1Á þriðja ríkisári Hósea Elasonar Ísraelskonungs tók ríki Hiskía Akasson Júdakonungs.2Hann var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Abía Sakaríadóttir.3Hann gjörði það, sem rétt var í augum Drottins, að öllu svo sem gjört hafði Davíð forfaðir hans.4Hann afnam fórnarhæðirnar, braut merkissteinana, hjó í sundur aséruna og mölvaði eirorminn, þann er Móse hafði gjöra látið, því að allt til þess tíma höfðu Ísraelsmenn fært honum reykelsisfórnir, og var hann nefndur Nehústan.5Hiskía treysti Drottni, Ísraels Guði, svo að eftir hann var enginn honum líkur meðal allra Júdakonunga og eigi heldur neinn þeirra, er á undan honum höfðu verið.6Hann hélt sér fast við Drottin, veik eigi frá honum og varðveitti boðorð hans, þau er Drottinn hafði lagt fyrir Móse.7Og Drottinn var með honum. Í öllu því, er hann tók sér fyrir hendur, var hann lánsamur. Hann braust undan Assýríukonungi og var ekki lengur lýðskyldur honum.8Hann vann og sigur á Filistum alla leið til Gasa og eyddi landið umhverfis hana, jafnt varðmannaturna sem víggirtar borgir.9En á fjórða ríkisári Hiskía konungs það er á sjöunda ríkisári Hósea Elasonar Ísraelskonungs fór Salmaneser Assýríukonungur herför gegn Samaríu og settist um hana.10Unnu þeir hana eftir þrjú ár. Á sjötta ríkisári Hiskía það er á níunda ríkisári Hósea Ísraelskonungs var Samaría unnin.11Og Assýríukonungur herleiddi Ísrael til Assýríu og lét þá setjast að í Hala og við Habór, fljótið í Gósan, og í borgum Meda,12af því að þeir höfðu ekki hlýtt raustu Drottins, Guðs þeirra, heldur rofið sáttmála hans, allt það er Móse, þjónn Drottins, hafði boðið. Þeir höfðu hvorki hlýtt því né breytt eftir því.13Á fjórtánda ríkisári Hiskía konungs fór Sanheríb Assýríukonungur herför gegn öllum víggirtum borgum í Júda og vann þær.14Þá sendi Hiskía Júdakonungur boð til Assýríukonungs til Lakís og lét segja honum: Ég hefi syndgað, far aftur burt frá mér. Mun ég greiða þér slíkt gjald, er þú á mig leggur. Þá lagði Assýríukonungur þrjú hundruð talentur silfurs og þrjátíu talentur gulls á Hiskía Júdakonung.15Greiddi þá Hiskía allt silfur, er til var í musteri Drottins og fjárhirslum konungshallarinnar.16Um þær mundir tók Hiskía gullið af dyrunum á musteri Drottins og af dyrastöfunum, er Hiskía Júdakonungur hafði lagt þá með, og fékk Assýríukonungi.17Þá sendi Assýríukonungur yfirhershöfðingja sinn, höfuðsmann og marskálk með miklu liði frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Fóru þeir af stað og komu til Jerúsalem og námu staðar hjá vatnsstokknum úr efri tjörninni, sem er við veginn út á bleikivöllinn.18Og er þeir komu á fund konungs, þá gengu þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari út til þeirra.19Marskálkur konungs mælti til þeirra: Segið Hiskía: Svo segir hinn mikli konungur, Assýríukonungur: Hvert er það athvarf, er þú treystir á?20Þú hyggur víst, að munnfleiprið eitt sé næg ráðagerð og liðstyrkur til hernaðar. Á hvern treystir þú þá svo, að þú skulir hafa gjört uppreisn í gegn mér?21Nú, þú treystir þá á þennan brotna eirstaf, á Egyptaland! Hann stingst upp í höndina á hverjum þeim, er við hann styðst, og fer í gegnum hana. Slíkur er Faraó Egyptalandskonungur öllum þeim, er á hann treysta.22Og ef þér segið við mig: Vér treystum á Drottin, Guð vorn, eru það þá ekki fórnarhæðir hans og ölturu, sem Hiskía hefir numið burt, er hann sagði við Júdamenn og Jerúsalembúa: Fyrir þessu altari skuluð þér fram falla í Jerúsalem?23Kom til og veðja við herra minn, Assýríukonunginn: Ég skal fá þér tvö þúsund hesta, ef þú getur sett riddara á þá.24Hvernig munt þú fá rekið af höndum þér einn höfuðsmann meðal hinna minnstu þjóna herra míns? Og þó treystir þú á Egyptaland vegna hervagnanna og riddaranna!25Hvort mun ég nú hafa farið til þessa staðar án vilja Drottins til þess að eyða hann? Drottinn sagði við mig: Far þú inn í þetta land og eyð það.26Þá sögðu þeir Eljakím Hilkíason, Sébna og Jóak við marskálk konungs: Tala þú við þjóna þína á arameísku, því að vér skiljum hana, en tala eigi við oss á Júda tungu í áheyrn fólksins, sem uppi er á borgarveggnum.27En marskálkurinn sagði við þá: Hefir herra minn sent mig til herra þíns eða til þín til þess að flytja þetta erindi? Hefir hann ekki sent mig til þeirra manna, sem þar sitja uppi á borgarveggnum og eiga þann kost fyrir höndum ásamt yður að eta sinn eigin saur og drekka þvag sitt?28Þá gekk marskálkurinn fram og kallaði hárri röddu á Júda tungu, tók til máls og sagði: Heyrið orð hins mikla konungs, Assýríukonungs!29Svo segir konungurinn: Látið eigi Hiskía tæla yður, því að hann fær ekki frelsað yður af hans hendi.30Og látið eigi Hiskía koma yður til að treysta á Drottin með því að segja: Drottinn mun vissulega frelsa oss, og þessi borg skal ekki verða Assýríukonungi í hendur seld.31Hlustið eigi á Hiskía! Því að svo segir Assýríukonungur: Gjörið frið við mig og gangið mér á hönd, þá skal hver yðar mega eta af sínum vínviði og sínu fíkjutré og hver yðar drekka vatn úr sínum brunni,32þar til er ég kem og flyt yður í annað eins land og yðar land, í kornland og aldinlagar, í brauðland og víngarða, í olíuviðarland og hunangs, svo að þér megið lifa og eigi deyja. Hlustið því eigi á Hiskía! Því að hann ginnir yður, er hann segir: Drottinn mun frelsa oss.33Hefir nokkur af guðum þjóðanna frelsað land sitt undan hendi Assýríukonungs?34Hvar eru guðir Hamatborgar og Arpadborgar? Hvar eru guðir Sefarvaím, Hena og Íva? Hafa þeir frelsað Samaríu undan minni hendi?35Hverjir eru þeir af öllum guðum landanna, er frelsað hafi lönd sín undan minni hendi, svo að Drottinn skyldi fá frelsað Jerúsalem undan minni hendi?36En lýðurinn þagði og svaraði honum engu orði, því að skipun konungs var þessi: Svarið honum eigi.37En þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari gengu á fund Hiskía með sundurrifnum klæðum og fluttu honum orð marskálksins.

18.5 Enginn honum líkur sbr 1Kon 3.12+
18.9 Salmaneser 2Kon 17.3
18.11 Herleiðing 2Kon 15.29+
18.13 Sanheríb 2Kon 19.20,36 og hlst.; Sír 48.18
18.15 Fjársjóður musterisins 2Kon 12.19+
18.18 Hirðsstjóri 1Kon 4.6
18.21 Treysta á Egyptaland 2Kon 17.4; 1Kon 11.14-22; Jes 30.1-7;31.1-3; Jer 42-43; Esk 29.6-7
18.32 Drottinn mun bjarga okkur 2Kon 20.6; Slm 97.10; Dan 3.15-17; Lúk 1.74