1Nú frétti Jakob svofelld ummæli Labans sona: Jakob hefir dregið undir sig aleigu föður vors, og af eigum föður vors hefir hann aflað sér allra þessara auðæfa.2Og Jakob sá á yfirbragði Labans, að hann bar ekki sama þel til sín sem áður.3Þá sagði Drottinn við Jakob: Hverf heim aftur í land feðra þinna og til ættfólks þíns, og ég mun vera með þér.4Þá sendi Jakob og lét kalla þær Rakel og Leu út í hagann, þangað sem hjörð hans var.5„Og hann sagði við þær: Ég sé á yfirbragði föður ykkar, að hann ber ekki sama þel til mín sem áður; en Guð föður míns hefir verið með mér.“6Og það vitið þið sjálfar, að ég hefi þjónað föður ykkar af öllu mínu megni.7En faðir ykkar hefir svikið mig og tíu sinnum breytt kaupi mínu, en Guð hefir ekki leyft honum að gjöra mér mein.8Þegar hann sagði: Hið flekkótta skal vera kaup þitt, fæddi öll hjörðin flekkótt, og þegar hann sagði: Hið rílótta skal vera kaup þitt, þá fæddi öll hjörðin rílótt.9Og þannig hefir Guð tekið fénaðinn frá föður ykkar og gefið mér hann.10Og um fengitíma hjarðarinnar hóf ég upp augu mín og sá í draumi, að hafrarnir, sem hlupu á féð, voru rílóttir, flekkóttir og dílóttir.11Og engill Guðs sagði við mig í draumnum: Jakob! Og ég svaraði: Hér er ég.12„Þá mælti hann: Lít upp augum þínum og horfðu á: Allir hafrarnir, sem hlaupa á féð, eru rílóttir, flekkóttir og dílóttir; því að ég hefi séð allt, sem Laban hefir gjört þér.“13Ég er Betels Guð, þar sem þú smurðir merkisstein, þar sem þú gjörðir mér heit. Tak þig nú upp, far burt úr þessu landi og hverf aftur til ættlands þíns.14Þá svöruðu þær Rakel og Lea og sögðu við hann: Höfum við nokkra hlutdeild og arf framar í húsi föður okkar?15Álítur hann okkur ekki vandalausar, þar sem hann hefir selt okkur? Og verði okkar hefir hann og algjörlega eytt.16Aftur á móti eigum við og börn okkar allan þann auð, sem Guð hefir tekið frá föður okkar. Og gjör þú nú allt, sem Guð hefir boðið þér.17Þá tók Jakob sig upp og setti börn sín og konur upp á úlfaldana18og hafði á burt allan fénað sinn og allan fjárhlut sinn, sem hann hafði aflað sér, fjáreign sína, sem hann hafði aflað sér í Mesópótamíu, og hóf ferð sína til Ísaks föður síns í Kanaanlandi.19Þegar Laban var farinn að klippa sauði sína, þá stal Rakel húsgoðum föður síns.20Og Jakob blekkti Laban hinn arameíska, með því að hann sagði honum eigi frá því, að hann mundi flýja.21Þannig flýði hann með allt, sem hann átti. Og hann tók sig upp og fór yfir fljótið og stefndi á Gíleaðsfjöll.22Laban var sagt það á þriðja degi, að Jakob væri flúinn.23Þá tók hann frændur sína með sér og elti hann sjö dagleiðir og náði honum á Gíleaðsfjöllum.24En Guð kom um nóttina til Labans hins arameíska í draumi og sagði við hann: Gæt þín, að þú mælir ekkert styggðarorð til Jakobs.25Og Laban náði Jakob, sem hafði sett tjöld sín á fjöllunum, og Laban tjaldaði einnig á Gíleaðsfjöllum með frændum sínum.26Þá mælti Laban við Jakob: Hvað hefir þú gjört, að þú skyldir blekkja mig og fara burt með dætur mínar, eins og þær væru herteknar?27Hví flýðir þú leynilega og blekktir mig og lést mig ekki af vita, svo að ég mætti fylgja þér á veg með fögnuði og söng, með bumbum og gígjum,28og leyfðir mér ekki að kyssa dætrasonu mína og dætur? Óviturlega hefir þér nú farist.29Það er á mínu valdi að gjöra yður illt, en Guð föður yðar mælti svo við mig í nótt, er var: Gæt þín, að þú mælir ekkert styggðarorð til Jakobs.30Og nú munt þú burt hafa farið, af því að þig fýsti svo mjög heim til föður þíns, en hví hefir þú stolið goðum mínum?31Þá svaraði Jakob og mælti til Labans: Af því að ég var hræddur, því að ég hugsaði, að þú kynnir að slíta dætur þínar frá mér.32En sá skal ekki lífi halda, sem þú finnur hjá goð þín. Rannsaka þú í viðurvist frænda vorra, hvað hjá mér er af þínu, og tak það til þín. En Jakob vissi ekki, að Rakel hafði stolið þeim.33Laban gekk í tjald Jakobs og tjald Leu og í tjald beggja ambáttanna, en fann ekkert. Og hann fór út úr tjaldi Leu og gekk í tjald Rakelar.34En Rakel hafði tekið húsgoðin og lagt þau í úlfaldasöðulinn og setst ofan á þau. Og Laban leitaði vandlega í öllu tjaldinu og fann ekkert.35Og hún sagði við föður sinn: Herra minn, reiðstu ekki, þótt ég geti ekki staðið upp fyrir þér, því að mér fer að eðlisháttum kvenna. Og hann leitaði og fann ekki húsgoðin.36Þá reiddist Jakob og átaldi Laban og sagði við Laban: Hvað hefi ég misgjört, hvað hefi ég brotið, að þú eltir mig svo ákaflega?37„Þú hefir leitað vandlega í öllum farangri mínum; hvað hefir þú fundið af öllum þínum búshlutum? Legg það hér fram í viðurvist frænda minna og frænda þinna, að þeir dæmi okkar í milli.“38Ég hefi nú hjá þér verið í tuttugu ár. Ær þínar og geitur hafa ekki látið lömbunum, og hrúta hjarðar þinnar hefi ég ekki etið.39Það sem dýrrifið var, bar ég ekki heim til þín, það bætti ég sjálfur, þú krafðist þess af mér, hvort sem það hafði verið tekið á degi eða nóttu.40Ég átti þá ævi, að á daginn þjakaði mér hiti og á nóttinni kuldi, og eigi kom mér svefn á augu.41Í tuttugu ár hefi ég nú verið á heimili þínu. Hefi ég þjónað þér í fjórtán ár fyrir báðar dætur þínar og í sex ár fyrir hjörð þína, og þú hefir breytt kaupi mínu tíu sinnum.42Hefði ekki Guð föður míns, Abrahams Guð og Ísaks ótti, liðsinnt mér, þá hefðir þú nú látið mig tómhentan burt fara. En Guð hefir séð þrautir mínar og strit handa minna, og hann hefir dóm upp kveðið í nótt er var.43Þá svaraði Laban og sagði við Jakob: Dæturnar eru mínar dætur og börnin eru mín börn og hjörðin er mín hjörð, og allt, sem þú sér, heyrir mér til. En hvað skyldi ég gjöra þessum dætrum mínum í dag, eða börnum þeirra, sem þær hafa alið?44Gott og vel, við skulum gjöra sáttmála, ég og þú, og hann skal vera vitnisburður milli mín og þín.45Þá tók Jakob stein og reisti hann upp til merkis.46Og Jakob sagði við frændur sína: Berið að steina. Og þeir báru að steina og gjörðu grjótvörðu, og þeir mötuðust þar á grjótvörðunni.47Og Laban kallaði hana Jegar Sahadúta, en Jakob kallaði hana Galeð.48Og Laban mælti: Þessi varða skal vera vitni í dag milli mín og þín. Fyrir því kallaði hann hana Galeð,49og Mispa, með því að hann sagði: Drottinn sé á verði milli mín og þín, þá er við skiljum.50Ef þú misþyrmir dætrum mínum og ef þú tekur þér fleiri konur auk dætra minna, þá gæt þess, að þótt enginn maður sé hjá okkur, er Guð samt vitni milli mín og þín.51Og Laban sagði við Jakob: Sjá þessa vörðu og sjá þennan merkisstein, sem ég hefi reist upp milli mín og þín!52Þessi varða sé vitni þess og þessi merkissteinn vottur þess, að hvorki skal ég ganga fram hjá þessari vörðu til þín né þú ganga fram hjá þessari vörðu og þessum merkissteini til mín með illt í huga.53Guð Abrahams og Guð Nahors, Guð föður þeirra, dæmi milli okkar. Og Jakob sór við ótta Ísaks föður síns.54Og Jakob slátraði fórnardýrum á fjallinu og bauð frændum sínum til máltíðar, og þeir mötuðust og voru á fjallinu um nóttina.55Laban reis árla næsta morgun og minntist við sonu sína og dætur og blessaði þau. Því næst hélt Laban af stað og hvarf aftur heim til sín.

31.1 Allt sem faðir okkar átti 1Mós 30.42; sbr Préd 4.4
31.3 Ég mun vera með þér 1Mós 26.3+
31.19 Húsgoð 1Mós 31.34; 35.2-4; Jós 24.23; 1Sam 7.3
31.24 Í draumi 1Mós 20.3+
31.26 Herfang 5Mós 21.10-14; 1Sam 30.2; 2Kon 5.2
31.31 Taka dætur þínar frá mér 2Mós 4.21
31.35 Leitaði og fann ekki 3Mós 15.19-20
31.44 Sáttmáli 1Mós 21.27+
31.50 Guð er vitni Dóm 11.10; 1Sam 12.5; Jer 42.5