1Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er, þegar bræður búa saman,2eins og hin ilmgóða olía á höfðinu, er rennur niður í skeggið, skegg Arons, er fellur niður á kyrtilfald hans,3eins og dögg af Hermonfjalli, er fellur niður á Síonfjöll. Því að þar hefir Drottinn boðið út blessun, lífi að eilífu.

133.2 Olía 2Mós 29.7-9; 30.30-32
133.3 Dögg Slm 110.3; 1Mós 27.28; 5Mós 32.2; Jes 26.19; Hós 14.6; Okv 9.12 – Hermon Slm 42.7 – Síon, blessun Slm 20.3+