1Pétur postuli Jesú Krists heilsar hinum útvöldu, sem eru dreifðir sem útlendingar í Pontus, Galatíu, Kappadókíu, Asíu og Biþýníu,2en útvaldir samkvæmt fyrirvitund Guðs föður og helgaðir af anda hans til að hlýðnast Jesú Kristi og verða hreinsaðir með blóði hans. Náð og friður margfaldist með yður.3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum,4til óforgengilegrar, flekklausrar og ófölnandi arfleifðar, sem yður er geymd á himnum.5Kraftur Guðs varðveitir yður fyrir trúna til þess að þér getið öðlast hjálpræðið, sem er þess albúið að opinberast á síðasta tíma.6Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum.7Það er til þess að trúarstaðfesta yðar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó stenst eldraunina, geti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists.8Þér hafið ekki séð hann, en elskið hann þó. Þér hafið hann ekki nú fyrir augum yðar, en trúið samt á hann og fagnið með óumræðilegri og dýrlegri gleði,9þegar þér eruð að ná takmarki trúar yðar, frelsun sálna yðar.10Þessa frelsun könnuðu spámennirnir og rannsökuðu vandlega þegar þeir töluðu um þá náð, sem yður mundi hlotnast.11Þeir rannsökuðu, til hvers eða hvílíks tíma andi Krists, sem í þeim bjó, benti, þá er hann vitnaði fyrirfram um píslir Krists og dýrðina þar á eftir.12En þeim var opinberað, að eigi væri það fyrir sjálfa þá, heldur fyrir yður, að þeir þjónuðu að þessu, sem yður er nú kunngjört af þeim, sem boðuðu yður fagnaðarerindið í heilögum anda, sem er sendur frá himni. Inn í þetta fýsir jafnvel englana að skyggnast.13Gjörið því hugi yðar viðbúna og vakið. Setjið alla von yðar til þeirrar náðar, sem yður mun veitast við opinberun Jesú Krists.14Verið eins og hlýðin börn og látið eigi framar lifnað yðar mótast af þeim girndum, er þér áður létuð stjórnast af í vanvisku yðar.15Verðið heldur sjálfir heilagir í allri hegðun, eins og sá er heilagur, sem yður hefur kallað.16Ritað er: Verið heilagir, því ég er heilagur.17Fyrst þér ákallið þann sem föður, er dæmir án manngreinarálits eftir verkum hvers eins, þá gangið fram í guðsótta útlegðartíma yðar.18Þér vitið, að þér voruð eigi leystir með hverfulum hlutum, silfri eða gulli, frá fánýtri hegðun yðar, er þér höfðuð að erfðum tekið frá feðrum yðar,19heldur með blóði hins lýtalausa og óflekkaða lambs, með dýrmætu blóði Krists.20Hann var útvalinn, áður en veröldin var grundvölluð, en var opinberaður í lok tímanna vegna yðar.21Fyrir hann trúið þér á Guð, er vakti hann upp frá dauðum og gaf honum dýrð, svo að trú yðar skyldi jafnframt vera von til Guðs.22Þér hafið hreinsað yður með því að hlýða sannleikanum og berið hræsnislausa bróðurelsku í brjósti. Elskið því hver annan af heilu hjarta.23Þér eruð endurfæddir, ekki af forgengilegu sæði, heldur óforgengilegu, fyrir orð Guðs, sem lifir og varir.24„Því að: Allt hold er sem gras og öll vegsemd þess sem blóm á grasi; grasið skrælnar og blómið fellur.“25En orð Drottins varir að eilífu. Og þetta orð er fagnaðarerindið, sem yður hefur verið boðað.

1.1 Hin útvöldu 1Pét 2.4,9; 5.13; sbr 1.15-16 – dreifðir Jóh 7.35; Jak 1.1 – Pontus Post 2.9; 18.2 – Galatía Post 16.6+ – Kappadókía Post 2.9 – Asía Post 19.10+ – Biþýnía Post 16.7
1.2 Samkvæmt fyrirvitund Guðs Róm 8.29 – helguð af anda 2Þess 2.13 – hreinsast með blóði hans 2Mós 24.3-8; 3Mós 16.14-15; Heb 12.24 – náð og friður margfaldist 2Pét 1.2; Júd 2
1.3 Lofaður sé Guð, faðir 2Kor 1.3; Ef 1.3 – endurfæða 1Pét 1.23; sbr 2.2
1.4 Arfleið Matt 25.34
1.5 Varðveitir Jóh 10.28; 17.11
1.6 Margs konar raunir Jak 1.2
1.7 Trúfesti Job 23.10, Slm 66.10; Okv 17.3; Jak 1.3 – eldraun Jes 48.10; Sak 13.9; Mal 3.3; 1Kor 3.13 – lof, dýrð og heiður Ef 1.6,12,16 – opinberun Jesú Krists 1Pét 1.13; 4.13
1.8 Ekki nú fyrir augum Jóh 20.29; 2Kor 5.7
1.9 Takmark trúarinnar Róm 6.22
1.10 Spámennirnir rannsökuðu Matt 13.17; Lúk 10.24
1.11 Sagt fyrir um píslir Krists Slm 22; Jes 53; Lúk 24.26; sbr 2Pét 1.19
1.12 Boðun fagnaðarerindisins og heilagur andi Post 1.8; 1Kor 2.4; 1Þess 1.5 – englarnir og fagnaðarerindið Ef 3.10
1.13 Verið viðbúin Lúk 12.35+
1.14 Hlýðin börn 1Pét 1.2,22; sbr 2.13,18; 3.1,5; 5.5 – látið ekki mótast af … Róm 12.2; Ef 4.17-18 – stjórnast af girndum Ef 2.3
1.16 Verið heilög … 3Mós 11.44-45; 19.2; 20.7
1.17 Ákalla sem föður Slm 89.27; Jes 64.7; Jer 3.19; Matt 6.9; Lúk 11.2; sbr SSal 14.3; Sír 23.4 – dæma án manngreinarálits Post 10.34+ – eftir verkum hvers og eins Slm 28.4; 62.13; Okv 24.12; Jes 59.18; Jer 17.10; Róm 2.6; 1Kor 3.8; 2Kor 11.15; 2Tím 4.14; Opb 2.23; 18.6; 20.12-13; 22.12
1.18 Guð frelsar 5Mós 7.8; 15.15; Jes 41.14; 43.1 o.fl.; Slm 130.8; Róm 3.24; 1Kor 1.30; Ef 1.7; Kól 1.14
1.19 Með dýrmætu blóði Krists Post 20.28; Heb 9.12; 1Pét 1.2 – lýtalaus og óflekkaður 2Mós 12.5
1.20 Útvalinn Post 2.23 – fyrir sköpun heims Ef 1.4
1.21 Fyrir hann trúið þið … Jóh 14.6; Róm 5.1-2 – vakti Jesú upp frá dauðum Róm 4.24; 10.9
1.22 Hlýða sannleikanum Róm 1.5; 16.26 – elska hvert til annars Jóh 13.34; Róm 12.10
1.23 Endurfædd Jóh 1.13 – fyrir orð Guðs Heb 4.12 – lifir og varir Dan 6.27 – sæði Matt 13.3-9,19 og hlst.
1.24-25 Menn eru gras … Jes 40.6-8; sbr Jak 1.10-11
1.25 Orðið, fagnaðarerindið sbr Jes 40.9