1Svo segir Drottinn: Himinninn er hásæti mitt og jörðin er fótskör mín. Hvaða hús munuð þér geta reist mér, og hvar er sá staður, sem verið geti bústaður minn?2Hönd mín hefir gjört allt þetta og þannig er það allt til orðið segir Drottinn. Þeir sem ég lít til, eru hinir þjáðu og þeir er hafa sundurmarinn anda og skjálfa fyrir orði mínu.3Sá sem slátrar uxa, er ekki mætari en manndrápari, sá sem fórnar sauð, er ekki mætari en sá sem hengir hund, sá sem færir fórnargjöf, ekki mætari en sá sem ber fram svínablóð, sá sem brennir reykelsi, ekki mætari en sá sem blessar skurðgoð. Eins og þeir hafa valið sína vegu og eins og sál þeirra hefir mætur á hinum viðurstyggilegu goðum þeirra,4eins mun ég láta mér vel líka að hrjá þá og láta yfir þá koma það, er þeir hræðast. Því að enginn gegndi, þegar ég kallaði, og þeir heyrðu ekki, þegar ég talaði, heldur aðhöfðust það, sem illt var í mínum augum, og höfðu mætur á því, sem mér mislíkaði.5Heyrið orð Drottins, þér sem skjálfið fyrir orði hans! Bræður yðar, er hata yður og reka yður burt frá sér fyrir sakir nafns míns, þeir segja: Gjöri Drottinn sig dýrlegan, svo að vér megum sjá gleði yðar! En þeir skulu til skammar verða.6Heyr gnýinn frá borginni, heyr óminn frá musterinu! Heyr, Drottinn geldur óvinum sínum fyrir tilverknað þeirra!7Hún fæðir, áður en hún kennir sín, hún er orðin léttari að sveinbarni, áður en hún tekur jóðsóttina.8Hver hefir heyrt slíkt? Hver hefir séð slíka hluti? Er nokkurt land í heiminn borið á einum degi, eða fæðist nokkur þjóð allt í einu? Því að óðara en Síon hefir kennt sóttar, hefir hún alið börn sín.9Skyldi ég láta barnið komast í burðarliðinn og ekki láta það fæðast? segir Drottinn. Eða skyldi ég, sem læt barnið fæðast, loka móðurkviðnum? segir Guð þinn.10Gleðjist með Jerúsalem og fagnið yfir henni, allir þér sem elskið hana! Kætist með henni, allir þér sem nú hryggist yfir henni,11svo að þér megið sjúga og saddir verða við hugsvalandi brjóst hennar, svo að þér megið teyga og gæða yður við dýrðargnótt hennar.12Því að svo segir Drottinn: Sjá, ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti, og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Þér skuluð liggja á brjóstum hennar og skuluð bornir verða á mjöðminni og yður skal hossað verða á hnjánum.13Eins og móðir huggar son sinn, eins mun ég hugga yður. Í Jerúsalem skuluð þér huggaðir verða.14Þér munuð sjá það, og hjarta yðar mun fagna og bein yðar blómgast sem grængresi. Hönd Drottins mun kunn verða á þjónum hans, og hann mun láta óvini sína kenna á reiði sinni.15Því sjá, Drottinn kemur í eldi, og vagnar hans eru sem vindbylur, til þess að gjalda reiði sína í heift og hótun sína í eldslogum.16Því að Drottinn mun dóm heyja með eldi, og með sverði sínu yfir öllu holdi, og þeir munu margir verða, er Drottinn fellir.17Þeir sem helga sig og hreinsa sig til þess að fara inn í fórnarlundana, bak við einhvern, sem fyrir miðju er, sem eta svínakjöt, viðurstyggileg skriðdýr og mýs þeir skulu allir undir lok líða segir Drottinn.18En ég þekki athafnir þeirra og hugsanir. Sá tími kemur, að ég mun saman safna öllum þjóðum og tungum, og þær skulu koma og sjá mína dýrð.19Og ég mun gjöra tákn á þeim og senda flóttamenn frá þeim til þjóðanna, til Tarsis, Pút og Lúd, sem benda boga, til Túbal og Javan, til hinna fjarlægu eylanda, sem ekki hafa neina fregn af mér og ekki hafa séð dýrð mína, og þeir skulu kunngjöra dýrð mína meðal þjóðanna.20Þeir munu flytja alla bræður yðar heim frá öllum þjóðum sem fórnargjöf Drottni til handa, á hestum og á vögnum, í burðarstólum, á múlum og úlföldum, til míns heilaga fjalls, til Jerúsalem segir Drottinn eins og þegar Ísraelsmenn færa fórnargjafir í hreinum kerum til húss Drottins.21Og af þeim mun ég einnig taka presta og levíta segir Drottinn.22Já, eins og hinn nýi himinn og hin nýja jörð, sem ég skapa, munu standa stöðug fyrir mínu augliti segir Drottinn eins mun afsprengi yðar og nafn standa stöðugt.23Og á mánuði hverjum, tunglkomudaginn, og á viku hverri, hvíldardaginn, skal allt hold koma til þess að falla fram fyrir mér segir Drottinn.24Þeir munu ganga út og sjá hræ þeirra manna, er rofið hafa trú við mig. Því að ormur þeirra mun ekki deyja og eldur þeirra ekki slokkna, og þeir munu viðurstyggð vera öllu holdi.

66.1 Sjá Matt 5.34-35 – hásæti Guðs Slm 11.4+ ; sbr Jes 57.15 – hús reist mér Hag 1.3,4,14 – hvíldarstaður minn Slm 132.13-14; sbr Jes 60.13; 1Kon 8.27; 5Mós 12.5
66.2 Allt er mitt Slm 50.8-12 – skelfur fyrir orði mínu Jes 66.5; Esr 9.4; 10.3
66.3 Manndrápari sbr Jes 57.5 – svínablóð Jes 65.4+
66.4 Enginn Jes 41.28+ – kallað án svars Jes 50.2+ – enginn hlustaði 2Þess 1.8
66.5 Drottinn birtist í dýrð 2Þess 1.10 – Drottni ögrað Jes 5.19; Jer 17.15; 2Pét 3.4
66.6 Rödd Drottins Jer 25.30
66.7 Jerúsalem sem móðir Jes 49.20-22 – sveinbarn Opb 12.5
66.8 Hver hefur heyrt annað eins … séð? Jes 64.3
66.10 Gleðjist Jes 61.3; 65.18-19; Jóh 16.20
66.12 Eins og fljóti Jes 48.18 – auðæfum þjóðanna sbr Jes 60.13; 61.6
66.13 Huggar Jes 40.1+
66.14 Fagna Jes 60.5
66.15 Endurgjalda 2Þess 1.8
66.16 Dómur yfir öllum Jer 25.30-33 – eldi, sverði Esk 21.1-17; sbr Jes 64.1
66.17 Helga sig Jes 65.5 – garðana Jes 65.3
66.18 Stefna saman Mík 4.1+ – sjá dýrð mína Jes 40.5; 60.1-3
66.19 Tákn Jes 7.14; Slm 78.43 – Tarsis Jes 60.9+ ; 1Mós 10.4 – Pút og Lúd 1Mós 10.6-13; Jer 46.9 – Túbal 1Mós 10.2 – Javan 1Mós 10.2,4 – eyjum Jes 40.15+
66.20 Flytja heim Jes 14.2; 49.22; 60.4,9
66.21 Prestar Jes 56.3-7
66.22 Nýr himinn, ný jörð Jes 65.17+
66.23 Allt hold Jes 40.5; Slm 65.3
66.24 Maðkar, eldur Júdt 16.18; Sír 7.17; Mrk 9.48