1Hann sagði við lærisveina sína: Eigi verður umflúið, að til ginninga komi, en vei þeim er veldur.2Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls.3Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum.4Og þótt hann misgjöri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: Ég iðrast, þá skalt þú fyrirgefa honum.5Postularnir sögðu við Drottin: Auk oss trú!6En Drottinn sagði: Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum, og það mundi hlýða yður.7Hafi einhver yðar þjón, er plægir eða hirðir fénað, segir hann þá við hann, þegar hann kemur inn af akri: Kom þegar og set þig til borðs?8Segir hann ekki fremur við hann: Bú þú mér kvöldverð, gyrð þig og þjóna mér, meðan ég et og drekk, síðan getur þú etið og drukkið.9Og er hann þakklátur þjóni sínum fyrir að gjöra það, sem boðið var?10Eins skuluð þér segja, þá er þér hafið gjört allt, sem yður var boðið: Ónýtir þjónar erum vér, vér höfum gjört það eitt, sem vér vorum skyldir að gjöra.11Svo bar við á ferð hans til Jerúsalem, að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu.12Og er hann kom inn í þorp nokkurt, mættu honum tíu menn líkþráir. Þeir stóðu álengdar,13hófu upp raust sína og kölluðu: Jesús, meistari, miskunna þú oss!14Er hann leit þá, sagði hann við þá: Farið og sýnið yður prestunum. Þeir héldu af stað og nú brá svo við, að þeir urðu hreinir.15En einn þeirra sneri aftur, er hann sá, að hann var heill orðinn, og lofaði Guð hárri raustu.16Hann féll fram á ásjónu sína að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji.17Jesús sagði: Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu?18Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?19Síðan mælti Jesús við hann: Statt upp, og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.20Farísear spurðu hann, hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri.21Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það, því Guðs ríki er innra með yður.22Og hann sagði við lærisveinana: Þeir dagar munu koma, að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá.23Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því.24Eins og elding, sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars, svo mun Mannssonurinn verða á degi sínum.25En fyrst á hann margt að líða og útskúfaður verða af þessari kynslóð.26Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins:27Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina, og flóðið kom og tortímdi öllum.28Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu.29En daginn, sem Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum.30Eins mun verða á þeim degi, er Mannssonurinn opinberast.31Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu, fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri, skal ekki heldur hverfa aftur.32Minnist konu Lots.33Sá sem vill sjá lífi sínu borgið, mun týna því, en sá sem týnir því, mun öðlast líf.34Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.35Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.36Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.37Þeir spurðu hann þá: Hvar, herra? En hann sagði við þá: Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.

17.1-4 Hlst. Matt 18.6-7,21-22; Mrk 9.42
17.1 Orsakir hneykslunar Matt 5.29+
17.5 Postular Lúk 6.13+ – auk oss trú Mrk 9.24
17.6 Ef þér hefðuð trú … Matt 21.21; Mrk 11.23 – mustarðskorn Matt 13.32; Mrk 4.31 – trúin megnar allt sbr 1Kor 13.2; Jes 40.4
17.8 Tak þig til Lúk 12.35+
17.10 Ónýtir þjónar Matt 25.30
17.11 Til Jerúsalem Lúk 9.51; 13.22; 19.28 – á mörkum Samaríu Lúk 9.52; Jóh 4.4
17.12 Líkþráir Matt 8.2+ – stóðu álengdar 3Mós 13.46
17.13 Meistari Lúk 5.5+ – miskunna þú oss Matt 9.27; 15.22; Lúk 18.38 og hlst.
17.14 Sýnið ykkur prestunum 3Mós 14.2-3; Lúk 5.14 og hlst.
17.15 Lofaði Guð Lúk 2.20+
17.16 Samverji Lúk 9.52+
17.19 Trú þín hefur bjargað þér Lúk 7.50+
17.20-37 Hlst. Matt 24.23-28,37-41
17.20 Guðs ríki Matt 6.10+ ; sbr Matt 3.2+ – ekki þannig, að á því beri sbr Jóh 3.3; 18.36
17.21 Hér er það … Matt 24.23; Mrk 13.21; Lúk 17.23 – innra með yður sbr Lúk 11.20
17.22 Mannssonurinn Matt 8.20+
17.23 Hlaupið ekki eftir því Lúk 19.11; 21.8,9
17.24 Koma Mannssonarins Matt 10.23+
17.25 Hann á margt að líða Matt 16.21; Mrk 8.31+ – þjáningar Mannssonarins Lúk 9.22 og hlst.; 18.32-33 og hlst.
17.26 Á dögum Nóa 1Mós 6.5-12
17.27 Gekk í örkina 1Mós 7.6-23
17.28 Á dögum Lots 1Mós 18.20-21; 19.1-14
17.29 Rigndi eldi og brennisteini 1Mós 19.24
17.31 Á þaki uppi Matt 24.17-18; Mrk 13.15-16 – ekki hverfa aftur 1Mós 19.17; sbr Jer 4.6; 6.1; 48.6; 49.8,30; 51.6
17.32 Kona Lots 1Mós 19.26
17.33 Sjá borgið – týna Matt 10.39; 16.25; Mrk 8.35; Lúk 9.24; Jóh 12.25
17.34-35 Annar tekinn, hinn eftir skilinn Matt 24.40-41
17.37 Hræ og ernir Job 39.30; Matt 24.28