1Davíð safnaði enn saman öllu einvalaliði í Ísrael, þrjátíu þúsund manns.2Síðan tók Davíð sig upp og lagði af stað með allt það lið, sem hjá honum var, til Baala í Júda til þess að flytja þaðan örk Guðs, sem kennd er við nafn Drottins allsherjar, hans sem situr uppi yfir kerúbunum.3Og þeir óku örk Guðs á nýjum vagni og tóku hana úr húsi Abínadabs, því er stóð á hæðinni, og stýrðu þeir Ússa og Ahjó, synir Abínadabs, vagninum.4Ússa gekk með örk Guðs, en Ahjó gekk fyrir örkinni.5Og Davíð og allt Ísraels hús dansaði fyrir Drottni af öllum mætti, með söng, gígjum, hörpum, bumbum, bjöllum og skálabumbum.6En er þeir komu að þreskivelli Nakóns, greip Ússa hendinni í örk Guðs og hélt fast í hana, því að slakað hafði verið á taumhaldinu við akneytin.7Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ússa, og Guð laust hann þar, af því að hann hafði gripið hendi sinni í örkina, og dó hann þar hjá örk Guðs.8En Davíð féll það þungt, að Drottinn hafði lostið Ússa svo hart, og hefir þessi staður verið nefndur Peres Ússa allt fram á þennan dag.9Davíð varð hræddur við Drottin á þeim degi og sagði: Hvernig má þá örk Drottins komast til mín?10Og Davíð vildi ekki flytja örk Drottins til sín í Davíðsborg, heldur sneri hann með hana til húss Óbeð Edóms í Gat.11Og örk Drottins var síðan í húsi Óbeð Edóms í Gat þrjá mánuði, og Drottinn blessaði Óbeð Edóm og allt hans hús.12En er Davíð konungi komu þau tíðindi: Drottinn hefir blessað hús Óbeð Edóms og allt, sem hann á, sakir Guðs arkar, þá lagði Davíð af stað og sótti örk Guðs í hús Óbeð Edóms og flutti hana til Davíðsborgar með fögnuði.13Og er þeir, sem báru örk Drottins, höfðu gengið sex skref, fórnaði hann nauti og alikálfi.14Og Davíð dansaði af öllum mætti fyrir Drottni, og var Davíð þá gyrtur línhökli.15Og Davíð og allt Ísraels hús flutti örk Drottins upp með fagnaðarópi og lúðurhljómi.16En er örk Drottins kom í Davíðsborg, leit Míkal, dóttir Sáls, út um gluggann, og er hún sá Davíð konung vera að hoppa og dansa fyrir Drottni, fyrirleit hún hann í hjarta sínu.17Þeir fluttu örk Drottins inn og settu hana á sinn stað í tjaldi því, sem Davíð hafði reisa látið yfir hana, og Davíð færði brennifórnir frammi fyrir Drottni og heillafórnir.18Og er Davíð hafði fært brennifórnina og heillafórnirnar, blessaði hann lýðinn í nafni Drottins allsherjar.19Hann úthlutaði og öllu fólkinu, öllum múg Ísraels, bæði körlum og konum, hverjum fyrir sig einni brauðköku, einu kjötstykki og einni rúsínuköku. Síðan fór allur lýðurinn burt, hver heim til sín.20En er Davíð kom heim til þess að heilsa fólki sínu, gekk Míkal, dóttir Sáls, á móti honum og mælti: Tígulegur var Ísraelskonungurinn í dag, þar sem hann beraði sig í dag í augsýn ambátta þjóna sinna, eins og þegar einhver af argasta skrílnum berar sig!21Þá sagði Davíð við Míkal: Fyrir Drottni vil ég dansa. Hann hefir tekið mig fram yfir föður þinn og fram yfir allt hans hús og skipað mig höfðingja yfir lýð Drottins, yfir Ísrael, og fyrir Drottni vil ég leika22og lítillækka mig enn meir en þetta og líta smáum augum á sjálfan mig. En með ambáttunum, sem þú talaðir um, hjá þeim mun ég verða vegsamlegur.23Míkal, dóttir Sáls, var barnlaus til dauðadags.

6.1 Öllum vopnfærum mönnum 2Sam 10.9; 1Sam 24.3; 26.2
6.2 Flytja örkina 1Sam 7.1+ – situr yfir kerúbunum 2Mós 25.22+
6.3 Nýr vagn 1Sam 6.7+
6.5 Hljóðfæri Slm 150
6.7 Reiði Drotins 1Sam 5.6,9; 6.16; sbr 3Mós 10.1-6
6.8 Nefndur 2Sam 2.16+
6.9 Davíð varð hræddur 1Mós 28.17; 2Mós 14.31; 1Sam 4.7; 12.18; – örk Drottins 1Sam 5.7-11; 6.20
6.10 Sneri með hana 1Sam 7.1
6.11 Drottinn blessaði 1Kro 26.4-5; sbr 1Mós 30.30; 39.5
6.14 Davíð dansaði sbr 1Kon 18.26
6.16 Út um glugga Dóm 5.28; 2Kon 9.30
6.17 Á sinn stað 1Kon 8.6 – Davíð færði fórnir 1Kon 3.4; 8.63-64; 9.25; 2Kon 16.12-13; sbr 1Sam 13.7-15; 2Kro 26.16-20
6.18 Blessaði fólkið 1Kon 8.14,55
6.19-20 Fólkið fór burt 1Kro 16.43
6.21 Sem hefur valið mig 1Sam 13.14; 16; 1Kon 8.16; Slm 78.70; 1Kro 28.4; 2Kro 6.6