1Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér,2svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum,3já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,4ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,5þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast þekking á Guði.6Því að Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.7Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,8með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna guðhræddu.9Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendni, í stuttu máli, sérhverja braut hins góða.10Því að speki mun koma í hjarta þitt, og þekking verða sálu þinni yndisleg.11Aðgætni mun vernda þig, og hyggindin varðveita þig,12til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals,13sem yfirgefa stigu einlægninnar og ganga á vegum myrkursins14sem hafa gleði af því að gjöra illt, fagna yfir illsku hrekkjum,15sem gjöra vegu sína hlykkjótta og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni,16til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu, frá blíðmálugri konu sem annar á,17sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns,18því að hús hennar hnígur í dauðann, og brautir hennar liggja niður til framliðinna,19þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur, og aldrei komast þeir á lífsins stigu,20til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra.21Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið, og hinir grandvöru verða eftir í því.22En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu, og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.

2.4 Spekin er fjársjóður Okv 8.11+
2.5 Ótti Drottins Okv 8.13+
2.6 Gjöf Guðs 2Mós 31.3; 1Kon 5.9; Préd 2.26; SSal 8.21; Sír 1.1; Lúk 21.15; Ef 1.17
2.7 Skjöldur Slm 3.4+
2.16 Léttúðardrós Okv 5.3,20; 6.24-7.27; 22.14; sbr 6.26+
2.18 Til framliðinna Okv 9.18; 21.16; Jes 14.9
2.21 Byggja landið 5Mós 5.33; Slm 37.9+
2.22 Hlutskipti ranglátra Okv 3.33+