1Þá svaraði Job og sagði:2Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?3Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.4Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá varðar það mig einan.5Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.6Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.7Sjá, ég kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar, ég kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.8Guð hefir girt fyrir veg minn, svo að ég kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.9Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.10Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að ég fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.11Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.12Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og setja herbúðir sínar kringum tjald mitt.13Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.14Skyldmenni mín láta ekki sjá sig, og kunningjar mínir hafa gleymt mér.15Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og ég er orðinn útlendingur í augum þeirra.16Kalli ég á þjón minn, svarar hann ekki, ég verð að sárbæna hann með munni mínum.17Andi minn er konu minni framandlegur, og bræður mínir forðast mig.18Jafnvel börnin fyrirlíta mig, standi ég upp, spotta þau mig.19Alla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir sem ég elskaði, hafa snúist á móti mér.20Bein mín límast við hörund mitt og hold, og ég hefi sloppið með tannholdið eitt.21Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.22Hví ofsækið þér mig eins og Guð og verðið eigi saddir á holdi mínu?23Ó að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók24með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!25Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.26Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af mér, mun ég líta Guð.27Ég mun líta hann mér til góðs, já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, hjartað brennur af þrá í brjósti mér!28Þegar þér segið: Vér skulum ofsækja hann, rót ógæfunnar er hjá honum sjálfum að finna!29þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.

19.4 Varðar mig einan Okv 9.12
19.6 Net Job 18.8+
19.7 Ekkert svar Job 13.22+
19.8 Lokaði vegi mínum 4Mós 22.22-35
19.10 Von mín Job 14.7+
19.11 Telur mig óvin sinn Job 33.10
19.14 Vinir forðast mig Slm 38.12; 88.19; Sír 6.8
19.20 Sjúkdómur Job 16.8+
19.21 Hönd Guðs Job 13.21; Dóm 2.15; 1Sam 5.6-11; Rut 1.13
19.22 Mettir af holdi mínu Slm 27.2
19.24 Höggvin í klett Post 17.23
19.25 Lausnari minn Jes 43.14; 47.4; Slm 12.6
19.27 Sjá hann Job 33.26; 42.5; 1Mós 32.30; Jes 6.5; Matt 5.8; Jóh 14.9; Heb 11.27; Opb 1.7
19.28 Ofsækja Job 34.36