitt ár og fjórir mánuðir.8Davíð og menn hans fóru herför og gjörðu árás á Gesúríta, Gírsíta og Amalekíta, því að þeir bjuggu í landinu, sem náði frá Telam alla leið til Súr og Egyptalands.9Og þegar Davíð braust inn í þessi lönd, lét hann hvorki menn né konur lífi halda, en tók sauðfé og nautgripi, asna og úlfalda og klæði, sneri síðan við og fór aftur til Akís.10Og ef Akís spurði: Hvar hafið þér á ráðist í dag? þá svaraði Davíð: Í Júda sunnan til, eða: Á suðurland Jerahmeelíta, eða: Á suðurland Keníta.11En Davíð lét hvorki menn né konur lífi halda til þess að flytja það til Gat, með því að hann hugsaði: Þau kynnu að segja eftir oss og taka svo til orða: Svo hefir Davíð að farið. Og sá var siður hans allan þann tíma, sem hann bjó í Filistalandi.12Og Akís trúði Davíð, með því að hann hugsaði: Honum er ekki lengur vært hjá þjóð sinni Ísrael, og fyrir því mun hann ævinlega verða í minni þjónustu.

27.2 Til Akís 1Sam 21.11
27.3 Báðar konur Davíðs 1Sam 25.42-43; 30.5; 2Sam 2.2; 3.2-3
27.7 Dvalartími í Filistalandi 1Sam 29.3
27.8 Á Amalekíta 1Sam 30.1-20