1Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:2Drottinn var stórreiður feðrum yðar.3Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín segir Drottinn allsherjar þá mun ég snúa mér til yðar segir Drottinn allsherjar.4Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum! En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér segir Drottinn.5Feður yðar hvar eru þeir? Og spámennirnir geta þeir lifað eilíflega?6En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört?7Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:8Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.9Og er ég spurði: Hverjir eru þessir, herra minn? svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru.10Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.11Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð.12Þá svaraði engill Drottins og sagði: Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?13Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,14og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar15og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður.16Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni segir Drottinn allsherjar og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.17Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem.18Og ég hóf upp augu mín og sá, hvar fjögur horn voru.19Þá spurði ég engilinn, sem við mig talaði: Hvað merkja þessi? Hann svaraði mér: Þetta eru hornin, sem tvístrað hafa Júda, Ísrael og Jerúsalem.20Því næst lét Drottinn mig sjá fjóra smiði,21og er ég spurði: Hvað ætla þessir að gjöra? svaraði hann á þessa leið: Þetta eru hornin, sem tvístruðu Júda svo, að enginn bar höfuð hátt, en þessir eru komnir til þess að skelfa þau, til þess að varpa niður hornum þeirra þjóða, er hófu horn gegn Júdalandi til þess að tvístra því.

1.1 Daríus Hag 1.1+ – Sakaría Sak 1.7; Esr 5.1; 6.14; Neh 12.16
1.3 Snúið yður 5Mós 30.2; Jer 3.22; Jl 2.13; Am 4.6; Mal 3.7; Jak 4.8
1.4 Orð fyrri spámanna Jer 25.4 – skeyttu ekki Jer 7.28; 11.10; 13.10; Sef 3.2
1.6 Orð Guðs er máttugt Jós 23.15; Jes 55.11 – sögðu (játuðu) 1Kon 8.46-51; Dan 9.10; Neh 9.34
1.7 Daríus Hag 1.1+
1.8 Sýn Am 7.1,7; Dan 7.1; Opb 1.2 – myrtutré Jes 41.19; 55.13; sbr Neh 8.15 – hestar Sak 6.1-8; 2Kon 2.11; Opb 6.1-8
1.9 Engill útskýrir Dan 7.16; Opb 17.7
1.12 Hve lengi? Jer 12.4; Slm 6.4+ ; Dan 8.13; Opb 6.10 – sjötíu ár Jer 25.11; 29.10, sbr 2Kro 36.21
1.14 Afbrýði Guðs Sak 8.2; sbr Jes 42.13+ ; 54.7; Hós 11.8; Jl 2.18
1.15 Guð reiðist þjóð sinni Jes 47.6; 54.8
1.16 Mælisnúra Sak 2.5; Jer 31.38-40; Esk 40.3
1.17 Hughreysta Jes 40.1; 49.13 – Guð útvelur 5Mós 7.7-8; 1Kon 3.8; Hag 2.23; 1Kro 15.2