1Ef spámaður eða draumamaður rís upp meðal yðar og boðar þér tákn eða undur,2og táknið eða undrið rætist, það er hann hafði boðað þér og sagt um leið: Vér skulum snúa oss til annarra guða þeirra er þú hefir eigi þekkt , og vér skulum dýrka þá!3þá skalt þú ekki hlýða á orð þess spámanns eða draumamanns, því að Drottinn Guð yðar reynir yður til þess að vita, hvort þér elskið Drottin Guð yðar af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar.4Drottni Guði yðar skuluð þér fylgja og hann skuluð þér óttast, og skipanir hans skuluð þér varðveita og raustu hans skuluð þér hlýða, og hann skuluð þér dýrka og við hann skuluð þér halda yður fast.5En spámann þann eða draumamann skal deyða, því að hann hefir prédikað uppreisn gegn Drottni Guði yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi og leysti þig úr þrælahúsinu, til þess að tæla þig burt af þeim vegi, sem Drottinn Guð þinn bauð þér að ganga. Þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér.6Ef bróðir þinn, sonur móður þinnar, eða sonur þinn eða dóttir þín eða konan í faðmi þínum eða vinur þinn, sem þú elskar eins og lífið í brjósti þínu, ginnir þig einslega og segir: Vér skulum fara og dýrka aðra guði, þá er hvorki þú né feður þínir hafa þekkt,7af guðum þeirra þjóða, sem kringum yður eru, hvort heldur þær eru nálægar þér eða fjarlægar þér, frá einu heimsskauti til annars,8þá skalt þú eigi gjöra að vilja hans og eigi hlýða á hann, og þú skalt ekki líta hann vægðarauga og þú skalt ekki þyrma honum né hylma yfir með honum,9heldur skalt þú drepa hann, þín hönd skal fyrst á lofti vera gegn honum til þess að deyða hann, og því næst hönd alls lýðsins.10Þú skalt lemja hann grjóti til bana, af því að hann leitaðist við að tæla þig frá Drottni Guði þínum, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.11Og allur Ísrael skal heyra það og skelfast, svo að enginn hafist framar að slíkt ódæði þín á meðal.12Ef þú heyrir sagt um einhverja af borgum þínum, þeim er Drottinn Guð þinn gefur þér til þess að búa í:13Varmenni nokkur eru upp komin þín á meðal, og hafa þau tælt samborgara sína og sagt: Vér skulum fara og dýrka aðra guði, þá er þér þekkið ekki,14þá skalt þú rækilega rannsaka það, grennslast eftir og spyrjast fyrir, og ef það reynist satt vera, að slík svívirðing hafi framin verið þín á meðal,15þá skalt þú fella íbúa þeirrar borgar með sverðseggjum, bannfæra borgina og allt, sem í henni er, og fénaðinn í henni með sverðseggjum.16Allt herfangið úr henni skalt þú bera saman á torgið og brenna síðan borgina og allt herfangið í eldi sem eldfórn Drottni Guði þínum til handa, og hún skal verða ævarandi rúst og aldrei framar endurreist verða.17Og ekkert af hinu bannfærða skal loða við hendur þínar, til þess að Drottinn megi láta af hinni brennandi reiði sinni og auðsýni þér miskunnsemi, og til þess að hann miskunni þér og margfaldi þig, eins og hann sór feðrum þínum,18er þú hlýðir raustu Drottins Guðs þíns með því að varðveita allar skipanir hans, þær er ég legg fyrir þig í dag, og gjörir það sem rétt er í augum Drottins Guðs þíns.

13.1 Set ykkur 5Mós 4.2+ – halda boðorð 5Mós 5.1+ – ekki auka við 5Mós 4.2+
13.2 Tákn og undur Matt 24.24+
13.3 Aðrir guðir 5Mós 6.14+
13.4 Guð reynir yður 5Mós 8.2+ ; sbr 1Kor 11.19 – elska Guð af öllu hjarta 5Mós 6.5+
13.5 Óttast Guð 5Mós 4.10+ – hlýða boðskap hans 5Mós 4.30+ – halda sig við Guð 5Mós 10.20+
13.6 Guð frelsaði Ísrael 5Mós 7.8+ – þrælahúsið 5Mós 5.6+ – eyða hinu illa 5Mós 17.7,12; 19.19; 21.21; 22.21-24; 24.7; Dóm 20.13; 1Kor 5.13; sbr 5Mós 19.13; 21.9
13.9 Ekki hafa samúð með 5Mós 19.13,21; 25.12
13.10 Kasta fyrsta steininum 5Mós 17.7; Jóh 8.7 – allt fólkið 5Mós 17.7
13.11 Grýta 5Mós 17.5; 21.21; 22.21,24; Jós 7.25; 1Kon 21.10; Jóh 10.31-33
13.12 Ísrael skal heyra 5Mós 17.13; 19.20; 21.21
13.15 Grennslast eftir viðurstyggð 5Mós 17.4
13.17 Ævarandi rúst Jós 8.28
13.18 Miskunnsamur Guð 5Mós 4.31+
13.19 Hlýða boði Drottins 5Mós 4.30+ – boðorð 5Mós 4.2+ – gjöra rétt 5Mós 6.18