1Þá er Móse hafði lokið við að reisa búðina og hafði smurt hana og vígt og öll áhöld hennar og smurt og vígt altarið og öll áhöld þess,2færðu höfuðsmenn Ísraels fórnir, foringjar fyrir ættum þeirra það er höfuðsmenn ættkvíslanna, forstöðumenn hinna töldu,3og þeir færðu fórnargjöf sína fram fyrir Drottin, sex skýlisvagna og tólf naut, einn vagn fyrir hverja tvo höfuðsmenn, og naut fyrir hvern þeirra. Færðu þeir þetta fram fyrir búðina.4Drottinn talaði við Móse og sagði:5Tak þú við þessu af þeim, og það sé haft til þjónustugjörðar við samfundatjaldið, og fá þú þetta levítunum, eftir því sem þjónusta hvers eins er til.6Þá tók Móse vagnana og nautin og seldi það levítunum í hendur.7Gersons sonum fékk hann tvo vagna og fjögur naut, eftir þjónustu þeirra.8Og Merarí sonum fékk hann fjóra vagna og átta naut, eftir þjónustu þeirra undir umsjón Ítamars, Aronssonar prests.9En Kahats sonum fékk hann ekkert, því að á þeim hvíldi þjónusta hinna helgu dóma. Skyldu þeir bera þá á herðum sér.10Höfuðsmennirnir færðu gjafir til vígslu altarisins daginn sem það var smurt, og þeir færðu fórnargjöf sína fram fyrir altarið.11Þá sagði Drottinn við Móse: Höfuðsmennirnir skulu bera fram fórnargjafir sínar sinn daginn hver til vígslu altarisins.12Sá er færði fórnargjöf sína fyrsta daginn, var Nakson Ammínadabsson af ættkvísl Júda.13Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fyllt fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,14bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,15ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,16geithafur til syndafórnar,17og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Naksons Ammínadabssonar.18Annan daginn færði Netanel Súarsson, höfuðsmaður Íssakars, fórn sína.19Færði hann að fórnargjöf silfurfat, 130 sikla að þyngd, silfurskál, sjötíu sikla að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,20bolla, tíu gullsikla að þyngd, fullan af reykelsi,21ungneyti, hrút og sauðkind veturgamla til brennifórnar,22geithafur til syndafórnar,23og til heillafórnar tvö naut, fimm hrúta, fimm kjarnhafra og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Netanels Súarssonar.24Þriðja daginn höfuðsmaður Sebúlons sona, Elíab Helónsson.25Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,26bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,27ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,28geithafur til syndafórnar,29og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Elíabs Helónssonar.30Fjórða daginn höfuðsmaður Rúbens sona, Elísúr Sedeúrsson.31Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,32bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,33ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,34geithafur til syndafórnar,35og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Elísúrs Sedeúrssonar.36Fimmta daginn höfuðsmaður Símeons sona, Selúmíel Súrísaddaíson.37Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,38bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,39ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,40geithafur til syndafórnar,41og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Selúmíels Súrísaddaísonar.42Sjötta daginn höfuðsmaður Gaðs sona, Eljasaf Degúelsson.43Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,44bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,45ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,46geithafur til syndafórnar,47og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Eljasafs Degúelssonar.48Sjöunda daginn höfuðsmaður Efraíms sona, Elísama Ammíhúdsson.49Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,50bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,51ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,52geithafur til syndafórnar,53og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Elísama Ammíhúdssonar.54Áttunda daginn höfuðsmaður Manasse sona, Gamlíel Pedasúrsson.55Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu til matfórnar,56bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,57ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,58geithafur til syndafórnar,59og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar, og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Gamlíels Pedasúrssonar.60Níunda daginn höfuðsmaður Benjamíns sona, Abídan Gídeóníson.61Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,62bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,63ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,64geithafur til syndafórnar,65og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Abídans Gídeonísonar.66Tíunda daginn höfuðsmaður Dans sona, Akíeser Ammísaddaíson.67Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,68bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,69ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,70geithafur til syndafórnar,71og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Akíesers Ammísaddaísonar.72Ellefta daginn höfuðsmaður Assers sona, Pagíel Ókransson.73Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,74bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,75ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,76geithafur til syndafórnar,77og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Pagíels Ókranssonar.78Tólfta daginn höfuðsmaður Naftalí sona, Akíra Enansson.79Fórnargjöf hans var silfurfat, 130 siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidómssikli, hvort tveggja fullt af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,80bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,81ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,82geithafur til syndafórnar,83og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Akíra Enanssonar.84Þetta voru gjafirnar frá höfuðsmönnum Ísraels til vígslu altarisins daginn sem það var smurt: tólf silfurföt, tólf silfurskálar, tólf gullbollar.85Vó hvert fat 130 sikla silfurs og hver skál sjötíu. Allt silfur ílátanna vó 2.400 sikla eftir helgidómssikli.86Tólf gullbollar, fullir af reykelsi, hver bolli tíu siklar eftir helgidómssikli. Allt gullið í bollunum vó 120 sikla.87Öll nautin til brennifórnarinnar voru tólf uxar, auk þess tólf hrútar, tólf sauðkindur veturgamlar, ásamt matfórninni, er þeim fylgdi, og tólf geithafrar í syndafórn.88Og öll nautin til heillafórnarinnar voru 24 uxar, auk þess sextíu hrútar, sextíu kjarnhafrar og sextíu sauðkindur veturgamlar. Þetta voru gjafirnar til vígslu altarisins, eftir að það hafði verið smurt.89Þegar Móse gekk inn í samfundatjaldið til þess að tala við Drottin, heyrði hann röddina tala til sín ofan af lokinu, sem er yfir sáttmálsörkinni, fram á milli kerúbanna tveggja, og hann talaði við hann.

7.2 Foringjar Ísraels 4Mós 1.5-15
7.5 Störfin 4Mós 3.21-37; 4.4-33
7.10 Vígsla Esk 43.18-26; 2Kro 7.9