1Drottinn sagði við Nóa: Gakk þú og allt fólk þitt í örkina, því að þig hefi ég séð réttlátan fyrir augliti mínu í þessari kynslóð.2Tak þú til þín af öllum hreinum dýrum sjö og sjö, karldýr og kvendýr, en af þeim dýrum, sem ekki eru hrein, tvö og tvö, karldýr og kvendýr.3Einnig af fuglum loftsins sjö og sjö, karlkyns og kvenkyns, til að viðhalda lífsstofni á allri jörðinni.4Því að sjö dögum liðnum mun ég láta rigna á jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur, og ég mun afmá af jörðinni sérhverja skepnu, sem ég hefi gjört.5Og Nói gjörði allt eins og Drottinn bauð honum.6En Nói var sex hundruð ára gamall, þegar vatnsflóðið kom yfir jörðina.7Og Nói gekk í örkina, og synir hans og kona hans og sonakonur hans með honum, undan vatnsflóðinu.8Af hreinum dýrum og af þeim dýrum, sem ekki voru hrein, og af fuglum og af öllu, sem skríður á jörðinni,9kom tvennt og tvennt til Nóa í örkina, karlkyns og kvenkyns, eins og Guð hafði boðið Nóa.10Eftir sjö daga kom vatnsflóðið yfir jörðina.11Á sexhundraðasta aldursári Nóa, í öðrum mánuðinum, á seytjánda degi mánaðarins, á þeim degi opnuðust allar uppsprettur hins mikla undirdjúps og flóðgáttir himinsins lukust upp.12Og steypiregn dundi yfir jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur.13Einmitt á þeim degi gekk Nói og Sem, Kam og Jafet, synir Nóa, og kona Nóa og þrjár sonakonur hans með þeim í örkina,14þau og öll villidýrin eftir sinni tegund og allur fénaðurinn eftir sinni tegund og öll skriðkvikindin, sem skríða á jörðinni, eftir sinni tegund, og allir fuglarnir eftir sinni tegund, allir smáfuglar, allt fleygt.15Og þau komu til Nóa í örkina tvö og tvö af öllu holdi, sem lífsandi var í.16Og þau, sem komu, gengu inn, karlkyns og kvenkyns af öllu holdi, eins og Guð hafði boðið honum. Og Drottinn læsti eftir honum.17Og flóðið var á jörðinni fjörutíu daga. Vatnið óx og lyfti örkinni, og hún hófst yfir jörðina.18Og vötnin mögnuðust og uxu stórum á jörðinni, en örkin flaut ofan á vatninu.19Og vötnin mögnuðust ákaflega á jörðinni, svo að öll hin háu fjöll, sem eru undir öllum himninum, fóru í kaf.20Fimmtán álna hátt óx vatnið, svo að fjöllin fóru í kaf.21Þá dó allt hold, sem hreyfðist á jörðinni, bæði fuglar, fénaður, villidýr og allir ormar, sem skriðu á jörðinni, og allir menn.22Allt sem hafði lífsanda í nösum sínum, allt sem var á þurrlendinu, það dó.23Og þannig afmáði hann sérhverja skepnu, sem var á jörðinni, bæði menn og fénað, skriðkvikindi og fugla loftsins. Það var afmáð af jörðinni. En Nói einn varð eftir, og það sem með honum var í örkinni.24Og vötnin mögnuðust á jörðinni hundrað og fimmtíu daga.

7.1 Réttlátur 1Mós 6.9+
7.2-3 Óhrein dýr og hrein 3Mós 11; 5Mós 14
7.4 Fjörutíu dagar 2Mós 24.18+
7.7 Nói gekk í örkina Matt 24.38 og hlst.
7.11 Flóðgáttir himins 1Mós 8.2; 2Kon 7.2,19; Jes 24.18; Matt 3.10
7.13 Sem, Kam og Jafet 1Mós 5.32