1Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt oss, að vér skulum kallast Guðs börn. Og það erum vér. Heimurinn þekkir oss ekki, vegna þess að hann þekkti hann ekki.2Þér elskaðir, nú þegar erum vér Guðs börn, og það er enn þá ekki orðið bert, hvað vér munum verða. Vér vitum, að þegar hann birtist, þá munum vér verða honum líkir, því að vér munum sjá hann eins og hann er.3Hver sem hefur þessa von til hans hreinsar sjálfan sig, eins og Kristur er hreinn.4Hver sem synd drýgir fremur og lögmálsbrot. Syndin er lögmálsbrot.5Þér vitið, að Kristur birtist til þess að taka burt syndir. Í honum er engin synd.6Hver sem er stöðugur í honum syndgar ekki, hver sem syndgar hefur ekki séð hann og þekkir hann ekki heldur.7Börnin mín, látið engan villa yður. Sá sem iðkar réttlætið er réttlátur, eins og Kristur er réttlátur.8Hver sem synd drýgir heyrir djöflinum til, því að djöfullinn syndgar frá upphafi. Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins.9Hver sem af Guði er fæddur drýgir ekki synd, því að það, sem Guð hefur í hann sáð, varir í honum. Hann getur ekki syndgað, af því að hann er fæddur af Guði.10Af þessu eru augljós börn Guðs og börn djöfulsins. Sá sem iðkar ekki réttlætið og elskar ekki bróður sinn heyrir ekki Guði til.11Því að þetta er sá boðskapur, sem þér hafið heyrt frá upphafi: Vér eigum að elska hver annan.12Ekki vera eins og Kain, sem heyrði hinum vonda til og myrti bróður sinn. Og af hverju myrti hann hann? Af því að verk hans voru vond, en verk bróður hans réttlát.13Undrist ekki, bræður, þótt heimurinn hati yður.14Vér vitum, að vér erum komnir yfir frá dauðanum til lífsins, af því að vér elskum bræður vora. Sá sem ekki elskar er áfram í dauðanum.15Hver sem hatar bróður sinn er manndrápari og þér vitið, að enginn manndrápari hefur eilíft líf í sér.16Af því þekkjum vér kærleikann, að Jesús lét lífið fyrir oss. Svo eigum vér og að láta lífið fyrir bræðurna.17Ef sá, sem hefur heimsins gæði, horfir á bróður sinn vera þurfandi og lýkur aftur hjarta sínu fyrir honum, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum?18Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum, heldur í verki og sannleika.19Af þessu munum vér þekkja, að vér erum sannleikans megin og munum geta friðað hjörtu vor frammi fyrir honum,20hvað sem hjarta vort kann að dæma oss fyrir. Því að Guð er meiri en hjarta vort og þekkir alla hluti.21Þér elskaðir, ef hjartað dæmir oss ekki, þá höfum vér djörfung til Guðs.22Og hvað sem vér biðjum um fáum vér hjá honum, af því að vér höldum boðorð hans og gjörum það, sem honum er þóknanlegt.23Og þetta er hans boðorð, að vér skulum trúa á nafn sonar hans Jesú Krists og elska hver annan, samkvæmt því sem hann hefur gefið oss boðorð um.24Sá sem heldur boðorð Guðs er stöðugur í Guði og Guð í honum. Að hann er stöðugur í oss þekkjum vér af andanum, sem hann hefur gefið oss.

3.1 Guðs börn Jóh 1.12; Róm 8.16; Gal 4.4-5; Ef 1.5; 1Jóh 3.10 – heimurinn þekkti hann ekki Jóh 16.3; 17.25; 1Kor 1.21; 1Jóh 4.8-9
3.2 Þegar hann birtist 1Jóh 2.28 – honum lík 2Kor 3.18; Fil 3.21; Kól 3.4 – eins og hann er Jóh 17.24
3.3 Heinsar sjálfan sig 2Kor 7.1 – eins og Kristur 1Jóh 2.6+
3.4 Lögmálsbrot, tákn hinna síðustu tíma Matt 7.23; 13.41; 24.12; 2Þess 2.3-7
3.5 Taka burt syndir Jes 53.4,5,9; Jóh 1.29; 1Pét 2.22-24; 1Jóh 2.2; 4.10 – í honum er engin synd Jóh 8.46; 9.16,24,31; 2Kor 5.21; Heb 4.15; 7.26; 9.14; 1Pét 1.19; 2.22; 3.18
3.6 Syndgar ekki Róm 6.14,17-18; 1Jóh 3.9
3.7 Iðka réttlæti 1Jóh 2.29; 3.10
3.8 Heyrir djöflinum til Jóh 8.34 – frá upphafi 1Mós 3.15; Jóh 8.44 – brjóta niður verk djöfulsins Mrk 1.24; Jóh 12.31; 16.11; Opb 12.9-11
3.9 Í hann sáð Lúk 8.12; 1Pét 1.23-24; 1Jóh 2.14,24; 2Jóh 2 – syndgar ekki Slm 37.31; 119.11; Jer 31.33-34; Esk 36.27-28; Róm 6.11; 1Jóh 5.18
3.10 Börn Guðs 1Jóh 3.1+
3.11 Elska hvert annan Jóh 13.34; 15.12,17; 1Jóh 2.7; 3.23; 2Jóh 5
3.12 Kain og Abel 1Mós 4.1-8; Heb 11.4
3.13 Þótt heimurinn hati ykkur Lúk 6.22; Jóh 15.18-19; 17.14
3.14 Frá dauðanum til lífsins Jóh 5.24 – elska ekki 1Jóh 2.11
3.15 Hver sem hatar Matt 5.21-22; sbr 1Jóh 2.9 – hefur ekki í sér eilíft líf Jóh 8.44; Gal 5.20-21; Opb 21.8
3.16 Hinn sanni kærleikur Jóh 10.11,15,17; 13.1; 15.13; Gal 2.20; 1Tím 2.6; Tít 2.14; 1Jóh 4.16 – einnig við Fil 2.17; 1Þess 2.8
3.17 Lýkur aftur hjarta sínu 5Mós 15.7-8; Lúk 10.31-32; Jak 2.15-16
3.18 Elska í verki Gal 5.6; Jak 2.14-17 – og í sannleika 2Jóh 1-2
3.19 Friðað hjörtu okkar Okv 10.12; 1Pét 4.8
3.20 Dæma Lúk 18.13 – Guð þekkir allt 1Kon 8.39; Slm 7.10; Post 15.8
3.21 Djörfung Heb 4.16; 1Jóh 5.14
3.22 Hvað sem við biðjum um Jer 29.12-13; Matt 7.7-8; 21.22; Mrk 11.24; Jóh 14.13; 15.7; 16.23-24; Róm 8.26-27; Jak 1.5; 1Jóh 5.14-15
3.23 Trú Jóh 6.29; Róm 10.14 – trúa og elska hvert annað 1Jóh 5.1-5 – boðorð hans 1Þess 4.9; 1Pét 1.22; 1Jóh 3.11+ ; 4.21
3.24 Stöðugir Jóh 14.23; 1Jóh 2.27 – andinn Róm 8.9; 1Jóh 4.13