1Þegar vér höfðum slitið oss frá þeim, létum vér í haf og héldum beina leið til Kós, næsta dag til Ródus og þaðan til Patara.2Þar hittum vér á skip, er fara átti til Fönikíu. Stigum vér á það og létum í haf.3Vér höfðum landsýn af Kýpur, létum hana á bakborða og sigldum til Sýrlands og tókum höfn í Týrus. Þar átti skipið að leggja upp farminn.4Vér fundum lærisveinana og dvöldumst þar sjö daga. Þeir sögðu Páli af gift andans, að hann skyldi ekki halda áfram til Jerúsalem.5Að þessum dögum liðnum lögðum vér af stað. Fylgdu þeir oss allir á veg með konum og börnum út fyrir borgina. Vér féllum á kné í fjörunni og báðumst fyrir.6Þar kvöddumst vér. Vér stigum á skip, en hinir sneru aftur heim til sín.7Vér komum til Ptólemais frá Týrus og lukum þar sjóferðinni. Vér heilsuðum bræðrunum og dvöldumst hjá þeim einn dag.8Daginn eftir fórum vér þaðan og komum til Sesareu, gengum inn í hús Filippusar trúboða, sem var einn af þeim sjö, og dvöldumst hjá honum.9Hann átti fjórar ógiftar dætur, gæddar spádómsgáfu.10Þegar vér höfðum dvalist þar nokkra daga, kom spámaður einn ofan frá Júdeu, Agabus að nafni.11Hann kom til vor, tók belti Páls, batt fætur sína og hendur og mælti: Svo segir heilagur andi: Þannig munu Gyðingar í Jerúsalem binda þann mann, sem þetta belti á, og selja hann í hendur heiðingjum.12Þegar vér heyrðum þetta, lögðum vér og heimamenn að Páli að fara ekki upp til Jerúsalem.13En hann sagði: Hví grátið þér og hrellið hjarta mitt? Ég er eigi aðeins reiðubúinn að láta binda mig, heldur og að deyja í Jerúsalem fyrir nafn Drottins Jesú.14Honum varð eigi talið hughvarf. Þá létum vér kyrrt og sögðum: Verði Drottins vilji.15Að þessum dögum liðnum bjuggumst vér til ferðar og héldum upp til Jerúsalem.16Nokkrir lærisveinar frá Sesareu urðu oss samferða. Þeir fóru með oss til Mnasons nokkurs frá Kýpur, lærisveins frá elstu tíð, og skyldum vér gista hjá honum.17Þegar vér komum til Jerúsalem, tóku bræðurnir oss feginsamlega.18Næsta dag gekk Páll með oss til Jakobs, og allir öldungarnir komu þangað.19Páll heilsaði þeim og lýsti síðan nákvæmlega öllu, sem Guð hafði gjört meðal heiðingjanna með þjónustu hans.20Þeir vegsömuðu Guð fyrir það, sem þeir heyrðu, og sögðu við hann: Þú sérð, bróðir hve margir tugir þúsunda það eru meðal Gyðinga, sem trú hafa tekið, og allir eru þeir vandlátir um lögmálið.21En þeim hefur verið sagt, að þú kennir öllum Gyðingum, sem eru meðal heiðingja, að hverfa frá Móse og segir, að þeir skuli hvorki umskera börn sín né fylgja siðum vorum.22Hvað á nú að gjöra? Víst mun það spyrjast, að þú ert kominn.23Gjör því þetta, sem vér nú segjum þér. Hjá oss eru fjórir menn, sem heit hvílir á.24Tak þá með þér, lát hreinsast með þeim og ber kostnaðinn fyrir þá, að þeir geti látið raka höfuð sín. Þá mega allir sjá, að ekkert er hæft í því, sem þeim hefur verið sagt um þig, heldur gætir þú lögmálsins sjálfur í breytni þinni.25En um heiðingja, sem trú hafa tekið, höfum vér gefið út bréf og ályktað, að þeir skuli varast kjöt fórnað skurðgoðum, blóð, kjöt af köfnuðum dýrum og saurlifnað.26Páll tók að sér mennina og lét hreinsast með þeim daginn eftir. Síðan gekk hann inn í helgidóminn og gjörði kunnugt, hvenær hreinsunardagarnir væru á enda og fórnin fyrir hvern þeirra skyldi fram borin.27Þegar dagarnir sjö voru nær liðnir, sáu Gyðingar frá Asíu Pál í helgidóminum. Þeir komu öllu fólkinu í uppnám, lögðu hendur á hann28og hrópuðu: Ísraelsmenn, veitið nú lið. Þetta er maðurinn, sem alls staðar kennir öllum það, sem er andstætt lýðnum, lögmálinu og þessum stað. Og nú hefur hann auk heldur farið með Grikki inn í helgidóminn og saurgað þennan heilaga stað.29En þeir höfðu áður séð Trófímus frá Efesus með honum í borginni og hugðu, að Páll hefði farið með hann inn í helgidóminn.30Öll borgin varð uppvæg, fólk þusti að, þeir tóku Pál og drógu hann út úr helgidóminum. Jafnskjótt var dyrunum læst.31Þeir ætluðu að lífláta hann, en hersveitarforingjanum var tjáð, að öll Jerúsalem væri í uppnámi.32Hann brá við og tók með sér hermenn og hundraðshöfðingja og hljóp niður til þeirra. Þegar þeir sáu hersveitarforingjann og hermennina, hættu þeir að berja Pál.33Hersveitarforinginn kom þá að, tók hann og skipaði að binda hann tvennum fjötrum og spurði, hver hann væri og hvað hann hefði gjört.34En sitt kallaði hver í mannfjöldanum. Þegar hann gat ekki orðið neins vísari sökum óróans, bauð hann að fara með hann upp í kastalann.35Þegar komið var að þrepunum, urðu hermennirnir að bera hann vegna ofsans í fólkinu,36en múgur manns fylgdi eftir og æpti: Burt með hann!37Um leið og fara átti með Pál inn í kastalann, segir hann við hersveitarforingjann: Leyfist mér að tala nokkur orð við þig? Hann svaraði: Kannt þú grísku?38Ekki ert þú þá Egyptinn, sem æsti til uppreisnar á dögunum og fór með morðvargana fjögur þúsund út í óbyggðir.39Páll sagði: Ég er Gyðingur, frá Tarsus í Kilikíu, borgari í ekki ómerkum bæ. Ég bið þig, leyf mér að tala til fólksins.40Hann leyfði það. Páll bandaði hendi til fólksins, þar sem hann stóð á þrepunum. Þegar hann hafði fengið gott hljóð, mælti hann til þeirra á hebreska tungu:

21.1 Við (frásögn í fyrstu persónu fleirtölu) Post 16.10+
21.4 Lærisveinarnir Post 6.1+ – Páll varaður við Post 20.23
21.5 Beðist fyrir á skilnaðarstundu Post 20.36
21.8 Filippus, einn af þeim sjö Post 8.5+ – trúboði Ef 4.11; 2Tím 4.5
21.9 Dætur, gæddar spádómsgáfu Jl 3.1; Post 2.17; 1Kor 11.5; sbr 1Kor 14.33; 1Tím 2.11-12 – spámenn Post 11.27+
21.10 Spámaðurinn Agabus Post 11.28
21.11 Sagt fyrir um handtöku Páls Post 20.23; 21.10-12; sbr Jóh 21.18
21.12 Heimamenn Post 1.15+ – að fara ekki sbr Matt 16.22
21.13 Reiðubúinn að deyja Post 20.24 – nafn Post 3.16+
21.14 Verði Drottins vilji Lúk 22.42 og hlst.
21.16 Lærisveinarnir Post 6.1+ – Sesarea Post 23.23+
21.17 Söfnuðurinn Post 1.15+
21.18 Heimsókn öldunga safnaðarins Post 15.2 – Jakob Post 15.13+ – öldungarnir Post 11.30+
21.19 Páll segir frá Post 14.27; 15.3-4,12
21.20 Þúsundir meðal Gyðinga Post 5.14; 6.7; sbr Post 2.41+ – vandlátir um lögmálið Post 15.1,5
21.21 Hverfa frá Móse Post 18.13; 21.28; 28.17; sbr Post 6.11-14; 15.1,5 – Páll og umskurnin Post 16.3; Gal 2.3 – kenning Páls Róm 2.25-29; 3.21-26; 10.4; Gal 3.22
21.23-24 Heit hvílir á 4Mós 6.5,13-18,21; Post 18.18
21.25 Um heiðinga Post 15.19-20,28-29
21.26 Páll gætir lögmálsins 1Kor 9.20; Post 21.23-24+
21.28 Kennir andstætt lögmáli Móse Post 21.21+ – Grikkir í helgidóminum Esk 44.7
21.33 Páll fjötraður sbr Post 20.23; 21.11
21.36 Burt með hann Lúk 23.18; Jóh 19.15; Post 22.22
21.38 Uppreisnarforingi Post 5.36-37
21.39 Borgari í Tarsus Post 9.11; 22.3
21.40 Banda hendi Post 12.17; 13.16; 19.33 – á hebreska tungu Post 26.14