1Bæn Davíðs. Heyr, Drottinn, á réttvíst málefni, hlýð á hróp mitt, ljá eyra bæn minni, er ég flyt með tállausum vörum.2Lát rétt minn út ganga frá augliti þínu, augu þín sjá hvað rétt er.3Þá er þú rannsakar hjarta mitt, prófar það um nætur, reynir mig í eldi, þá finnur þú engar illar hugsanir hjá mér, munnur minn heldur sér í skefjum.4Hvað sem aðrir gjöra, þá hefi ég eftir orði vara þinna forðast vegu ofbeldismannsins.5Skref mín fylgdu sporum þínum, mér skriðnaði ekki fótur.6Ég kalla á þig, því að þú svarar mér, ó Guð, hneig eyru þín til mín, hlýð á orð mín.7Veit mér þína dásamlegu náð, þú sem hjálpar þeim er leita hælis við þína hægri hönd fyrir ofsækjendum.8Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna9fyrir hinum guðlausu, er sýna mér ofbeldi, fyrir gráðugum óvinum, er kringja um mig.10Mörhjörtum sínum hafa þeir lokað, með munni sínum mæla þeir drambsamleg orð.11Hvar sem ég geng, umkringja þeir mig, þeir beina augum sínum að því að varpa mér til jarðar.12Þeir líkjast ljóni er langar í bráð, ungu ljóni, er liggur í felum.13Rís upp, Drottinn! Far í móti óvininum og varpa honum niður, frelsa mig undan hinum óguðlega með sverði þínu.14Frelsa mig undan mönnunum með hendi þinni, Drottinn, undan mönnum heimsins, sem hafa hlutskipti sitt í lífinu og þú kviðfyllir gæðum þínum. Þeir eru ríkir að sonum og skilja börnum sínum eftir nægtir sínar.15En ég mun sakir réttlætisins skoða auglit þitt, þá er ég vakna, mun ég mettast af mynd þinni.

17.1 Minnt á réttlæti Guðs Slm 7.9; 26.1 – Hlýð á Slm 61.2
17.3 Guð rannsakar hjörtun Slm 7.10; 26.2; 139.1-3,23; Job 7.18; 23.10; sbr 1Sam 16.7
17.4 Halda sig við orð Guðs Job 23.11-12
17.7 Trúfesti Guðs Slm 23.6; 31.22; 62.13; 63.4; 69.17; sbr 25.10+ – hægri hönd Guðs Slm 18.36+ ; 44.4; 48.11; 77.11; 80.16; 98.1; 108.7; 118.15; 139.10; 2Mós 15.6; Jes 41.10; 48.13
17.8 Sem sjáaldur augans 5Mós 32.10 –í skugga vængja þinna Slm 36.8; 57.2; 61.5; 63.8; 5Mós 32.11 sbr Slm 91.4
17.10 Forhert hjarta Slm 73.7; 119.70; 5Mós 32.15; Job 15.27
17.12 Líkist ljóni Slm 10.9; 57.5
17.15 Sjá auglit Guðs Slm 11.7; 42.3; 2Mós 24.11; Matt 5.8; Opb 22.4 – auglit þitt 4Mós 12.8; sbr Slm 42.3