1Þegar konungurinn ríkir með réttlæti og höfðingjarnir stjórna með réttvísi,2þá verður hver þeirra sem hlé fyrir vindi og skjól fyrir skúrum, sem vatnslækir í öræfum, sem skuggi af stórum hamri í vatnslausu landi.3Þá eru augu hinna sjáandi eigi afturlukt, og þá hlusta eyru þeirra, sem heyrandi eru.4Hjörtu hinna gálausu munu læra hyggindi og tunga hinna mállausu tala liðugt og skýrt.5Þá verður heimskinginn eigi framar kallaður göfugmenni og hinn undirföruli eigi sagður veglyndur.6Heimskinginn talar heimsku og hjarta hans býr mönnum ógæfu, með því að hann breytir óguðlega og talar villu gegn Drottni, lætur hinn hungraða vera svangan og gefur eigi þyrstum manni vatnsdrykk.7Vopn hins undirförula eru skaðvænleg. Hann hugsar upp pretti til þess að koma hinum umkomulausa á kné með lygaræðum, og það jafnvel þótt hinn fátæki sanni rétt sinn.8En göfugmennið hefir göfugleg áform og stendur stöðugur í því, sem göfuglegt er.9Þér áhyggjulausu konur, standið upp og heyrið raust mína! Þér ugglausu dætur, gefið gaum að ræðu minni:10Eftir ár og daga skulu þér hinar ugglausu skelfast, því að vínberjatekjan bregst og aldintekja verður engin.11Hræðist, þér hinar áhyggjulausu! Skelfist, þér hinar ugglausu! Farið af klæðum og verið naktar, gyrðið hærusekk um lendar yðar,12berið yður hörmulega vegna akranna, vegna hinna yndislegu akra, vegna hins frjósama vínviðar,13vegna akurlendis þjóðar minnar þar sem vaxa munu þyrnar og þistlar, já vegna allra glaðværðarhúsanna í hinni glaummiklu borg!14Því að hallirnar munu verða mannauðar og hávaði borgarinnar hverfa. Borgarhæðin og varðturninn verða hellar um aldur og ævi, skógarösnum til skemmtunar og hjörðum til hagbeitar15uns úthellt verður yfir oss anda af hæðum. Þá skal eyðimörkin verða að aldingarði og aldingarður talinn verða kjarrskógur,16réttvísin festa byggð í eyðimörkinni og réttlætið taka sér bólfestu í aldingarðinum.17Og ávöxtur réttlætisins skal vera friður, og árangur réttlætisins rósemi og öruggleiki að eilífu.18Þá skal þjóð mín búa í heimkynni friðarins, í híbýlum öruggleikans og í rósömum bústöðum.19En hegla mun þegar skógurinn hrynur og borgin steypist.20Sælir eruð þér, sem alls staðar sáið við vötn og látið uxa og asna ganga sjálfala.

32.1 Með réttlæti Jes 9.6; 11.4; Jer 23.5-6 – samkvæmt lögum Jes 1.21-27; 28.6
32.2 Hlé Jes 16.4; 25.4
32.3 Sjáandi augu, heyrandi eyru Jes 35.5; sbr Jes 6.10
32.4 Gálausu Jes 35.4 – stamandi tunga Jes 35.6
32.5 Dæmdir að verðleikum Jes 5.20
32.6 Heimskinginn talar heimsku Okv 15.2
32.7 Svívirðileg ráð Mík 2.1 – umkomulausa Jes 29.20-21
32.9 Áhyggjulausu konur Jes 3.16-24; Am 6.1
32.11 Standið naktar Jes 20.2; Mík 1.8 – gyrða hærusekk Jes 15.3; 22.12; 37.1-2; Jer 4.8; 6.26 o.fl.
32.12 Bera sig hörmulega Lúk 23.48 – harmakvein Jes 16.9; 28.1; sbr Opb 18.9-19
32.13 Þyrnar og þistlar Jes 5.6+ – glaummiklu borg Jes 22.2+
32.14 Yfirgefin borg Jes 24.10-11 – virkishæðin 2Kro 27.3; Neh 3.27 – haglendi Jes 7.25+
32.15 Andanum úthellt Jes 11.2; 44.3; Esk 37.9-10; Jl 3.1-2 – aldingarður, skógur Jes 29.17+
32.17 Réttlæti og friður Jes 9.6; Slm 72.2-3; Jak 3.18 – hvíld og öruggi Jes 30.15; 33.15-16
32.18 Friðsæl heimkynni Jes 28.12; Jer 23.6
32.20 Sælir Jes 30.18; Slm 1.1+