1Meðan Apollós var í Korintu, fór Páll um upplöndin og kom til Efesus. Þar hitti hann fyrir nokkra lærisveina.2Hann sagði við þá: Fenguð þér heilagan anda, er þér tókuð trú? Þeir svöruðu: Nei, vér höfum ekki einu sinni heyrt, að heilagur andi sé til.3Hann sagði: Upp á hvað eruð þér þá skírðir? Þeir sögðu: Skírn Jóhannesar.4Þá mælti Páll: Jóhannes skírði iðrunarskírn og sagði lýðnum að trúa á þann, sem eftir sig kæmi, það er á Jesú.5Þegar þeir heyrðu þetta, létu þeir skírast til nafns Drottins Jesú.6Er Páll hafði lagt hendur yfir þá, kom heilagur andi yfir þá, og þeir töluðu tungum og spáðu.7Þessir menn voru alls um tólf.8Páll sótti nú samkunduna í þrjá mánuði og talaði þar djarflega og reyndi að sannfæra menn um Guðs ríki.9En nokkrir brynjuðu sig og vildu ekki trúa. Þegar þeir tóku að illmæla veginum í áheyrn fólksins, sagði Páll skilið við þá, greindi lærisveinana frá þeim, og síðan talaði hann daglega í skóla Týrannusar.10Þessu fór fram í tvö ár, svo að allir þeir, sem í Asíu bjuggu, heyrðu orð Drottins, bæði Gyðingar og Grikkir.11Guð gjörði óvenjuleg kraftaverk fyrir hendur Páls.12Það bar við, að menn lögðu dúka og flíkur af Páli á sjúka, og hurfu þá veikindi þeirra, og illir andar fóru út af þeim.13En nokkrir Gyðingar, er fóru um og frömdu andasæringar, tóku og fyrir að nefna nafn Drottins Jesú yfir þeim, er höfðu illa anda. Þeir sögðu: Ég særi yður við Jesú þann, sem Páll prédikar.14Þeir er þetta frömdu, voru sjö synir Gyðings nokkurs, Skeva æðsta prests.15En illi andinn sagði við þá: Jesú þekki ég, og Pál kannast ég við, en hverjir eruð þér?16Og maðurinn, sem illi andinn var í, flaug á þá, keyrði þá alla undir sig og lék þá svo hart, að þeir flýðu naktir og særðir úr húsinu.17Þetta varð kunnugt öllum Efesusbúum, bæði Gyðingum og Grikkjum, og ótta sló á þá alla, og nafn Drottins Jesú varð miklað.18Margir þeirra, sem trú höfðu tekið, komu, gjörðu játningu og sögðu frá athæfi sínu.19Og allmargir er farið höfðu með kukl, komu með bækur sínar og brenndu þær að öllum ásjáandi. Þær voru samtals virtar á fimmtíu þúsundir silfurpeninga.20Þannig breiddist orð Drottins út og efldist í krafti hans.21Þá er þetta var um garð gengið, tók Páll þá ákvörðun að ferðast um Makedóníu og Akkeu og fara síðan til Jerúsalem. Hann sagði: Þegar ég hef verið þar, ber mér líka að sjá Róm.22Hann sendi tvo aðstoðarmenn sína, þá Tímóteus og Erastus, til Makedóníu, en dvaldist sjálfur um tíma í Asíu.23Í þann tíma urðu miklar æsingar út af veginum.24Demetríus hét maður og var silfursmiður. Bjó hann til Artemisar-musteri úr silfri og veitti smiðum eigi litla atvinnu.25Hann stefndi þeim saman og öðrum, sem að slíku unnu, og sagði: Góðir menn, þér vitið, að velmegun vor hvílir á þessari atvinnu.26Og þér sjáið og heyrið, að Páll þessi hefur með fortölum sínum snúið fjölda fólks, ekki einungis í Efesus, heldur nær um gjörvalla Asíu. Hann segir, að eigi séu það neinir guðir, sem með höndum eru gjörðir.27Nú horfir þetta ekki einungis iðn vorri til smánar, heldur einnig til þess, að helgidómur hinnar miklu gyðju, Artemisar, verði einskis virtur og að hún, sem öll Asía og heimsbyggðin dýrkar, verði svipt tign sinni.28Er þeir heyrðu þetta, urðu þeir afar reiðir og æptu: Mikil er Artemis Efesusmanna!29Og öll borgin komst í uppnám, menn þustu hver um annan til leikvangsins og þrifu með sér þá Gajus og Aristarkus, förunauta Páls úr Makedóníu.30En er Páll vildi ganga inn í mannþröngina, leyfðu lærisveinarnir honum það ekki.31Nokkrir höfðingjar skattlandsins, sem voru vinir hans, sendu einnig til hans og báðu hann að hætta sér ekki inn á leikvanginn.32Menn hrópuðu nú sitt hver, því að mannsöfnuðurinn var í uppnámi, og vissu fæstir, hvers vegna þeir voru saman komnir.33Nokkrir í mannþrönginni töldu það vera vegna Alexanders, því að Gyðingar ýttu honum fram, en Alexander benti til hljóðs með hendinni og vildi verja mál sitt fyrir fólkinu.34Þegar menn urðu þess vísir, að hann var Gyðingur, lustu allir upp einu ópi og hrópuðu í nærfellt tvær stundir: Mikil er Artemis Efesusmanna!35En borgarritarinn gat sefað fólkið og mælti: Efesusmenn, hver er sá maður, að hann viti ekki, að borg Efesusmanna geymir musteri hinnar miklu Artemisar og steininn helga af himni?36Þar sem enginn má gegn því mæla, ber yður að vera stilltir og hrapa ekki að neinu.37Þér hafið dregið þessa menn hingað, þótt þeir hafi hvorki framið helgispjöll né lastmælt gyðju vorri.38Eigi nú Demetríus og smiðirnir, sem honum fylgja, sök við nokkurn, þá eru þingdagar haldnir, og til eru landstjórar. Eigist þeir lög við.39En ef þér hafið annars að krefja, má gjöra út um það á löglegu þingi.40Vér eigum á hættu að verða sakaðir um uppreisn fyrir þetta í dag og getum ekki bent á neitt tilefni, sem gæti afsakað slík ólæti. Að svo mæltu lét hann mannsöfnuðinn fara.

19.1 Appollós í Korintu Post 18.27-28; sbr 18.24 – Efesus Post 18.19; 20.16-17; 21.29; 1Kor 15.32; 16.8; Ef 1.1; 1Tím 1.3; 2Tím 1.18; 4.12; Opb 1.11; 2.1
19.2 Gjöf heilags anda Post 2.38 – þekktu hann ekki Jóh 7.39; Post 8.16
19.3 Skírn Jóhannesar Post 18.25; sbr Matt 3.6+
19.4 Iðrunarskírn og boðun trúar Matt 3.11; Mrk 1.4,7-8
19.5 Til nafns Drottins Jesú Post 2.38+
19.6 Heilagur andi kom yfir þá Post 6.6+ – tala tungum og spá Post 2.4+
19.8 Í samkundunni Post 17.2+ – talaði djarflega Post 18.26
19.9 Sagði skilið við Post 13.46; 18.6-7; sbr 2Kor 6.17
19.10 Í Efesus Post 19.8; 20.31 – orðið boðað í Asíu sbr Kól 1.7; 4.13,15; Opb 3.14-22
19.11 Kraftaverk Post 14.3
19.12 Snerting læknar Post 5.15-16+
19.13 Með nafni Jesú Mrk 9.38; Lúk 9.49
19.15 Illir andar þekkja Jesú Post 16.17+
19.17 Ótti Post 5.5,11 – nafn Drottins Post 3.16+
19.20 Orð Guðs eflist Post 6.7; 12.24
19.21 Til Jerúsalem og Rómar Post 23.11; Róm 1.13; 15.23; sbr 2Kor 1.15-16
19.22 Tímóteus Post 16.1+
19.23 Miklar æsingar 2Kor 1.8 – vegurinn Post 9.2+
19.24 Eigi lítil atvinna Post 16.16
19.26 Með höndum gjörðir Post 17.29
19.29 Aristarkus Post 20.4; 27.2; Kól 4.10; Fílm 24
19.33 Benda til hljóðs Post 12.17; 13.16; 21.40