1Guð sagði við Móse: Stíg upp til Drottins, þú og Aron, Nadab og Abíhú og sjötíu af öldungum Ísraels, og skuluð þér falla fram álengdar.2Móse einn skal koma í nálægð Drottins, en hinir skulu ekki nærri koma, og fólkið skal ekki heldur stíga upp með honum.3Og Móse kom og sagði fólkinu öll orð Drottins og öll lagaákvæðin. Svaraði þá fólkið einum munni og sagði: Vér skulum gjöra allt það, sem Drottinn hefir boðið.4Og Móse skrifaði öll orð Drottins. En næsta morgun reis hann árla og reisti altari undir fjallinu og tólf merkissteina eftir tólf kynkvíslum Ísraels.5Síðan útnefndi hann unga menn af Ísraelsmönnum, og þeir færðu Drottni brennifórnir og slátruðu uxum til þakkarfórna.6Og Móse tók helming blóðsins og hellti því í fórnarskálarnar, en hinum helming blóðsins stökkti hann á altarið.7Því næst tók hann sáttmálsbókina og las upp fyrir lýðnum, en þeir sögðu: Vér viljum gjöra allt það, sem Drottinn hefir boðið, og hlýðnast því.8Þá tók Móse blóðið, stökkti því á fólkið og sagði: Þetta er blóð þess sáttmála, sem Drottinn hefir gjört við yður og byggður er á öllum þessum orðum.9Þá stigu þeir upp Móse og Aron, Nadab og Abíhú og sjötíu af öldungum Ísraels.10Og þeir sáu Ísraels Guð, og var undir fótum hans sem pallur væri, gjörður af safírhellum, og skær sem himinninn sjálfur.11En hann útrétti eigi hönd sína gegn höfðingjum Ísraelsmanna. Og þeir sáu Guð og átu og drukku.12Drottinn sagði við Móse: Stíg upp á fjallið til mín og dvel þar, og skal ég fá þér steintöflur og lögmálið og boðorðin, er ég hefi skrifað, til þess að þú kennir þeim.13Þá lagði Móse af stað og Jósúa, þjónn hans, og Móse sté upp á Guðs fjall.14En við öldungana sagði hann: Verið hér kyrrir, þar til er vér komum aftur til yðar, og sjá, Aron og Húr eru hjá yður. Hver sem mál hefir að kæra, snúi sér til þeirra.15Móse sté þá upp á fjallið, en skýið huldi fjallið.16Og dýrð Drottins hvíldi yfir Sínaífjalli, og skýið huldi það í sex daga, en á sjöunda degi kallaði hann á Móse mitt út úr skýinu.17Og dýrð Drottins var á að líta fyrir Ísraelsmenn sem eyðandi eldur á fjallstindinum.18En Móse gekk mitt inn í skýið og sté upp á fjallið, og var Móse á fjallinu í fjörutíu daga og fjörutíu nætur.

24.1 Sáttmáli gerður Jós 24; 2Kon 23.1-3
24.4 Tólf merkissteinar Jós 4.3-9,20-24; 1Kon 18.31
24.7 Sáttmálsbókin 2Kon 23.2,21; 2Kro 25.4; 34.30; 35.12
24.8 Blóð sáttmálans Matt 26.28 og hlst.; 1Kor 11.25; Heb 9.19-20; 10.29
24.10 Hellur sbr Esk 1.26; Opb 4.2-3
24.11 Matast 2Mós 18.12+
24.12 Steintöflur 2Mós 31.18; 32.15; 34.1,28; 5Mós 10.4-5; 1Kon 8.9
24.15 Skýið 2Mós 13.21+
24.16 Dýrð Drottins 2Mós 16.7+
24.18 Fjörutíu dagar og fjörutíu nætur 2Mós 34.28; 5Mós 9.9; sbr 1Kon 19.8; Matt 4.2 og hlst.