1Orð Drottins, sem kom til Hósea Beerísonar á dögum Ússía, Jótams, Akasar og Hiskía, Júdakonunga, og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs.2Þá er Drottinn hóf að tala við Hósea, sagði hann við Hósea: Far og tak þér hórkonu og eignast hórbörn, því að landið drýgir hór og hefir snúist frá Drottni.3Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur. Hún varð þunguð og fæddi honum son.4Og Drottinn sagði við hann: Lát hann heita Jesreel, því að innan skamms vitja ég blóðskuldar Jesreels á ætt Jehú og gjöri enda á konungdómi Ísraels húss.5Á þeim degi sundurbrýt ég boga Ísraels á Jesreel-völlum.6Og hún varð aftur þunguð og ól dóttur. Þá sagði Drottinn við Hósea: Lát þú hana heita Náðvana, því að ég mun eigi framar auðsýna náð Ísraels húsi, svo að ég fyrirgefi þeim.7En ég mun auðsýna náð Júda húsi og hjálpa þeim fyrir Drottin, Guð þeirra, en ég mun eigi hjálpa þeim með boga, sverði, bardögum, stríðshestum né riddurum.8Og er hún hafði vanið Náðvana af brjósti, varð hún enn þunguð og ól son.9Þá sagði Drottinn: Lát hann heita Ekki-minn-lýður, því að þér eruð ekki minn lýður, og ég er ekki yðar Guð.10Tala Ísraelsmanna skal verða sem sandur á sjávarströnd, sem ekki verður mældur og ekki talinn. Og í stað þess, að sagt var við þá: Þér eruð ekki minn lýður! skal við þá sagt verða: Synir hins lifanda Guðs!11Júdamenn og Ísraelsmenn skulu safnast saman og velja sér einn yfirmann og hefja ferð sína heim úr landinu, því að mikill mun Jesreeldagur verða.

1.1 Ússía, Jótam, Akas 2Kon 15-16 – Jeróbóam 2Kon 14.23-29
1.2 Hór 2Mós 34.16; 5Mós 31.16; Dóm 8.33; Jes 1.21; Jer 2.20,23; 3.1-2; 13.27; Esk 6.9; 16.15,34; 23.3,7,8, o.áfr.; Hós 4.12-14; 5.4; Nah 3.4; Slm 106.39
1.5 Á þeim degi Jes 2.11; 27.1-2; Jer 39.17; Am 8.9; Jl 3.2; Sak 14.9; Matt 7.22; Lúk 6.23; Jóh 14.20 – bogi (tákn máttarins) 1Sam 2.4; Job 29.20
1.7 Júda Hós 4.15; 6.11; 8.14; 10.11; 12.1,3 – ekki með boga, sverði eða riddurum Jós 24.12; Jes 31.1; Sak 4.6; Slm 20.8; Okv 21.31
1.9 Mín þjóð Hós 2.25; Jer 31.33