1Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egyptalands með Jakob, hver með sitt heimilisfólk:2Rúben, Símeon, Leví og Júda,3Íssakar, Sebúlon og Benjamín,4Dan og Naftalí, Gað og Asser.5Alls voru niðjar Jakobs sjötíu manns, og Jósef var fyrir í Egyptalandi.6Og Jósef dó og allir bræður hans og öll sú kynslóð.7Og Ísraelsmenn voru frjósamir, jukust, margfölduðust og fjölgaði stórum, svo að landið varð fullt af þeim.8Þá hófst til ríkis í Egyptalandi nýr konungur, sem engin deili vissi á Jósef.9Hann sagði við þjóð sína: Sjá, þjóð Ísraelsmanna er fjölmennari og aflmeiri en vér.10Látum oss fara kænlega að við hana, ella kynni henni að fjölga um of, og ef til ófriðar kæmi, kynni hún jafnvel að ganga í lið með óvinum vorum og berjast móti oss og fara síðan af landi burt.11Og þeir settu verkstjóra yfir hana til þess að þjá hana með þrælavinnu, og hún byggði vistaborgir handa Faraó, Pítóm og Raamses.12En því meir sem þeir þjáðu hana, því meir fjölgaði henni og breiddist út, svo að þeir tóku að óttast Ísraelsmenn.13Og Egyptar þrælkuðu Ísraelsmenn vægðarlaust14og gjörðu þeim lífið leitt með þungri þrælavinnu við leireltu og tigulsteinagjörð og með alls konar akurvinnu, með allri þeirri vinnu, er þeir vægðarlaust þrælkuðu þá með.15En Egyptalandskonungur mælti til hinna hebresku ljósmæðra hét önnur Sifra, en hin Púa:16Þegar þið sitjið yfir hebreskum konum, mælti hann, þá lítið á burðarsetið. Sé barnið sveinbarn, þá deyðið það, en sé það meybarn, þá má það lifa.17En ljósmæðurnar óttuðust Guð og gjörðu eigi það, sem Egyptalandskonungur bauð þeim, heldur létu sveinbörnin lifa.18Þá lét Egyptalandskonungur kalla ljósmæðurnar og sagði við þær: Hví hafið þér svo gjört, að láta sveinbörnin lifa?19Ljósmæðurnar svöruðu Faraó: Hebreskar konur eru ólíkar egypskum, því að þær eru hraustar. Áður en ljósmóðirin kemur til þeirra, eru þær búnar að fæða.20Og Guð lét ljósmæðrunum vel farnast, og fólkinu fjölgaði og það efldist mjög.21Og fyrir þá sök, að ljósmæðurnar óttuðust Guð, gaf hann þeim fjölda niðja.22Þá bauð Faraó öllum lýð sínum og sagði: Kastið í ána öllum þeim sveinbörnum, sem fæðast meðal Hebrea, en öll meybörn mega lífi halda.

1.1 Nöfnin 1Mós 46.8-27
1.6 Jósef dó 1Mós 50.26
1.7 Margfölduðust 1Mós 12.2; 13.16; 28.3; 5Mós 26.5; Slm 105.24; Júdt 5.10; Post 7.17
1.8 Nýr konungur Slm 105.25; Júdt 5.11; Post 7.18-19
1.11 Raamses 1Mós 47.11
1.14 Þrælavinna 5Mós 26.6
1.22 Öllum drengjum Post 7.19