1Beyg þig og læg þig, þú þjóð, sem eigi blygðast þín,2áður en þér verðið eins og fjúkandi sáðir, áður en hin brennandi reiði Drottins kemur yfir yður, áður en reiðidagur Drottins kemur yfir yður.3Leitið Drottins, allir þér hinir auðmjúku í landinu, þér sem breytið eftir hans boðorðum. Ástundið réttlæti, ástundið auðmýkt, vera má að þér verðið faldir á reiðidegi Drottins.4Gasa mun verða yfirgefin og Askalon verða að auðn. Asdódbúar munu burt reknir verða um hábjartan dag og Ekron í eyði lögð.5Vei yður, þér sem búið meðfram sjávarsíðunni, þú Kreta þjóð! Orð Drottins beinist gegn yður, Kanaan, land Filista! Já, ég mun eyða þig, svo að þar skal enginn búa.6Og sjávarsíðan skal verða að beitilandi fyrir hjarðmenn og að fjárbyrgjum fyrir sauðfé.7Þá mun sjávarsíðan falla til þeirra, sem eftir verða af Júda húsi. Þar skulu þeir vera á beit, í húsum Askalon skulu þeir leggjast fyrir að kveldi. Því að Drottinn, Guð þeirra, mun vitja þeirra og snúa við högum þeirra.8Ég hefi heyrt svívirðingar Móabs og smánaryrði Ammóníta, er þeir svívirtu með þjóð mína og höfðu hroka í frammi við land þeirra.9Fyrir því skal, svo sannarlega sem ég lifi segir Drottinn allsherjar, Guð Ísraels fara fyrir Móab eins og fyrir Sódómu, og fyrir Ammónítum eins og fyrir Gómorru. Þeir skulu verða að gróðrarreit fyrir netlur, að saltgröf og að óbyggðri auðn til eilífrar tíðar. Leifar lýðs míns skulu ræna þá og eftirleifar þjóðar minnar erfa þá.10Þetta skal þá henda fyrir drambsemi þeirra, að þeir hafa svívirt þjóð Drottins allsherjar og haft hroka í frammi við hana.11Ógurlegur mun Drottinn verða þeim, því að hann lætur alla guði jarðarinnar dragast upp, svo að öll eylönd heiðingjanna dýrki hann, hver maður á sínum stað.12Einnig þér, Blálendingar, munuð falla fyrir sverði mínu.13Og hann mun rétta út hönd sína gegn norðri og afmá Assýríu. Og hann mun leggja Níníve í eyði, gjöra hana þurra sem eyðimörk.14Mitt í henni skulu hjarðir liggja, alls konar dýr hópum saman. Pelíkanar og stjörnuhegrar munu eiga náttból á súlnahöfðum hennar. Heyr kliðinn í gluggatóttunum! Rofhrúgur á þröskuldunum, því að sedrusviðarþilin hafa verið rifin burt!15Er þetta glaummikla borgin, er sat andvaralaus og sagði í hjarta sínu: Ég og engin önnur? Hversu er hún orðin að auðn, að bæli fyrir villidýr! Hver sá er þar fer um, blístrar og hristir hönd sína hæðnislega.

2.2 Reiðidagur Drottins Sef 1.7+
2.3Leita Drottins Am 5.4+ – hógværir í landinu Sef 3.12; Jes 57.15; 66.2
2.4Gegn Filisteum Jes 14.28-31; Jer 47.1-7; Esk 25.15-17; Jl 4.9-8; Am 1.6-8; Sak 9.5-7
2.6-7 Fjárkvíar Jes 7.25+
2.7 Högum snúið við Hós 6.11+
2.8 Gegn Móabítum Jes 15-16; Jer 48; Am 2.1-3 – og Ammonsbúm Jer 49.1-6; Esk 25.1-11; Am 1.13-15
2.9 Sódóma og Gómorra 1Mós 19.24-25; Jes 1.9+ – illgresi sbr Jes 5.6
2.11 Hver maður lúti honum Slm 22.28; sbr Jes 2.2-3; Sak 2.15; Slm 72.11; 86.9; 102.16,23
2.12 Gegn Eþíópíumönnum Jes 18.1-7
2.13 Níníve og Assýría Jes 10.5-19; 14.24-27; Nah 2.2-3.19
2.14 Ég Jes 47.8,10