1Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta út af því, að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun.2Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: Ekki hæfir, að vér hverfum frá boðun Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum.3Finnið því, bræður, sjö vel kynnta menn úr yðar hópi, sem fullir eru anda og visku. Munum vér setja þá yfir þetta starf.4En vér munum helga oss bæninni og þjónustu orðsins.5Öll samkoman gerði góðan róm að máli þeirra, og kusu þeir Stefán, mann fullan af trú og heilögum anda, Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu, sem tekið hafði gyðingatrú.6Þeir leiddu þá fram fyrir postulana, sem báðust fyrir og lögðu hendur yfir þá.7Orð Guðs breiddist út, og tala lærisveinanna í Jerúsalem fór stórum vaxandi, einnig snerist mikill fjöldi presta til hlýðni við trúna.8Stefán var fullur af náð og krafti og gjörði undur og tákn mikil meðal fólksins.9Þá komu til nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og Alexandríu, en aðrir frá Kilikíu og Asíu, og tóku að þrátta við Stefán.10En þeir gátu ekki staðið gegn visku þeirri og anda, sem hann talaði af.11Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: Vér höfum heyrt hann tala lastmæli gegn Móse og Guði.12Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina, og þeir veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið.13Þá leiddu þeir fram ljúgvotta, er sögðu: Þessi maður er alltaf að tala gegn þessum heilaga stað og lögmálinu.14Vér höfum heyrt hann segja, að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum, sem Móse hefur sett oss.15Allir sem í ráðinu sátu, störðu á hann og sáu, að ásjóna hans var sem engils ásjóna.

6.1 Lærisveinarnir (hinir kristnu) Post 9.1,26; 11.26; 16.1; 18.23 – söfnuðurinn vex Post 2.41+ – grískumælandi menn sbr Post 9.2 – hebreskir 2Kor 11.22; Fil 3.5 – dagleg þjónusta Post 2.45; 4.35
6.2 Hinir tólf Matt 10.2+ – hópurinn saman kominn Post 6.5; 15.12,30
6.3 Vel kynntir Post 10.22; 16.2; 22.12; 1Tím 3.7; 3Jóh 12 – fullir anda og visku Post 6.10
6.6 Báðust fyrir Post 1.24; 13.3; 14.23 – leggja hendur yfir 1) Post 8.17; 19.6 2) Post 9.12,17; 28.8 3) Post 13.3; sbr Matt 9.18+ ; Mrk 5.23+
6.7 Söfnuðurinn vex Post 2.41+ – orð Guðs breiðist út Post 12.24; 19.20
6.8 Undur og tákn Post 2.43+
6.10 Viska sem enginn fær staðið í gegn Lúk 21.15 – heilagur andi og viska Post 6.3
6.11 Ljúgvottar Matt 26.59,61; Mrk 14.55-58
6.13 Gegn helgidóminum Jer 26.11; Post 21.28; 24.6; 25.8 – gegn lögmáli Móse Post 6.11,13+ ; 18.13,15; 21.21,28; 25.8