1Sjá, ég sendi sendiboða minn, og hann mun greiða veginn fyrir mér. Og bráðlega mun hann koma til musteris síns, sá Drottinn er þér leitið, og engill sáttmálans, sá er þér þráið. Sjá, hann kemur segir Drottinn allsherjar.2En hver má afbera þann dag, er hann kemur, og hver fær staðist, þegar hann birtist? Því að hann er sem eldur málmbræðslumannsins og sem lútarsalt þvottamannanna.3Og hann mun sitja og bræða og hreinsa silfrið, og hann mun hreinsa levítana og gjöra þá skíra sem gull og silfur, til þess að Drottinn hafi aftur þá menn, er bera fram fórnir á þann hátt sem rétt er,4og þá munu fórnir Júdamanna og Jerúsalembúa geðjast Drottni eins og forðum daga og eins og á löngu liðnum árum.5En ég mun nálægja mig yður til að halda dóm og mun skyndilega fram ganga sem vitni í gegn töframönnum, hórdómsmönnum og meinsærismönnum og í gegn þeim, sem hafa af daglaunamönnum, ekkjum og munaðarleysingjum og halla rétti útlendinga, en óttast mig ekki segir Drottinn allsherjar.6Ég, Drottinn, hefi ekki breytt mér, og þér, Jakobssynir, eruð samir við yður.7Allt í frá dögum feðra yðar hafið þér vikið frá setningum mínum og ekki gætt þeirra. Snúið yður til mín, þá mun ég snúa mér til yðar segir Drottinn allsherjar. En þér spyrjið: Að hverju leyti eigum vér að snúa oss?8Á maðurinn að pretta Guð, úr því að þér prettið mig? Þér spyrjið: Í hverju höfum vér prettað þig? Í tíund og fórnargjöfum.9Mikil bölvun hvílir yfir yður, af því að þér prettið mig, öll þjóðin.10Færið alla tíundina í forðabúrið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt segir Drottinn allsherjar, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun.11Og ég mun hasta á átvarginn fyrir yður, til þess að hann spilli ekki fyrir yður gróðri jarðarinnar og víntréð á akrinum verði yður ekki ávaxtarlaust segir Drottinn allsherjar.12Þá munu allar þjóðir telja yður sæla, því að þér munuð vera dýrindisland segir Drottinn allsherjar.13Hörð eru ummæli yðar um mig segir Drottinn. Og þér spyrjið: Hvað höfum vér þá sagt vor í milli um þig?14Þér segið: Það er til einskis að þjóna Guði, eða hvaða ávinning höfum vér af því haft, að vér varðveittum boðorð hans og gengum í sorgarbúningi fyrir augliti Drottins allsherjar?15Fyrir því teljum vér nú hina hrokafullu sæla. Þeir þrifust eigi aðeins vel, þá er þeir höfðu guðleysi í frammi, heldur freistuðu þeir og Guðs, og sluppu óhegndir.16Þá mæltu þeir hver við annan, sem óttast Drottin, og Drottinn gaf gætur að því og heyrði það, og frammi fyrir augliti hans var rituð minnisbók fyrir þá, sem óttast Drottin og virða hans nafn.17Þeir skulu vera mín eign segir Drottinn allsherjar á þeim degi, sem ég hefst handa, og ég mun vægja þeim, eins og maður vægir syni sínum, sem þjónar honum.18Þá munuð þér aftur sjá þann mismun, sem er á milli réttláts manns og óguðlegs, á milli þess, sem Guði þjónar, og hins, sem ekki þjónar honum.

3.1 Sendiboði minn Matt 11.10 – ryðja braut Jes 40.3 – skyndilega Jes 29.5-6; 47.9; 1Þess 5.
3.2 Hver fær staðist? Nah 1.6+ – daginn Jl 1.15+ – eins og eldur Mal 3.19 – í bræðsluofni Jes 1.25; Jer 9.6; Sak 13.9; Sír 2.5; 1Pét 1.7
3.4 Eins og forðum Jes 1.26
3.5 Vitni Mík 1.2 – gegn galdramönnum 2Mós 22.17; 3Mós 19.26; 5Mós 18.10; Gal 5.20 – hórkörlum Esk 16.15-19; Hós 2.4 – réttur ekkna, munaðarleysingja og útlendinga 5Mós 24.17-21; Jer 7.6
3.6 Drottinn breytist ekki 4Mós 23.19; sbr Hós 11.9 – Jakob prettari Jes 43.27; Hós 12.4
3.7 Snúa til Drottins Sak 1.3+
3.8 Tíund 3Mós 27.30-32; 4Mós 18.21-29; Neh 10.37
3.10 Tíund og blessun Okv 3.9-10; sbr 5Mós 28.8-12
3.14 Til hvers að þjóna Guði? Jes 58.3; Job 21.14-15 – frammi fyrir Guði 1Mós 17.1; 48.15; 1Kon 8.23; Slm 56.14; 116.9; sbr 1Mós 5.22; 6.9; Mík 6.8 – í sorg Slm 35.14; 38.7
3.15 Hrokagikkirnir eru sælir Mal 2.17+
3.16 Óttast Drottin Slm 15.4+ – rituð minnisbók Esk 13.9; Opb 3.5+
3.17 Mín eign 2Mós 19.5 (sbr 6.7); 5Mós 7.6; Esk 18.4; Slm 135.4+; Tít 2.14 – eins og faðir og sonur 2Sam 7.14; Slm 103.13; 2Kor 6.18
3.19 Dagurinn Jl 1.15+ – að hálmi Jes 47.14; Jl.2.5
3.20 Sól réttlætis sbr Lúk 1.78 – lækning Jes 57.18; Jer 33.6
3.21 Traðka Mík 4.11-13
3.22 Móse þjónn, hirðir Jes 63.11 – lögmál Móse 2Mós 24.12; 5Mós 33.4; Jós 1.7; 1Kon 2.3; 2Kon 23.25; Esr 7.6; Neh 8.1; Lúk 24.44 o.fl.
3.23 Elía 1Kon 17.24; 2Kon 2.1-17; Matt 17.1-13 – dagur Drottins Mal 3.19
3.24 Sætta feður við syni Lúk 1.17 – bann Jós 6.17; 7.1; 1Kon 20.42